Víkurfréttir - 26.05.1989, Side 5
KEFLAVÍK 40 ÁRA
byggingavöruverslun
Alhlíða
Byggingavöruverslunin Járn &
Skip laetur e.t.v. ekki mikið yfir
sér þar sem hún er við höfnina í
Keflavík. Þessi verslun er þó ein
fjölbreyttasta byggingavöruversl-
un landsins. Þar fást flestar bygg-
ingavörur, jafnt grófvara s.s. timb-
ur og allt inn í húsið s.s. hreinlætis-
tæki, teppi, parket og dúkar, pípu-
lagningavörur, málning, verkfæri
o.sv.frv. Auk þess er hægt að fá þar
útgerðarvörur, einkum fyrir
smærri báta, vinnugalla og mikið
úrval garðyrkjuáhalda.
Kjörorð starfsfólksins er „Við
reynum að eiga það sem þig vant-
ar, en það sem við eigum ekki út-
vegum við“.
En hvernig verslun er Járn & Skip?
Magnús Brimar Jóhannsson, verslun-
arstjóri: „Við viljum að minnsta
kosti að hún sé góð verslun. Það er
mikið kapp lagt á það af öllu starfs-
fólki að sinna þeim þörfum sem hús-
byggingar og viðhald fasteigna kalla
á. Eg tel að við getum í flestum tilvik-
um útvegað þá vöru sem rnenn þurfa
að fá, að vísu getur engin ein verslun
átt miklar birgðir af öllum þeim hlut-
um sem viðskiptavinir okkar þurfa,
en með tiltölulega stuttum fyrirvara
getum við þá útvegað vöruna.
-Nú er oft talað um markaðshlut-
deild. Hvað telur þú ykkur hafa stór-
an hluta af Suðurnesjamarkaðinumf
„Ef við tölum um Suðurnesin öll,
þá tel ég að við séum með u.þ.b.
helming. Aðrar verslanir hér á svæð-
inu eru svo með nokkurn hluta og svo
er alltaf nokkuð um það að Suður-
nesjamenn sæki á höfuðborgarsvæð-
ið.“
horgarsvceðið, erþað vegna þess að þið
standið ykkur ekki nógu velf
„Þessu er ekki gott að svara svo
tæmandi sé, en það eru alltaf til menn
sem telja grasið grænna hinum megin
við lækinn og ég tel að þeir séu að
leita langt yfir skammt. Svo er ekki
vafi á því að stundum er hægt að ná
hagkvæmum viðskiptum, einkum ef
um mikið magn er að ræða. Hins veg-
ar er ég hræddur um að í þeim tilvik-
um sé einungis hugsað til skamms
tíma. Það kemur oft að því að það
vantar viðbót eða keypt hefur verið
of mikið og því þarf að skila vöru og
of mikið og því þarf að skila vöru og
ef það þarf að fara til Reykjavíkur til
þess er hagnaðurinn fljóturað hverfa.
Einnig held ég að það sé mjög mikil-
vægt fyrir þá aðila, sem eru í einhverj-
um framkvæmdum, að hafa sem víð-
tækasta þjónustu hér og því betur
sem Suðurnesjamenn standa með
okkur, því betur getum við þjónað
þeirn.
-Hvers vegna sxkja menn á höfuð-
Magnús Brimar Jóhannsson, verslunarstjóri.
Kolbeinn Pálsson ásamt Eiríki Barkar-
syni og Héðni Skjaldarsyni í portinu.
Timbur og járn
í portinu
„Það er alltaf líf í portinu en það
hefur samt mikið breyst,“ sagði
Kolbeinn Pálsson, aðal „portari“
kaupfélagsins í 18 ár.
„Já, nú eru þetta aðallega verk-
takar enda eru það þeir sem byggja
í dag. Það hefur minnkað stórlega
að einstaklingar byggi sjálfir.“ Þá
sagði Kolbeinn að byggingarað-
ferðir hefðu einnig breyst í tímans
rás. Nú væri þessu slegið upp í flek-
um og því hefði timburnotkun
minnkað við húsbyggingar. En
hvað er Kolbeinn með í portinu?
„Við erum með allt þetta grófa efni
eins og timbur, steypujárn, grind-
arefni, lista og krossviðs- og spóna-
plötur,“ sagði Kolbeinn Pálsson,
yfirportari.
Blöndunartækin
að tískuvöru
„Það hefur orðið talsverð breyt-
ing í dúkunum en mesta byltingin
varð þó þegar blöndunartækin
urðu að tískuvöru,“ sagði Haf-
steinn Magnússon sem lengst af
hefur haft yfirumsjón með teppa-,
dúka-, baðvöru- og hreinlætis-
tækjadeild í Járn og Skip. Haf-
steinn er einn af elstu starfsmönn-
um fyrirtækisins og hefur starfað í
21 ár í Járn & Skip.
„Mér finnst samt fólk oft mjög
vanafast. Það varð þó mikill kipp-
ur í parketsölu fyrir nokkrum ár-
um og teppin duttu aðeins niður að
sama skapi, en hefur jafnast aftur.
Þau hafa þó lítið breyst. Það hafa
dúkarnir hins vegar gert. Nú er
hægt að fá ,,sjálfleggjandi“ dúka
með nnikilli einangrun, þannig að
lím er óþarft.
Þúsundþjala-
smiðurinn
í „fittings“
„Það er skemmtilegast að eiga
við þessi flóknu dæmi sem oft vilja
koma upp, sérstaklega í gömlum
húsum“, sagði Ríkharður Pescia,
eða Rikki í fittings, eins og hann er
jafnan kallaður.
1 Járn &Skiperhægtaðfáallttil
alls hvað pípulagnir varðar, í
skolp, rennur og rennufittings.
„Ég kann vel við mig hérna,“ sagði
Rikki, sem er af erlendu bergi brot-
inn en hefur búið lengst af á Suður-
nesjum, „þetta eru fínir strákar,
þessir píparar, enda þekkir maður
orðið þá flesta,“ sagði Ríkharður,
sem hefur fengið orð á sig fyrir
lipra þjónustu og útsjónarsemi.
Sigurður Sturluson,
elsti starfsmaður í Járn og Skip.
„Stærsta breytingin
í vöruvali“
„Jú, það hefur orðið mikil bylt-
ing á þessum 29 árum sem ég hef
verið í Járn & Skip, aðallega þó í
vöruvali sem hefur aukist mikið,“
sagði Sigurður Sturluson, elsti
starfsmaðurinn í Járn & Skip, en
hann var verslunarstjóri í 24 ár, frá
1959 til 1983.
„Við byrjuðum á Vatnsnestorgi
en fluttum hingað á Víkurbraut-
ina um 1970. Það varð síðan stökk-
breyting þegar við tókum portið í
gagnið undir timbrið og sement-
ið.“
Sigurður segir að lengst af hafi
verslunin búið við mikil þrengsli
enda traffík oft mikil. „Þetta var
nú svolítið annað í gamla daga. Þá
voru engir dráttarvextir reiknaðir
á skuldirnar enda engin lánskjara-
vísitala heldur. Einnig finnst mér
þjónustan hafa breyst í hlutfalli
við stærðaraukninguna, hún er
allt öðruvísi og ekki eins persónu-
leg,“ sagði Sigurður, sem vinnur
núna hlutastarf í Járn & Skip
Hafsteinn Magnússon sker teppi Rikharður Pecia, þúsundþjala-
fyrir viðskiptavin. smiðurinn í „fittings“.