Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.04.1989, Blaðsíða 7

Víkurfréttir - 13.04.1989, Blaðsíða 7
\>iKun juM\ Fimmtudagur 13. apríl 1989 FRÉTTA- OG ÞJÓNUSTUSÍÐA SPARISJÓDSINS Nýtt afgreiðslukerfi reynist vel Nú eru liðnar sex vikur frá því að Sparisjóðurinn tók í notkun nýtt afgreiðslukerfi. Eftir nokkra erfiðleika i byrj- un hefur starfsfólkið náð tök- um á tækninni svo að nú má segja að reynsla sé komin á kerfið. Sumum viðskiptavin- um þótti sem nýja kerfið væri seinvirkara. Samt hefur tekist hingað til að afgreiða sama fjölda og afgreiddur var í gamla kerfinu. Til að skýra nánar hvaða kosti þetta kerfi hefur er rétt Nýja kerfið „greip“ þjóf Einn stærsti koslurinn við hið nýja afgreiðslukerfi Sparisjóðsins er öryggi. Það kom vel í Ijós þegar þjófur var gripinn með stoiinn tékka, sem hann ætlaði að skipta hjá einum gjaldkera Sparisjóðsins. Þegar gjald- kerinn skráði tékkann inn kom frarn á tölvunni að um stolinn eða glataðan tékka væri að ræða. Gjaldkeranum brá í brún en fór síðan frá til að athuga hvað gera skyldi. Fengusl fijótlega upplýsing- ar um að hér væri tékki úr þýfi, sem hafði verið tekið í innbroti í verslun úti á landi. Var maðurinn beðinn að bíða sem hann og gerði, grunlaus, á meðan hringt var í lögreglu sem kom skömmu seinna og tók kappann. Ef hefti, sparibók eða annað glatast og er tilkynnt þegar, þá er það komið inn á kerfið um leið og sést í öllum bönkum sem erú með þetta nýja afgreiðslukerfi. að segja frá þeim helstu í örfá- um orðum. Tökum dæmi um viðskipta- vin sem vill koma greiðslu til annars aðila t.d. með gíró- greiðslu í annan banka. Um leið og færslan hefur farið fram sést hún á skjá móttökubanka greiðslunnar. Ef t.d. tékka er stolið eða hann glatast, er nóg að láta þann banka sem tékk- inn er gefinn út á, vita. Sá banki lætur athugasemd í tölvukerfið. Ef síðan tékkinn kemur til innlausnar hjá af- greiðslustað með „afgreiðslu- kerfi“ fær gjaldkerinn athuga- semd á skjáinn hjá sér um að tékkinn sé glataður eða stol- inn. Staða bankabóka, tékka- reikninga, gjaldeyrisreikn- inga, greiðslustaða víxla og gjalddagar skuldabréfa er færð upp jafnóðum. Launainnlegg á bankabækur verða fijótvirk- ari og starfsfólk losnar við að fietta listum til að sjá hvort laun hafi borist inn á bækur eða tékkareikninga. Uppgjörí dagslok verða öruggari og fijótvirkari. Eins og sést annars staðar á þjónustusíðunni eru ýmsar ástæður fyrir misjöfnum af- greiðsluhraða. Þar ræður mestu mjög misjafnt álag á af- greiðsluna sem kemur fyrst og fremst fram á föstudögum. En Sparisjóðurinn mun leitast við að leysa þessi mál eins fijótt og auðið er. Starfsfólk Sparisjóðsins vill þakka viðskiptavinum sínum fyrir þolinmæðina og umburð- arlyndið á undanförnum vik- Minnst áiag á miðvikudögum Eins og viðskiptavinir Sparisjóðsins hafa orðið varir við í gegnum tíðina, myndast mikil örtröð í afgreiðslunni á vissum dögum. Til að skýra þetta nánar má setja upp dæmigerða viku í afgreiðsl- unni. Ef við segjum að mið- vikudagar hafi afgreiðslugild- ið 1, þá hafa föstudagar, mán- aðamót og 10. hvers mánaðar afgreiðslugildið 3,3, mánudag- ar gildið 2,4, þriðjudagar gild- ið 1,7 og fimmtudagar gildið 2,0. Af þessu má sjá að álagið verður þrefalt á stærstu dög- unum. En á meðan launa- greiðslum, afborgunum ogalls kyns greiðslum er stillt inná þessa daga er fyrirséð að álagið verður svona í næstu framtíð. VAXTA TAFLA Almenn ínnlán: Alm. sparisjóðsbækur 13,00 SÉR-tékkareikningur 13,00 Öryggisbók 25,00 Verðtryggðir reikningar: Trompbók a) óverðtryggð kjör frá 23,50 b) verðtryggð kjör frá 3,50 Almenn útlán: Tékkareikningslán/Yfirdr. 29,50 Almennir víxlar 25,00 Óverðtr. skuldabréf 27,50 Skuldabréf: a) óverðtr. 27,50 b) óverðtryggð/kjörvextir 25,00 álag að lágmarki 0,75% álag að hámarki 3,00% c) verðtryggð 8,75 d) verðtryggð/kjörvextir 7,75 álag að lágmarki 0,75% álag að hámarki 3,00% ÞROUN LANSKJARA VISITÖLU Vísitölu- hraði milli Hækkun frá Hækkun sl. Mánuður V jsitala mánaða áramótum 12 mán. jan-88 1913 18,60% 1.43% 22,24% feb-88 1958 32,18% 2,35% 22,84% mar-88 1968 6,30% 2,88% 21,93% apr-88 1989 13,58% 3,97% 21,06% maí-88 2020 20,39% 5,59% 21,54% jún-88 2051 20,05% 7,21% 21,58% júl-88 2154 80,04% 12,60% 25,16% ágú-88 2217 41,33% 15,89% 27,19% sep-88 2254 21,97% 17,83% 26,77% okt-88 2264 5,46% 18,35% 25,99% nóv-88 2272 4,32% 18,77% 23,41% des-88 2274 1,06% 18,87% 20,57% jan-89 2279 2,67% 19,13% 19,13% feb-89 2317 21,95% 1,67% 18,34% mar-89 2346 16,10% 2,94% 19,21% apr-89 2394 27,51% 5,05% 20,36% „Hraökassi" væntanlegur Fyrirhugað er að setja upp hraðkassa í afgreiðslum Sparisjóðsins. Verða þeir fyrst og fremst notaðir á þeim dögum sem mikið álag cr á af- greiðslunni. Hraðkassarnir verða fyrir þá viðskiptavini sem eru t.d. með einn gíróseð- il, einn tékka eða aðrar ein- faldar og fljótlegar afgreiðsl- ur. Hraðkassi getur ekki af- greitt bankabækur eða þær af- greiðslur scm þurfa að berast liratt á milli afgreiðslustaða. Bækurnar í Hraðbankann Nú geta þeir viðskiptavinir, sem eingöngu hafa haft bankabækur, Trompbækur, Toppbækur eða önnur inn- lánsform að Tékkareikning- um undanskildum, fengið að- gang að hraðbankanum og tengt bækurnar við þá reikn- inga. Erlend viðskipti Á næstunni munu sparisjóð- irnir auka við þjónustu sína í erlendum viðskiptum. Er um að ræða innflutningsábyrgðir, afgreiðslu innflutningsskjala og aðra þá þjónustu sem þarf fyrir þá viðskiptavini sem inn- flutning stunda. Einnig verður boðið upp á innheimtuþjónustu fyrir þá viðskiptavini sem stunda úl- flulning. Munu sparisjóðirnir sjá um að innheimta reikninga hjá kaupandanum erlendis. Með þessu skrefi geta sparisjóðirnir boðið upp á alla gjaldeyrisþjónustu, hvaða nafni sem hún nefnist, í fram- tíðinni. Núvirði veð- deildarbréfa Núvirði skuldabréfa Veð- deildar Sparisjóðsins í Kefla- vík miðað við nafnverð kr. 100.000 Og vísitölu 2394: l.fi. ’86 kr. 155.253,- 1.11. ’87 kr. 150.188.- 2,fi. ’87 kr. 134.646,- 3.fl. ’87 kr. 130.038.- l.fl. ’88 kr. 122.268,- 2.11. ’88 kr. 116.724,- l.fi. ’89 kr. 105.046.- 2.fl. ’89 kr. 105.046.- 3.fl. ’89 kr. 102.046,-

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.