Víkurfréttir - 13.04.1989, Side 16
VÍKUR
16 Fimmtudagur 13. apríl 1989
jUttU
HUSNÆPISSTOFNUN RÍKISINS
TÆKNIDEILD
IJTBOÐ
Nefnd sú sem sér um byggingu almennra
kaupleiguíbúða í Miðneshreppi óskar eftir
tilboðum í að fullgera einbýlishús, einnar
hæðar, byggð úr steinsteypu, auk bílskúrs.
Brúttóflatarmál húss 105,6 m2.
Brúttórúmmál húss 348,5 m3.
Brúttóflatarmál bílskúrs 50,0 m2.
Brúttórúmmál bílskúrs 145,8 m3.
Húsin standa á lóðinni Vallargötu nr. 3,
Sandgerði, og skal skila fullfrágengnum,
sbr. útboðsgögn.
Afhending útboðsgagna er á skrifstofu
Miðneshrepps, Tjarnargötu 4, Miðnes-
hreppi, og hjá tæknideild Húsnæðisstofn-
unar ríkisins, Laugavegi 77, Reykjavík, frá
þriðjudeginum 11. apríl 1989, gegn kr.
10.000,00 skilatryggingu.
Tilboðum skal skilað á sömu staði eigi síðar
en þriðjudaginn 25. apríl 1989 kl. 11:00 og
verða þau þá opnuð að viðstöddum bjóð-
endum.
F.h. bygginganefndar kaupleiguíbúða,
Tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins.
jn HUSNÆÐISSTOFNUN
Csp RÍKISINS
LJ LAUGAVEGI77101 REYKJAVÍK SÍMI 696900
Byggfiasafn Suðurnesja
Opið á laugardögum kl. 14 - 16.
Aörir tímar eftir samkomulagi.
Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769.
Anton Jónsson og Bjarni Halldórsson (t.h.) fasteignasali
einni af íbúðunum, sem nú eru til sölu.
Ljósm.
epj-
Húsagerðin:
hagkvæmu verði
Annars staðar í blaðinu er
greint frá afhendingu fjögurra
nýrra verkamannabústaða sem
Húsagerðin hefur byggt fyrir
aðeins 73% af viðmiðunarverði,
að sögn Húsnæðisstofnun-
ar ríkisins. Húsagcrðin hefur á
undanförnum árum byggt um
250 íbúðir í fjölbýlishúsum í
Kcflavík auk einnar raðhúsa-
lengju. Þar af eru um 200 íbúðir
sem þeir hafa byggt til sölu á
frjálsum markaði. Af þessu til-
efni þótti okkur rétt að taka þá
Húsagerðarmenn tali og fyrir
svörum varð framkvæmdastjór-
inn þeirra, Anton Jónsson.
Fyrsta spurningin, sem lögðvar
fyrir hann, var hvort þessi tala,
73% af viðmiðunarverði, væri
rétt?
,,Já, Húsnæðisstofnun
segir 73%, en þá eru þeirbúnir
að taka sinn fjármögnunar-
kostnað inn í, sem er 3-4%. Við
erum því í raun að afhenda
þeim íbúðir upp á 69-70% af
viðmiðunarverði."
Útboð - Dagheimili
Keflavíkurbær leitar tilboða í byggingu dagheimilis við
Heiðarbraut. Þegar er lokið gerð grunnplötu, en húsinu
skal síðan skilað tilbúnu undir tréverk. Útboðsgögn verða
afhent á skrifstofu bæjarverkfræðings, Hafnargötu 32, frá
og með fimmtudeginum 13. apríl gegn 5000 kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboðum skal skilað á sama stað fyrir kl. 14 mánudaginn
24. apríl, þar sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim
bjóðendum er þess óska.
BÆJARVERKFRÆÐINGUR
-Telsi það ekki gott?
„Það hlýtur að teljast það.
Þetta er örugglega það ódýr-
asta sem verið er með á land-
inu í dag.“
-Nú bjóðið þið til sölu á al-
mennunt markaði íbúðir íþess-
um sama stigagangi. Er verðið
á þeim svipað?
„Verðið er örlítið hærra en
þessar íbúðir eru alveg
þessar íbúðir eru alveg tilbún-
ar, allar innréttingar komnar
og búið að teppaleggja, auk
þess sem öll sameign og svæðið
fyrir utan er frágengið og því
nánast ekkert annað eftir en að
flytja inn.
Um er að ræða bæði tveggja
herbergja íbúðir og þriggja
herbergja íbúðir, alls fimm að
tölu. Tvær þeirra eru tilbúnar
nú þegar en hinar eftir um tvo
og hálfan mánuð. Stærri íbúð-
irnar, sem eru endaíbúðir,
munu kosta 4.350 þúsund en
hinar 3.681 þúsund.“
-Fylgir Húsnœðismálastjórn-
arlán þessum íbúðum?
„Nei, fólk verður að hafa
loforð fyrir Húsnæðismála-
stjórnarláni en það á rétt á að
fá 70% lánað þar, ef það kaup-
ir í fyrsta sinn. Síðan þarf það
að inna eitthvað af eigin hendi
en mismuninn lánum við á
tveggja ára skuldabréfi. Er
þetta því ákaflega létt fyrir
fólk.“
-Er mikil ásókn í fjölbýlis-
húsaíbúðir?
„Já, annars værum við ekki
búnir að byggja um 200 sölu-
íbúðir. Það sem þó hefur
stoppað þetta svolítið er
ástandið í húsnæðismálakerf-
inu, sem gerir málin þyngri
fyrir fæti. Fólk þarf að bíða of
lengi eftir loforði. Væri það
ekki, væri meiri kraftur í sölu
íbúða hérna. í dag þarf fólk að
bíða í tvö til þrjú ár eftir lof-
orði.“
-Hvað er framundan hjáykk-
ur?
„Síðasti áfanginn hér í
Heiðarholtinu. Eftirþaðferað
þrengjast um svona íbúðir. Við
eigum aðeins eftir tvær blokkir
með alls 32 íbúðum.
Eg sé fram á að þetta hverfi,
sem við erum að byggja í núna,
er að verða fullbyggt. Eins og
þróunin hefur verið undanfar-
in ár, þarf bæjarfélagið eitt-
hvað að fara að hugsa í þessum
efnum og huga að framhaldi.
Að loknum þessum áfanga
sjáum við fram á að þurfa að
byrja á nýjum áfanga í nýju
hverfi og um leið koma þessar
íbúðir til með að stórhækka.
Því hér gátum við haft í
frammi ýmsa hagræðingu
enda byggðum við hér 120
íbúðir.
í vor byrjum við á einni götu
með parhúsum Njarðvíkur-
megin við bæjarmörk Kefla-
víkur og Njarðvíkur. Þar mun-
um við byggja götuna alfarið
upp og göngum frá henni sjálf-
ir. Þarna verða 26 íbúðir í 13
mjög skemmtilegum tveggja
hæða húsum.“
Drífa í stjórn
vatnsveitunnar
Bæjarráð Keflavíkur hefur
lagt til að Drífa Sigfúsdóttir
verði þriðji fulltrúi Keflavík-
urbæjar í stjórn Vatnsveitu
Suðurnesja s.f. Á fundi
bæjarstjórnar Keflavíkur nú
á þriðjudag var þessi tillaga
samþykkt.