Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.05.1989, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 18.05.1989, Blaðsíða 20
i'ir.iiuuíitm Fimmtudagur 18. maí 1989 AFGREIÐSLA BLAÐSINS er að Vallargötu 15 - Símar 14717, 15717. Kaupa Aðalverktakar Sparisjóðshúsið? Sem kunnugt er hefur sparisjóðurinn ákvcðið að selja nýbyggingu sína við Ijarnargötu, alla eða að hluta, vegna gjörbreyttra að- stæðna frá því hafin var bygging hússins. Vegna þessara hugmvnda leitaði sparisjóðurinn m.a. til allflestra launþegafélaga hér á svæðinu. Nú er hinsvegar orðrómur uppi um það, á svæðinu að Aðalverktakar hugleiði kaup á öllu húsinu en sparisjóðurinn leigi fyrstu hæð og kjallara. Jafnframt hefur blaðið frétt að bæjarsjóður Kefla- víkur hafi áhuga á að leigja efri hæðirnar. Ef þessi orðrómur er rétt- ur er hann hinn ánægjuleg- asti, því þá er brotið blað í fjárfestingasögu Islenskra Vörður hæstur „Fækkun báta stóralvarlegt mál“, segir Jón Ragnarsson, Aflakóngur Suðurnesja 1989“ Fjórar bíl- veltur á ör- fáum dögum Bakkus við stýrið í þrem tilfellum Á örfáum dögum í siðustu viku þurfti lögreglan I Kella- vík að hafa afskipti af Ijórum bílveltum, þar af þrcmur á eða við Reykjanesbraut. Fyrsta bílveltan varð að- faranótt miðvikudagsins í síðustu viku á Reykjanes- braut, skammt frá Grinda- vikurvegi. Þar slösuðust far- þegi og ökumaður lítilshátt- ar og ökumaðurinn er grun- aður um meinta ölvun við akstur. Nákvæmlega átta klukkustundum síðar varð banaslys á þessum sama stað og þar var ökumaður með Bakkus meðferðis. Þá varð bílvelta á laugar- dag nálægt Vogaafleggjara, en'Bakkus komsem bcturfcr þar hvergi nærri. Hann hjálpaði hins vegar til á Halnargötunni í Keflavík á hvítasunnudag. Farsíma og lyfjum stolið Brotist var inn i Haförn BA, þar sem báturinn lá í Grindavíkurhöfn á þríðju- dag i síðustu viku. Var far- síma og lyfjum stolið úr bátnum. Innbrotið ogþjófnaðurinn er nú í höndum lögreglunn- ar í Grindavík og þegarsam- band var haft við lögreglu á þriðjudag var málið enn óupplýst. Þeir sem upplýs- ingar geta veitt eru beðnir að snúa sér til lögreglunnar í Grindavík. 1 1 Þessi vertíð var erfið fram- an af og mikil ótíð,“ sagði Aflakóngur Suðurnesja 1989 í samtali við blaðið. Vörður ÞH varð aflahæstur Suður- nesjabáta á nýliðinni vetrar- vertíð en samkVæmt bráða- birgðatölum frá hafnarvog- inni í Grindavík landaði skipið samtals 1106 tonnum. Jón Ragnarsson heitir skipstjórinn á Verði og tók- um við hann tali um borð í aflaskipinu nú á þriðjudag. „Það hefur verið mikið brim hér í Grindavík, með því meira sem maður man eftir í langan tíma. Þrátt fyr- ir veðrið, þá er þetta mesti afli sem ég hef fengið í nokk- ur ár. Vertíðarnar hafa verið daprar hér á Suðurnesjum undanfarin ár, en þetta er eitthvað að skána.“ Jón sagði að Vörður væri eingöngu á netum, hann væri lítið fyrir að snerta á línunni. „Við höfum aðallega haldið okkur á heimaslóðum s.s. Selvogsbanka og Reykjanes- grunni. Við erum tíu um borð og þetta er allt góður mannskapur. Eg hef mikið til haldið sömu mönnunum ár eftir ár og þarf aldrei að leita mér að mannskap." -Nú hefur vertíðin verið erf- ið, en síðan fiskast vel þegar bátar hafa komist á sjóinn. Hvenœr fékkst þú mestan afl- ann? „Veiðarnar byrjuðu að glæðast í endaðan febrúar en þá kom góður kippur í ufsa- fiskiríið. Uppistaða aflans hjá mér er ufsi, þorskur og ýsa,. Þetta er allt góður fisk- ur.*‘ -Bátum hefur fœkkað mikið í Suðurnesjaflotanum. Hvað finnst aflakónginum um þá þróun mála? „Fækkun báta hér á Suð- urnesjum er stóralvarlegt mál. Til dæmis er búið að selja marga humarbáta héð- an frá Grindavík og mikinn humarkvóta. Humarbátum hér hefur fækkað um sjö frá því í fyrra, þannig að hér eru alvarlegir hlutir að gerast. Það er ekki orðinn svipur hjá sjón að sjá Suðurnesja- flotann, frá því sem hann var, en það er bara að vona að þetta lagist,“ sagði Jón Ragnarsson, aflakóngur Suðurnesja 1989, að end- ingu. Jón Ragnarsson, skipstjóri á Verði ÞH, en það skip ergert út af Hf. Gjögri í Grindavik. Áhöfn skipsins aflaði 1106 tonna á nýliðinni vetrarvertíð, samkvæmt bráðabirgðatölum. Ljósm.: hbb I —^ Jliti TRÉ Í...W : /v TRÉ-X INNIHURÐIR TRÉ-X BYGGINGAVÖRUR IÐAVÖLLUM 7 KEFLAVÍK SÍMI 14700 í aðalverktaka, sem er stærsti atvinnuveitandi Suðurnesja- manna, þar sem 5-600 manns hafa árlega stundað störf á þeirra vegum, margir óslitið í áratugi. „Fólk meðvitað um rétt sinn“ í kvöld verður haldinn í Holtaskóla í Kcflavík kynn- ingarfundur um Neytenda- samtökin. Mun Jóhannes Gunnarsson, formaðursant- takanna, mæta á fundinn. Mjög mikil og greinileg vakning hefur orðið að und- anlornu, að sögn forráða- manna samtakanna. varð- andi mál þessi „og fólk er mjög meðvitað um að það hafi einhvern rétt í þessum málum.“ Verði undirtektir á fund- inum góðar er reiknað með að innan tíðar verði stofnað sérstakt neytendafélag hér á Suðurnesjum. Nú þegar eru um eitt þúsund Suðurnesja- nienn félagar í Neytenda- samtökunum. Annars staðar í blaðinu birtist auglýsing um fundinn þar sem nánar er greint frá tildrögum hans. Skotmenn á ferð Lögreglan í Grindavík þurfti tvívegis að hafa af- skipti af skotmönnum í síð- ustu viku. Var í bæði skiptin um að ræða menn sem voru að skjóta í landi Hrauns við Grindavík. Voru skotvopnin gerð upptæk. Skal það enn áréttað hér í blaðinu að öll meðferð skot- vopna er bönnuð á Suður- nesjum, nema með sérstöku leyfi. Skál fyrir I lermanni og bæjarstjórninni, eða þannig, sko . . .

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.