Víkurfréttir - 27.04.1989, Blaðsíða 16
16 Fimmtudagur 27. apríl 1989
Fundir - Námskeið
Sjóefnavinnslan hf.
Aðalfundur Sjóefnavinnslunnar hf. verður
haldinn föstudaginn 28. apríl nk. kl. 17.00 í
Festi, Grindavík.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykkt-
um félagsins.
Reikningar fyrirtækisins liggja frammi á af-
greiðslu Hitaveitu Suðurnesja vikufyrirað-
alfund.
Frá ferðanefnd
Sjö daga ferð um Vestfjarðakjálkann verð-
ur farin 24. júní. Sætapantanir á afgreiðslu
S.B.K., sími 11590.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis
Námskeið
Sjálfsþekking - Sjálfsöryggi
Vitað er að andleg líðan og sjálfsöryggi er
mikilvægt fyrir einstaklinginn í starfi og
einkalífi. Tilgangur námskeiðsins er að leið-
beina einstaklingum að meta stöðu sína og
kenna árangursríkar aðferðir í samskipt-
um.
Á námskeiðinu kynnast þátttakendur:
• Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum.
• Hvernig sérstæð reynsla einstaklingsins mótar
hann
• Hverjir eru helstu áhrifaþættir í samskiptum
• Hvernig má greina og skilja fjölskyldutengsl
• Hvernig ráða má við gagnrýni
• Hvernig finna má lausnir í árekstrum
• Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi
Leiðbeinendur
eru
sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal
Námskeiðið verður haldið á Víkinni fjögur
kvöld, dagana 17. og 18. maí og 22. og 23.
maí nk., ef næg þátttaka fæst.
Innritun og nánari upplýsingar í síma
15777 frá kl. 9-16 alla virka daga til 9. maí
nk. Notið þetta einstaka tækifæri.
Stjórnin
\>imr<
jutUi
Dalvíkurbátarnir Haraldur EA 62 og Hafsteinn EA 262 við bryggju í Keflavík um síðustu helgi.
Ljósm.: epj.
Fundir - Mannfagnaðir
Stangaveiðifélag
Keflavíkur
OPIÐ HÚS
verður haldið í Iðnsveinafélagshúsinu
föstudaginn 28. apríl kl. 20:30. Gestur
fundarins verður Rafn Hafnfjörð.
Mætið vel og stundvíslega.
Nefndin
Sálarrann-
sóknarfélag Suð-
urnesja auglýsir
20 ára afmælisfundur félagsins verður hald-
inn fimmtudaginn 4. maí kl. 20:30 í húsi fél-
agsins að Túngötu 22, Keflavík. Gestir
fundarins verða séra Sigurður Haukur
Guðjónsson og skyggnilýsingamiðillinn
Þórhallur Guðmundsson.
Félagsfólk fjölmennið.
Stjórnin
1. maí fundur Alþýðubanda-
lagsins í Keflavík/Njarðvík
verður haldinn í Iðnsveinafélagshúsinu
Tjarnargötu 7 kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Ólafur G. Kristjánsson: „Lýðræðisleg
réttindi verkafólks á alþjóðagrund-
velli.“
Kynning á Pathfinder bókaforlaginu.
2. Hörður Bergmann: „Jafnaðarstefna og
kjarabarátta. Hvað þarf að endtir-
meta?“
Fundarstjóri: Jóhann Geirdal. Kaffiveit-
ingar. Allir velkomnir.
Stjórnin
A uglýsingasímar Víkurfrétta
eru 14717 og 15717.
Aflinn
fluttur
norður
í land
Undanfarnar vikur hefur
nokkuð borið á því að skreið-
arverkendur við Eyjafjörð
kaupi sjávarafla af fiskverk-
unarstöðvunum á Suður-
nesjum og aki honum til
vinnslu norður yfir heiðar.
Um síðustu helgi komu til
Keflavíkur Dalvíkurbátarn-
ir HaraldurEAogHafsteinn
EA og lönduðu aflanum hér.
Var honum síðan ekið ís-
uðum í kör norður til Dal-
víkur til vinnslu. Var annar
bátanna með 5 tonn en hinn
6,3 tonn. Eru fiskflutningar
sem þessir nokkuð fátíðir
héðan af Suðurnesjum
a.m.k.
Sandgerðishöfn:
Reykur í
Víði KE
Þegar skipverjar á Víði KE
mættu um borð í bátinn á
föstudag, urðu þeir varir við
mikinn reyk frá eldavél í
bátnum. Varbrugðistsnöggt
við og slökkvitæki fengin úr
nærliggjandi bátum, þar sem
tæki um borð virkaði ekki.
Var sprautað á eldavélina
þar til allur reykur hvarf.
Ekki mun hafa logað mikill
eldur í vélinni og skemmdir
urðu ekki miklar sökum
reyks.
Blúsbrot á
Glóðinni í kvöld
Hljómsveitin Blúsbrot
spilar á Glóðinni í kvöld.
fimmtudagskvöld, frá kl.
22:30 til 01:00. Hljómsveit-
ina skipa þeir félagar Vignir
Dagason, fæddur og uppal-
inn Keflvíkingur, LeoTorfa-
son, Olafur Stolzenwald,
Svavar Sigurðsson og Gunn-
ar Arnason. Þeir félagar
spila aðallega jass og blús.