Víkurfréttir - 13.04.1989, Side 8
\>ÍKlIR
8
Fimmtudagur 13. apríl 1989
molar
Grín - Gagnrýni - Vangaveltur
Umsjón: Emil Páll
Oddur í öðru veldi
Að dómi þeirra sem fylgj-
ast með bæjarmálapólitík-
inni á Suðurnesjum hefur
enginn vafi verið á því að
Njarðvíkingar hafa að und-
anförnu veri einstaklega
óheppnir við kjör fulltrúa
meirihluta bæjarstjórnarinn-
ar í hinar ýmsu nefndir.
Minnisstætt er t.d. klúðrið
við kjör fulltrúa í stjórn
Vatnsveitu Suðurnesja s.f.
Nú hefur komið upp annað
klúðursmál. Það snýst um
kjör fulltrúa í stjórn og full-
trúaráð Gjaldheimtu Suður-
nesja, þar sem bæjarstjóri
Njarðvíkur, Oddur Einars-
son, hefur gegnt stöðu
stjórnarformanns. Stjórn
SSS tilnefndi hann nú aftur í
stjórnina, síðan átti Njarð-
víkurbær að tilnefna tvo full-
trúa í fulltrúaráðið en ekki
tókst þar betur til en svo að
þeir tilnefndu aðeins einn og
hvern haldið þið? Odd Ein-
arsson. Er hann því fyrir
klúður bæði tilnefndur sem
fulltrúi SSS og Njarðvíkur-
bæjar.
Verða þeir að
fara í ellefu?
Eitthvað virðast meiri-
hlutarnir í bæjarstjórnum
Keflavíkur og Njarðvíkur
eiga erfitt með að koma sér
saman um endanlega tölu
stjórnarmanna í hinni ný-
stofnuðu vatnsveitu. Nýlega
var þeim fjölgað úr fimm í
sjö svo kratarnir gætu þar
haft meirihuta, að því er
heimildir herma, eftir klúður
við fulltrúakjör Njarðvík-
inga. Nú er búið að kjósa í
þessi sjö sæti en áfram er
staðan sú að kratarnir hafa
'ekki meirihluta og fram-
sóknarmenn í Njarðvík eiga
engan fulltrúa. Þykir því nú
allt eins líklegt að endanleg
tala stjórnarmanna verði ell-
efu. Með því móti yrði sama
hlutfal! í gangi og í bæjar-
stjórnum þessara tveggja
byggðarlaga.
Golfspil í Félagsbíói
Fyrir þá sem þekkja Ómar
Jóhannsson, höfund reví-
unnar „Við kynntumst fyrst í
Keflavík“, hefur lítið komið
I á óvart, þó revían hafi fengið
góðar undirtektir. Enda er
hér mikill og gamansamur
maður á ferð. Sem dæmi um
gamansemina þá hefði sjálf-
sagt engum nema honum
dottið það í hug að mæta sem
golfari með kylfu og kúlu og
slá út í sal. Vakti þetta uppá-
tæki hans mikla kátínu sem
og verk hans allt saman.
Vonandi fáum við fleiri verk
innan tíðar á Qalirnar sem
hann hefur samið.
Lítil trú
Þeir sem staddir voru í
Grindavík, er björgunarað-
gerðir við danska skipið,
fóru fram, urðu þess vel
áskynja að menn á staðnum
höfðu litla trú á að skipinu
yrði bjargað. Höfðu menn
það jafnve! á orði að trú
björgunaraðila á að björgun
tækist væri hin mesta firra.
Eftir að björgun tókst stóð
ekki á kuningjum og vinum
björgunarmannanna að
koma til Njarðvíkur og
fagna þessum stóra happ-
drættisvinningi, sem trúlega
hefur fallið í skaut Lyng-
holtsmanna og manna Finn-
boga Kjeld.
Kátt í höllinni
Fram að þessu hefur af-
mælisdagskrá Keflavíkur
tekist mjög vel og þar brást
tónlistarhátíðin ekki vonum
manna. Helst var það fólkið
í salnum, sem virtist eiga erf-
itt með að skapa nægjanlega
stemningu. Þeir sem komu
fram rifjuðu upp að Keflavík
var sannarlega bítlabær hér í
eina tíð. Annars var það at-
hyglisvert hvað margir íbúar
nágrannabyggðarlaganna
lögðu leið sína í íþróttahúsið
til að hlýða á tónlistarmenn-
ina okkar. Sannar þetta enn
einu sinni að í huga flestra
Suðurnesjamanna, nema
helst pólitíkusanna, eru Suð-
urnes eitt byggðarlag.
Fram úr
björtustu vonum
Þátttaka almennings í há-
tíðarhöldunum er tengjast 40
ára afmæli Keflavíkurbæjar
hefur farið langt fram út
björtustu vonum forráða-
manna hátíðarhaldanna.
Mega þeir því vel við una.
Ólafur Ragnar
með frekju?
Frá því að Suðurnesja-
menn, fyrstir utan Reykja-
víkur, settu á stofn gjald-
heimtu hefurgjaldheimtuféð
verið vistað í Sparisjóðnum,
þar til skipting fer fram milli
sveitarfélaganna og ríkisins.
Enda ekkert eðlilegra en að
útsvar Suðurnesjamanna sé
vistað á svæðinu. Nú hefur
Ólafur Ragnar Grímsson,
fjármálaráðherra, krafist
þess að þetta fé verði geymt
fram að skiptingu í Seðla-
bankanum í Reykjavík.
Segja menn að ástæðan sé sú
að þar með takist honum að
laga yfirdrátt ríkissjóðs.
Gildir krafa þessi um allar
gjaldheimtur landsins og
hefur Samband íslenskra
sveitarfélaga samþykkt það.
Sambandið hafði hinsvegar
ekki heimild Suðurnesja-
manna sem hafa mótmælt
því kröftuglega að ríkissjóð-
ur flytji með þessum hætti út-
svars- og skattafé Suður-
nesjamanna til Reykjavíkur.
Fram að þessu hefur Ólafur
Ragnar þó haldið sinni
stefnu í málinu.
Mikið „plott“
Fyrir stjórnarfund í Hita-
veitu Suðurnesja í síðustu
viku var mikill órói í ýmsum
ráðamönnum vegna þess að
þá var framundan að ákveða
embættisskipan stjórnar-
manna. Þeir sem vildu breyt-
ingar gerðu allt til þess, s.s.
að beita pólitík eða krefjast
„róteringar" þ.e. að staðan
færist samkvæmt áður
ákveðinni reglu milli sveitar-
félaganna. Voru það einkum
kratarnir sem ætluðu sér for-
manninn og komu því með
Baðinnréttingar - allar stærðir
STÍLHREIN
Sjáirðu aðra
betri þá
kaupirðu hana!
Mtfl ^iW
mi iií íil
DUGGUVOGI23 S35G09
þessar hugmyndir. Fyrst ætl-
uðu þeir sér að Hannes Ein-
arsson yrði næsti formaður
en þegar séð var að ekki væri
fylgi við það var það Ólafur
Thordersen, en allt kom fyrir
ekki, Ólafur fékk aðeins þrjú
atkvæði en mótframbjóð-
andinn, Ómar Jónsson úr
Vogum, fékk fimm atkvæði.
Einn seðill var auður. Telja
menn víst að Ólafur hafi
fengið atkvæði sitt, Keflavík-
ur og annars ríkisfulltrúans
en hinn ríkisfulltrúinn eða
jafnvel Keflvíkingurinn hafi
skilað auðu. Hin sveitarfél-
ögin, fimm að tölu, hafi öll
staðið að baki Ómari m.a. til
að sýna krötunum í tvo
heimana.
Hafnamenn á
Hafnargötunni
Þeir Hafnamenn sækja
stíft á Hafnargötuna í Kefla-
vík. Dæmi þar um er Hafna-
maðurinn Geir Reynisson í
Nesbók. Hann hefur nú
keypt verslunarhúsnæði það
sem Aþena er í og hyggst
flytja verslun sína þangað.
Nokkrum húsum neðar hef-
ur annar Hafnamaður, Ólaf-
ur Eggertsson, keypt af
kaupfélaginu hús það sem
bruni kom upp í sl. haust.
Hafa heyrst fréttir af því að í
þeim hluta sem áður hýsti
fatabúðina verði barnafata-
verslunin Aþena til húsa en
sögur herma að fyrrum
starfsstúlka Geirs í Nesbók
hafi keypt þá verslun.
Kiddi Pé við skriftir
Fréttir berast nú af því að
einn umtalaðasti tollvörður-
inn á Suðurnesjum, Kristján
Pétursson, sé nú með bók í
smíðum er greina muni frá
ýmsu er á daga hans hefur
drifíð í starfi. Verður þar án
efa margt forvitnilegt og
bókin því kannski metsölu-
bók, en höfundurinn er að
hætta störfum hjá embætti
lögreglustjórans á Keflavík-
urflugvelli.
Keflavík
verður kratatík
Það finnst mörgum nóg
um uppgang kratanna í póli-
Ólafur Eggertsson hefur
nú fest kaup á brunarústum
kaupfélagsins að Hafnar-
götu 30 í Keflavík. Virðist
þar með vera útséð með öllu
að þarna komi útivistar-
svæði. Mun hann vera byrj-
tíkinni í Keflavík. Hvað ætli
þeim fmnist þá um það að nú
um helgina fer fram heilmik-
il kratasamkoma á Flug
Hóteli, þar sem formenn
allra landsfélaga krata
koma saman ásamt ráðherr-
um og þingmannaliði flokks-
ins?
Óánægja í hverfínu
Þar sem veitingahús eru
inni í íbúðahverfum vill oft
bera á óánægju þeirra íbúa
sem eru næstu nágrannar
slíkra staða. Nú eru það ná-
grannar við veitingahúsið
Brekkuna, sem í dag heitir
víst Píanó-barinn, sem kvarta
sáran yfir hávaða og ónæði.
Virðist því staðsetningin
ekki passa alveg nógu vel.
Ómar vinnur sig
hratt upp stigann
Það eru ekki mörg ár síðan
Ómar Jónsson var óbreyttur
starfsmaður Hitaveitu Suð-
urnesja. Síðan skellti hann
sér út í bæjarmálapólitík og
áður en hann vissi af var
hann orðinn oddviti hrepps-
félagsins sem hann býr í. Nú
er svo komið að hann hefur
tekið við formennsku í stjórn
Hitaveitunnar. Má því segja
að frami hans hafi orðið
snöggur innan fyrirtækisins,
frá því að vera venjulegur
starfsmaður og enda á fáum
misserum í toppstöðunni.
Eldi h.f. í eigu
Keflavíkurbæjar
Alþýðublaðið tók viðtal
við forseta bæjarstjórnar
Keflavíkur á dögunum í til-
efni af 40 ára afmæli Kefla-
víkurbæjar. Meðal þess sem
blaðamenn blaðsins komust
að raun um og fluttu lesend-
um sínum var að Keflavíkur-
bær væri einn stærsti hlut-
hafinn í fiskeldisfyrirtækinu
Eldi h.f. Ekki er víst að
Grindvíkingar séu sáttir við
það, en hitt getum við upp-
lýst bæði Alþýðublaðið og
Önnu Margréti Guðmunds-
dóttur um að Keflavíkurbær
er stór hluthafi í Útgerðar-
félaginu Eldey h.f. Við höf-
um ekki fyrr vitað um hlut-
deildina í hinu fyrirtækinu
eða veit einhvér annar um
það?
aður á endurbótum í þeim
hluta hússins sem áður hýsti
fatadeildina, enda skemmd-
ir fremur litlar þar. Sam-
kvæmt heimildum mola
stefnir hann að því að koma
þeim hluta í leigu hið fyrsta.
Brunarústirnar endurbyggðar?