Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.05.1989, Side 8

Víkurfréttir - 18.05.1989, Side 8
MlKUn 8 Fimmtudagur 18. maí 1989 4uUU En veistu bara.Vala mín? Kæru lesendur! Já, það birtir upp um síðir. Finnst ykkur ekki gaman að sjá grásvart malbikið aftur? Eða blettinn sem skartar sín- um fegurstu öldósum, bjór- dósum, pappakassa utan af Jaffa-appelsínum og jafnvel vel gisnu 150 sentimetra birki- tréi, sem einhver keypti á jóla- tréssölu Kiwanis-manna á Vesturbrautinni eigi alls fyrir löngu og hreinlega nennti ekki að setja það í ruslapoka eftir notkun. Nú er þetta allt saman að koma í ljós aftur, garðrækt- endum og öðrum snyrtimenn- um til mikilla ama. Eða hvað?! Er þetta ekki einmitt tíminn til þess aðskella sérút ígarð, andaaðsérfersku sjávarloftinu, róta aðeins í beðunum og losa sig við þetta margvíslega ,,ruslaskraut“ sem hverfur ekki af sjálfu sér? Eg er næstum því viss um, að þessi ógnvekjandi vetrar- drungi sem hvílt hefur á liðinu undanfarna mánuði og kaffært allflestar ferðaskrif- stofur landsmanna, myndi hverfa eins og dögg fyrir sólu eða jafnvel á hraða ljóssins „EF“ við aðeins (já, hættu að glápa á imbann!) skelltum okkur út í góða veðrið með nýju útgáfuna af ruslapokunum, sem brakar svo skemmtilega í og hirtum þennan ófögnuð við fyrsta tækifæri. Munið svo að taka endilega með ykkur börn- in því þetta finnst þeim hið mesta sport en sleppið því ef þau eru orðin meira en tólf ára! Vel á minnst, hvað um tán- ingana? Eg fór út á sjoppu fyrir frúna eitt föstudags- kvöldið (svona smá nammi til að hafa með sjónvarpinu) og renndi mér í leiðinni niður Hafnargötuna. Þvílíkt ogann- að eins mannhaf hefi ég sjald- an séð! Er virkilega enginn staður fyrir þennan geysistóra hóp af fólki til aðkomasaman og skemmta sér á, fýrir utan götuna? Sjálfur er maður alinn upp á gullaldarárum Bergás-tíma- bilsins, þegar að úrsérgengna og rafmagnslausa skólaritvél- in var óspart notuð til að falsa nafnskírteinin í massavís, án þess að Þorgeir dyravörður eða aðrir góðir félagar með breiðu bökin tækju eftir því. Já, það féllu margir svitadrop- arnir í kjallaranum um árið, en ekki bara við það að komast framhjá Þorgeiri. A dansgólf- inu perlaði allt af svita (og sennilega öðrum sterkari vökvum) og þær voru ófáar ferðirnar sem maður fór til hans Jóns í skóbúðinni, því sólarnir hreinlega slípuðust af á örfáum kvöldum. í dag heimsækja ungling- arnir Jón á annan hátt, þeir hreinlega brjóta rúðurnar hjá honum og eitt er víst að það er ekki vegna skóleysis! Nei, maður skilur krakkana ósköp vel að þau skuli vera reið yfir þessu ástandi, þó að óþarfi sé að ganga á rúður bæjarins og brjóta þær. Sá hópur er að vísu ávallt smár og ekki má dæma heildina eftir honum. Svo er ekki þar með sagt að krökkun- um þyki leiðinlegt á götunni, en ég efa það að þau myndu slá hendinni á móti einhverjum skemmtistað til að hittast á og dansa. Ef við myndum setja okkur í spor þessara krakka, þó ekki væri nema smástund, þá held ég að hinn ógnvekj- andi vetrardrungi, sem ég minntist á áður, sæti „ball- laus“ á nefmu á okkur allt árið um kring. Að lokum langar mig að minnast á þann alræmda og óstöðvandi tímaþjóf flestra manna í dag, sem virkilega er (og reyndar var hjá mér) orð- inn óþolandi: Stöð 2. Ekki nóg að þeir séu hættir að flytja fréttir af heimahögum okkar og þá helst af þeim „grænköfl- óttu“, sem aldrei vita hvort þeir séu að elta væskilslega víkinga í eggjaleit eða velvopn- aða Víetnama í varplöndum, heldur og hækka þeir afnota- gjöldin svo ört að jafnvel vísi- talan verður á eftir í mark. Sennilegasta skýringin á þessu er án efa armbanda- kaupin hennar Valgerðar, sem ætlar víst aldrei að linna. Ég hætti að lokum að styrkja þessa eimreið og nú húkir af- ruglarinn inni í kompu og bíð- ur nýs eiganda, nýs „arm- bandagreiðanda". En eitt er þó víst að eftir þennan tveggja mánaða „reynslutíma“ frá Stöðinni þá líður manni bara ósköp vel og nýtir frítímann sinn miklu bet- ur en nokkru sinni áður. Hafi Valgerður miklar þakkir fyrir! Ó, farin ertu frú mín góð, í fúlu ég þig seldi. Þú ert þó alltaf sæt og rjóð, og þörf í undaneldi. Ei lleiri armbönd færðu l'ín, úr fépyngjunni minni. Þig mun þó ekki skorta skrín, þó farinn sé að sinni. En veistu bara Vala mín, að vefja arma sína, vegur þungt og vigtin þín, verður alger pína. Kærar kveðjur, Valur Ketilsson. Grín - Gagnrýni - Vangaveltur molar Gott revíuefni Það var mikil synd að ekki skyldi einhver gamanhöf- undur vera viðstaddur síð- asta bæjarstjórnarfund í Keflavík. Því þá kom upp hið versta mál fyrir bæjar- stjórnarmenn, enda fóru þeir í hringi og það lleiri en tvo, í máli því sem um var fjallað og snerist um veitingu vín- veitingaleyfis. Lagðar voru fram tillögur, þærdregnartil baka en síðan látnar standa og fleira í þessa veru. Mikill hugur og framsækni I umræðum um ráðningu nýs framkvæmdastjóra við SBK á fundi bæjarstjórnar Keflavíkur á þriðjudag gat bæjarstjóri þess að mikill hugur og framsækni væri nú í starfsmönnum fyrirtækis- ins. Væri m.a. stefnt að því að sækja stíft inn á hópferða- markaðinn, en SBK er nú stærsti hluthafinn í BSÍ, á raunar 12,5% hlutafjár í því fyrirtæki. Gróa í Garðinum Við sögðum frá því hér í Víkurfréttum í síðustu viku að aðkomumanni hafi verið kastað út úr bifreið í Garðin- um og síðan ekið á brott. Þar sem maðurinn var skólaus varð hann fljótt sárfættur og varð því að grípa til ein- hverra ráða. Gróa á Leiti er fljót að koma með sögurnar og ganga nú ýmsar sögur um það hvað aðkomumaðurinn á að hafa gert. Ein þeirra seg- ir að maðurinn hafi verið kominn inn að rúmi hjá kon- unni en önnur saga segir að hann hafi bankað upp á í húsi einu, blindfullur, ogsíð- an tekið skó úr forstofunni. Fleiri sögur eru í gangi og það besta er að sögum ber ekki saman um hjá hvaða konu aðkomumaðurinn hafði viðkomu, en allir segj- ast sögumenn hafa sína sögu staðfesta. Njarðvík - fámennt sjávarþorp Ekki er víst að allir Njarð- víkingar séu sammála því að þessi rúmlega tiu ára gamli kaupstaður, sem talinn er miðlungsstór meðal kaup- staða landsins, sé „fámennt sjávarþorp, þar sem allir þekkja alla“. Þetta var þó lýsing fegurðardrottningar Suðurnesja og 5. fallegustu stúlku landsins á krýningar- kvöldi Fegurðardrottningar íslands. Því er spurningin hvort hún hafi óvart ruglast á einhverju hinna fjögurra þorpa á Suðurnesjum, sem enn hafa ekki hlotið kaup- staðarréttindi. Ærið verkefni... Það virðist engin hætta vera á því að sá fulltrúi Heil- brigðiseftirlits Suðurnesja, sem sér um umhverfismál, verði verkefnalaus á næst- unni. Ef marka má fréttir hafa verið klippt númer af vel á annað hundrað bifreið- um það sem af er árinu 1989. Þetta þýðir að vel á annað hundrað bílflök eru víðsveg- ar um svæðið sem fjarlægja þarf. Því þeir eru fáir bíleig- endurnir sem hafa rænu á að koma númeralausum bílum í Sorpeyðingarstöðina. Flest- ir leyfa þeim ýmist að vera þar sem af þeim var klippt, eða henda þeim úti á víða- vangi eða til einhvers aðila s.s. verkstæðis, sem safnar að sér bílflökum. Má það furðu sæta hve margir þeir eru sem ekki hafa rænu á að koma flökunum á réttan stað og því fær fulltrúinn framan- greindi óþarflega mikil verk- efni á næstunni. ...á víðavangi Fátt er ömurlegra en aðsjá bílflök á víðavangi, sem spilla þar með óskertri nátt- úrunni. Því miður er þetta þó allt of algeng sjón, sem staf- ar af því að við hin gerum ekkert í að upplýsa hverjir henda bílum sínum með þessum hætti. Þetta ættum við að taka til athugunar. 100 umsækjendur? Hin miklu og góðu launa- kjör fráfarandi stjórnarfor- manns íslenskra aðalverk- taka hafa aukið áhuga manna fyrir stól þessum svo um munar. Hafa heyrst raddir um að eigi færri en 100 manns hafi gefið kost á sér til starfans og lái ég engum þó hann sæki um. En hvað um það, menn bíða nú spenntir eftir því hvort það verði Suð- urnesjamenn eða Reykjavík- uraðallinn sem fá bitann, kratar eða framsóknarmenn. Skammstafana- ruglingur Oft vilja hinar ýmsu skammstafanir félagasam- taka og stofnana veíjast fyr- ir mönnum. Tökum sem dæmi skammstafanir stéttar- félaga. Fyrir 1. maí birtist m.a. auglýsing í blaði einu hér suður með sjó um dag- skrá hátíðarhaldanna þann dag. Þar birtust rangar skammstafanir Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavík- ur og nágrennis og Starfs- mannafélags Kellavíkurbæj- ar. Að vísu var umrætt tilvik ekki viðkomandi blaði að kenna, heldur var handritið, sem búið hafði verið til á skrifstofu VSFK, með um- ræddum villum. Við hér tók- um eftir því og gátum því leiðrétt. Nú í síðustu viku birti hitt blaðið auglýsingu frá matvöruverslun þar sem aftur kom röng skammstöf- un VSFK og nú enn ein út- gáfan. Ólafur á Dísarnöfnin Það kom mörgum að óvörum er nýjasta þota Flugleiða bar nafnið Aldís. Jafnframt munu þær þotur sem væntanlegar eru bera dísar-nöfn. Hugmyndin að þessari nafngift er komin frá Keflvíkingi, Ólafi Marteins- syni (Árnasonar í Bókabúð- inni). Til hamingju Stöð 2! Jæja, það kom að því að fréttastofa Stöðvar 2 gerði sér grein fyrir því að til væri landssvæði sem héti Suður- nes. Af því tilefni var frétta- sveit send suður Keflavíkur- veg, já Keflavíkurveg, ekki Reykjanesbraut eins og við hin ökum. Kom þetta í ljós á föstudagskvöld en ekki var tilefnið þó sérstaklega upp- byggjandi fyrir sVæðið, þá loks að fréttadeildin mundi eftir því: Stöðin er komin inn á herinn með hluta af dag- skrá sinni. Vonandi fer stöð- in þó að gera sér grein fyrir að ýmislegt fréttnæmt gerist í byggðunum hér suður með sjó. ...en hvað með ættjörðina? Þó Suðurnesin séu algjör- Umsjón: Emil Páll lega týnd á korti fréttadeild- ar Stöðvar 2 ætti sjónvarps- stjórinn þeirra, Jón Óttar Ragnarsson, að leiða hugann þessa dagana hingað suður til „ættjarðar" eiginkonunn- ar, sem hann kvæntist um síðustu helgi. Eiginkonan er Elva Gísladóttir, Alfreðs- sonar leikara. Eða með öðr- um orðum sonardóttir Al- freðs heitins Gíslasonar, fyrrum bæjarfógeta, og Vig- dísar Jakobsdóttur. 90 milljónir til Eldeyjar í miklu viðtali Morgun- blaðsins við Thor Thors framkvæmdastjóra ÍAV í gær kemur fram, að fyrirtæk- ið hefur bjurgað Eldey hf. um 90 milljónir með einum eða öðrum hætti. Segir hann að þar hafl pólitsíkum þrýstingi verið beitt. Hann segir hins vegar ekkert frá hræðslu- bandalagi fyrirtækisins sem upp kom í kjölfar fréttar Stöðvar 2 um laun stjórnar- formannsins. En þá um leið dró fyrirtækið við sig að Ijár- festa í stórri byggingu í Kellavík, að sögn almanna- róms. Hver láir fyrirtækinu þó þeir kannski veiti Ijár- magni fyrir nokkur hundruð milljónir lil Suðurnesja á meðan á þriðja milljarða fer til Reykjavíkur? Stöðvast Framsókn? Fróðir menn. um skipun utanríkisráðherra i stöður stjórnarmanna hjá ÍAV.sem færu með umboð rikisins, telja að krafa Framsóknar um annað sætið liafi valdið óeðlilegum drætti á skipun í embætti þessi. En talið er að fulltrúi Framsóknar yrði Páll Jónsson, sparisjóðs- stjóri.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.