Víkurfréttir - 27.04.1989, Blaðsíða 15
vmsmth
' ■■. ****"■? ' *«**■& "gf*1 118 -r**' •‘V'é**- . ” ^ ' íifliT* lÆl'm TÉ ' d**
Hér cr að vísu verið að brenna sinu undir eftirliti, en það dugar þó
oft ekki. Því er með öllu bannað að brenna sinu. Ljósm.i cpj.
Sinubmnavertíðin
að hefjast
Nú er sá árstími að hefjast
þegar slökkviliðin þurfa að
þeytast um allar jarðir vegna
sinubruna, en bannað er að
brenna sinu frá 1. maí og auk
þess sem hætta getur stafað
af sinubrunum þó á öðrum
tímum sé.
Fyrsta tilkynningin á
þessu vori sem Brunavarnir
Suðurnesja fengu vegna slíks
kom á sunnudag. Þar var þó
engin hætta á ferðum, þar
sem jarðeigandi í Leiru var
sjálfur að brenna sinuna
undir eftirliti.
Slökkviliðin á Suðurnesj-
um hafa síðan um helgi
fengið þó nokkur útköll
vegna sinubruna.
Vímuvarnar-
dagur Lions
Laugardaginn 6. maí 1989
er Vímuvarnadagur Lions á öll-
um Norðurlöndum. Af þvítil-
efni verður fundur í Félagsbiói
þann dag.
Vímulaus æska, foreldra-
samtök, hafa farið þess á leit
við Lionsklúbba um land allt
að þeir efni til fundar þar sem
vakin er athygli á skaðsemi
vímuefna, sem stöðugt hel-
taka fleiri ungmenni hér á
landi og um heim allan.
Það hefur verið verkefni
Lions undanfarin 4 ár að
styrkja kennsluefni Lions
Quest eða ,,að ná tökum á til-
verunni“ og hefur því verið
mjög vel tekið úti í þjóðfélag-
inu og ekki hvað síst hjá for-
eldrum.
Neysla fíkniefna og ofneysla
áfengis eru eitt erfiðasta
vandamálið sem mannkynið
stendur frammi fyrir nú á dög-
um.
Nauðsynlegt er því fyrir alla
foreldra að fræðast um skað-
semi vímuefna til þess að geta
rætt opinskátt við barnið um
þá þætti.
Það er hlutverk okkar for-
eldranna að láta framtíð barna
okkar okkur varða og ala þau
upp sem heilbrigða og ábyrga
einstaklinga. Þannig eru þeir
tilbúnir til að leggja meira af
mörkum til samfélagsins en
þeir þiggja frá því.
Fundurinn 6. maí nk. hefst kl.
14:00 og er gert ráð fyrir að
hann standi í eina og hálfa
klukkustund.
Fundarstjóri mun verða Kon-
ráð Lúðviksson læknir.
Frummælandi á fundinum
verður Jón Guðbergsson frá
Vímulausri æsku. Einnig
munu taka til máls foreldrar
og ungmenni svo og Arthúr
Farestveit, formaður vímu-
varnanefndar Lions á íslandi.
Tónlistaratriði verða frá
Tónlistarskólum Keflavíkur,
Njarðvíkur og Gerðahrepps.
Fundir þessir um land allt
hafa verið mjög vel sóttir og er
það von okkar að sem flestir
foreldrar og unglingar mæti á
fundinn.
Foreldrar spyrja oft sjálfa
sig hvað þeir geti gert til að
koma í veg fyrir vímuefna-
notkun barna sinna. Til að
svara þessu og fleiru munu
sitja fyrir svörum meðal ann-
arra Arnar Jensson, yfirmaður
fíkniefnadeildar lögreglunnar í
Reykjavík.
Lionsklúbbur Keflavíkur
og Njarðvíkur.
Lionessuklúbbur Keflavíkur
og Njarðvíkur.
Lionsklúbburinn Óðinn.
Lionsklúbburinn Garður.
Leoklúbburinn Siggi.
Vimulaus æska forddrasamtök.
Fimmtudagur 27. apri'l 1989 15
Óskum
launþegum
til hamingju
með dag
verkalýðsins.
Takið þcítt í
skemmtunum
Iðnsveinafélag
Suðumesja
Óskum
starfsmönnum
okkar og
samtökum
þeirra
til hamingju
með dag
verkalýðsins.
Keflavíkurverktakar hf.
Oskum félögum okkar
og öðrum
launþegum
til hamingju
með dag
verka-
lýðsins.
Starfsmannafélag Suðurnesjabyggða