Víkurfréttir - 27.04.1989, Blaðsíða 3
ALLIR GETA
NOTIÐ GÓDS AF
SÍMABANKANUM, ÓHÁÐ
STAÐOGSTUND!
Símabanki sparisjóðanna er alger nýjung hér á landi,
árangursrík leið til að spara þér tíma og fyrirhöfn.
Með því að hringja úr tónvalssíma í ákveðið símanúmer
geturðu fengið margvíslegar upplýsingar um viðskipti
þín í sparisjóðnum, hvar sem er og hvenær sem er
sólarhringsins.
n Símabankinn vinnur þannig: Þú hringir og færð
samband. Síðan slærðu inn kennitölu og aðgangslykil á
símann. Þar með bjóðast þér t.d. þessir valmöguleikar:
• Upplýsingar um stöðu reiknings • upplýsingar
um síðustu hreyfingar reiknings • beiðni um
millifærslu • sparisjóðsfréttir • símapóstur o.fl.
n Símabankinn veitir þér skýra leiðsögn og nákvæmar
upplýsingar.
Viljirðu fá almenna kynningu á starfsemi símabankans
geturðu hringt, slegið inn 0123456789 sem kennitölu
og svo fjórar tölur að eigin vali. Kynningarbæklingur
liggur einnig frammi hjá sparisjóðunum.
n Símanúmer símabankans eru:
(91 >-629000, (92)-15828 og (93)-7l008
n Sparisjóðirnir sem standa að símabankanum eru:
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis,
Sparisjóður vélstjóra, Sparisjóður Kópavogs,
Sparisjóður Hafnarfjarðar, Sparisjóðurinn í
Keflavík og Sparisjóður Mýrasýslu.
SUOURNESJAMENN
HRINGJA f
15828
Sparaðu tímann og taktu upp símann!