Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.05.1989, Qupperneq 7

Víkurfréttir - 26.05.1989, Qupperneq 7
mmihimi • yömverft i wgrmrki önnur er þrjú sumur á síldveiðum, 2 sumur á Sæbirni með Olafi Júlíus- syni og eitt sumar með Halldóri Sig- urðssyni á Vébirninum. Þar varégað- stoðarmaður skipstjóra. Hann átti erfitt með að fara í bátana, þegar kast- að var. Til að gera ekki upp á milli þeirra manna, sem höfðu verið í skip- rúmi hjá honum í mörg ár, valdi hann mig, nýliðann, til að stýra öðrum bátnum og enginn hafði neitt við það að athuga.“ Fólk stóð í biðröðum við verslanir Þegar Gunnar hóf störf hjá Kaup- félagi Suðurnesja var mikill vöru- skortur. Tímabil skömmtunar var ekki liðið. Nánast var barist um sum- ar vörutegundir, bæði hjá heildsölum og síðan mynduðust biðraðir þegar varan var komin í búðirnar. Föt, kæli- skápar, rafmagnseldavélar og fleira voru eftirsóttar vörur, sem menn stóðu í biðröðum næturlangt til að fá. Stundum var kannski allt uppselt þegar menn loksins komust að, tjáði Gunnar að hann vildi ekki lifa þá tíma upp aftur. Nú er nóg framboð á öllu, jafnvel of mikið, og af tvennu er skárra að hafa nóg magn og úrval en að það vanti. Handskrifað blað lesið á fundunum Að Gunnar helgaði Samvinnu- hreyfingunni starfsævi sína, var hún honum hugsjón? „Eg hefveriðfélags- lega sinnaður allt frá bernsku. 10 ára að aldri gekk ég í íþrótta- og mál- fundafélagið Armann, sem var í Eyr- arhreppi við Djúp, en ég átti heima á Góustöðum. Þar gátu allir sem vildu, allt frá lOára til 70ára, tjáð sig í handskrifuðu blaði, sem Neisti hét. Blaðið var lesið upp á fundum en ekki skrifaði ég neitt í það, að ég man. Aðalíþróttin var skíði,- einnig leik- listarstarfsemi. I þessum félagslega anda mótaðist ég svo aðeðlilega valdi ég samvinnubrautina og skólann, þegar ég hugði á lengra nám.“ í mörgum nefndum og ráðum Gunnar hefur upplifað tíma mik- illa breytinga og framfara á Suður- nesjum og tekið virkan þátt f þeim með ýmsum hætti, í starfi sem og áhugamálum. Um tíma sat hann í mjög mörgum nefndum og stjórnum félaga og félagasamtaka. Hvað er Gunnari eftirminnilegast frá þessum tímum? „Malbikun Hafnargötunnar, sem gerbreytti bæjarsvipnum, kaup á Hraðfrystihúsi Keflavíkur og þegar við byggðum Samkaup. Þetta voru stórir áfangar. Menn veltu talsvert fyrir sér hvernig Samkaupshúsið ætti að vera. Sumir vildu byggja á tveimur hæðum. Arkitektinn kom með tillögu um sex þverris, fallegt en dýrt í byggingu. Einnig kom fram hug- mynd um fimm hús með yfirbyggðri göngugötu eða torgi á milli þeirra. Skemmtileg tillaga en óhagkvæm,“ segir Gunnar. Fjölbrautaskólinn, grett- istak í menntunarmálum Þær nefndir sem Gunnar hefur starfað í eru flestar á vegum bæjarfél- agsins. Sú nefnd sem hann segist hafa haft mesta ánægju af að starfa í er Fjölbrautaskólanefndin. I þeirri nefnd var Gunnarformaðurfyrstu 10 KEFLAVÍK 40 ÁRA árin, þegar lyft var grettistaki í menntunar- og menningarmálum Suðurnesja. „Hvar hugmyndin um fjölbrautaskólann vaknaði veit ég ekki, en ég man að við í málfundafél- aginu FAXA ræddum hana á fund- um. Hún var rædd víðar, menn voru jákvæðir, en hægt gekk. Loks var ályktað að gera tilraun og setja á stofn undirbúningsdeild og stíga skrefið til fulls.“ Og nú má lesa örlítið stolt úr svip Gunnars, sem er farinn að ókyrr- ast í stólnum. „Nú verð ég víst að þjóta á Rotaryfund,“ en rneðan geng- ið er til dyra og niður stigann í kaup- félagsskrifstofunni, notar Gunnar tímann til að lýsa kynnum sínum af Suðurnesjamönnum, allt frá þvf að hann dvaldi hjá Oddgeiri Péturssyni og Þórhildi Valdimarsdóttur fyrstu misserin í Keflavík. Borðaði hjá Guð- nýju Ásberg, eins og margir borgarar í Keflavík. Þar kynntist hann mörg- um og með þeim fyrstu voru Loftur Loftsson, útgerðarmaður, Kjartan Steingrímsson og Jón Asgeirsson, seinna sveitarstjóri í Njarðvík. Sendlar kaupfélagsins hafa margir komist til metorða Samstarfsmenn gegnum tíðina eru honum ofarlega í huga fyrir utan þá sem enn eru starfandi, eins og Guðni Guðleifsson, Gunnar Arna- son. Fyrsta stjórn kaupfélagsins sem hann kynntist, þeir Ragnar Guðleifs- son, Kristinn Jónsson á Loftsstöð- .. „Nánast var barist um sumar vöruteg- undirnar. Menn stóðu í biðröðum nætur- langt. Stundum var allt uppselt þegar fólk kornst að . . . “ um, Hallgrímur Th. Björnsson, Guðni Magnússon. Sendlarnir á reið- hjólununi; þessi horfna atvinnugrein ungmenna setti sinn svip á bæinn,-jú og komið gat fyrir að sleðar voru not- aðir að vetrarlagi. Margir sendlarnir hafa komist til metorða í þjóðfélag- inu, eins og Guðfinnur Sigurvinsson, núverandi bæjarstjóri í Keflavík, sem komu um stundarsakir til afleysinga í skólafríum. En fieiri hafa þar komið við sögu ef betur er skoðað. Ekki má gleyma því að Guðjón Stefánsson, núverandi kaupfélagsstjóri, byrjaði kornungur í sendilsstarfinu og hefur unnið hjá kaupfélaginu síðan, að Samvinnuskólaárunum undanskild- um. Hann gerþekkir því rekstur fyr- irtækisins á ölíum stigum. Sameinum sveitarfélögin á Suðurnesjum Áður en sagt er skilið við Gunnar á Vatnsnestorginu, leitar hugurinn stundum vestur á bernskustöðvarn- ar? „Ekki hugurinn, ég fer þangað á hverju ári í eigin persónu, en ég er fyrir löngu orðinn Suðurnesjamaður í mér. Og það sem við þurfum að gera nú er að sameina sveitarfélögin á Suð- urnesjum. Tilvalið er að kanna vilja fólks í hverju sveitarfélagið í næstu bæjar- og sveitarstjórnarkosningum. Því tækifæri má engan veginn sleppa. Í framhaldi af því mætti svo vinna að sameiningunni, sem það vilji manna.“

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.