Víkurfréttir - 13.04.1989, Side 9
MÍKUn
4*UUt
Fimmtudagur 13. apríl 1989
Tveir lentu
út af
Vegna hálku á Reykjanes-
braut undir morgun á mánu-
dag urðu tvær bílveltur á
brautinni með þeint afleið-
ingum að ökutækin stöðvuð-
ust utan vegar. Bæði óhöpp-
in urðu um finnnleytið utn
morguninn.
Ökumaður bifreiðar, sem
lenti utan vegar í Kúagerði,
var fluttur á Borgarspítalann
í Reykjavík en meiðsli urðu
lítilsháttar. Hitt óhappið
varð skammt fyrir innan
Vogaafleggjara en þar urðu
engin meiðsli.
Tvennt
týndist
Lögreglan í Keflavík
þurfti um síðustu helgi að
leita að tveintur einstakling-
um er týndust. Annars vegar
var um að ræða konu en hins
vegar dreng.
Bæði fundust þau fljótlega
heil á húfi, konan eftir tvær
klukkustundir en drengur-
inn eftir eina klukkustund.
tílvunarlæti
í fjölbýlis-
húsum
Nokkur erili var hjá lög-
reglunni í Keflavík um síð-
ustu helgi en þá fékk lögregl-
an alls 56 útköll, þar af þrjú
vegna ölvunar við akstur og
sjö vegna umferðaróhappa.
Talsverð ölvun var um
helgina og nokkuð um að fá
þyrfti aðstoð lögreglu vegna
liávaða í fjölbýlishúsum.
Hefur nokkur aukning verið
á slíku upp á síðkastið.
Pöstköss-
um fjölgað
Póst- og símamálastofn-
unin hefur ákveðið að setja
upp nokkra nýja póstkassa í
Keflavík, Njarðvík og Höfn-
um. Að sögn Björgvins
Lútherssonar, símstöðvar-
stjóra, verða í Keflavík settir
upp póstkassar á nýja póst-
húsinu og því gamla, auk
eins í Hólmgarði 2. Verslun-
in Frístund hefurtekiðaðsér
að selja frímerki svo íbúar
efri hluta Keflavíkur geti
notað sér póstkassann þar.
Þá verða settir upp þrír
póstkassar í Njarðvík, þ.e.
einn við Sparisjóðinn, annar
við Þristinn og hinn þriðji í
Innri-Njarðvík. Auk þessa
verður einn póstkassi í Höfn-
um.
Varðandi póstkassana í
Keflavík og Y tri-Njarðvík þá
verða þeir tæmdir fyrir og
eftir hádegi alla virka daga.
Sá í Innri-Njarðvík einu
sinni á dag, þ.e. eftirhádegi,
og sama með Hafnakassann.
Fékk aðsvif
undir stýri
uignnoEE]
Mikil mildi var að ekki
varð stórslys á miðvikudag í
síðustu viku á Hafnargötu í
Keflavík. Ökumaður stórrar
bandarískrar bifreiðar var á
leið suður götuna er hann
fékk aðsvif. Við það fór bif-
reiðin yfir á öfugan vegar-
helming og hafnaði uppá
gangstétt við Flug Hótel, þar
sem bifreiðin stöðvaðist.
Voru bæði lögregla og
sjúkralið kvatt á vettvangen
þess reyndist sem betur fer
ekki þörf. Má það teljast
mikil mildi að enginn skyldi
verða í vegi fyrir hinni stjórn-
lausu bifreið.
Bifreiðin upp á gangstétt, iögregla og sjúkrabifreið konún á stað-
inn. Ljósm.: epj.
BILAKRINGLA
SUÐURNESJA
MIÐSTÖÐ
BÍLAVIÐSKIPTA
A SUÐURNESJUM
Bryngljáaþjónusta
Ryðvörn
Sími 14299
BÍLASALAN
Símar 14670, 14690
□AIHATSU VOLVO HONDA
IVISSAIM
<5>
&t)V
Sími 14611
$ SUZUKI
LANCIA anaa HYunoni xorando
Þjónusta fyrir Subaru,
Nissan, Oaihatsu,
Volvo, Mazda
og Honda.
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
INGÖLFS ÞORSTEINSSONAR
Sími 11266
Verið velkomin í GROFINA 8