Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.05.1989, Page 11

Víkurfréttir - 26.05.1989, Page 11
MÍKW jtittu Þetta var ■mikill harmleikur sem snerti marga í litlu þorpi. Séra Bryn- jólfur á Stað í Grindavík messaði fyrstu messuna eftir slysið. Þá stóðu tvær kistur í kórnum. I annari voru jarðneskar leifar fjögurra barna, og í hinni gömul kona með barnabarn sitt. Sóknarpresturinn, séra Eiríkur, lá þá stórslasaður ásamt fjölda ann- arra á sjúkrahúsi í Reykjavík. Þetta var erfið stund fyrir prest og kirkju- gesti. Þá var sunginn sálmur sem ég bef munað æ síðan. Kom, huggari, mig hugga þú, kom, hönd, og bind um sárin, kom, dögg, og svala sálu nú, kom, sól, og þerra tárin, kom, hjartans heilsulind, kom, heilög fyrirmynd, kom, ljós, og lýstu mér, kom, líf, er ævin þver, kom, eilífð, bak við árin. Og Guð bænheyrði Keflvíkinga þeg- ar þessi sálmur var sunginn.“ „ ... í mínum huga er Keflavík mjög frá- brugðin öðrum bæj- um, þó að hún hafi verið lítið pláss eins og Akranes, Isafjörð- ur, Bolungarvík og Grindavík. Það tókst aldrei neinum að eignast hana Kefla- vík. Við eignuðumst aldrei neinn Einar Guðfinnsson, Har- ald Böðvarsson eða Einar í Garðhús- -Voru menn beiskir út í Guö? „Nei, ég held að það fólk sem fæð- ist og elst upp við sjávarsíðuna og verður fyrir svona ástvinamissi kenni aldrei Guði um eða verði biturt út í Hann. -Hvernig var almennt trúarlíf í Keflavík? „Kirkjusókn var nokkuð góð. Þetta var nú það eina sem hún amma sáluga stundaði af félagslífi. Hún fór aldrei á neinar samkomur nema í kirkju, alltaf þegar messað var. Þá fór hún í danska skó en hún gekk annars alltaf í íslenskum skóm sem hún saumaði sjálf. Eg man líka þegar út- varpið kom, þá kom hún heim til að hlusta á útvarpsmessuna. Þá sat hún með sálmabókina fyrir framan út- varpstækið og hreyfði sig ekki, stóð upp þegar guðspjallið var lesið og vildi ekki hafa neinn hávaða á meðan hún hlustaði á messuna. Amma gaf mér líka mikið öryggi. Hún hlúði að í mér þeim trúarneista sem Guð kveikir í hjarta hvers manns.“ -Nú hefur Halldór Laxness skrifaö frcega sögu um atvik sem henti ömmu þína, Söguna af brauðinu dýra. Hver var þessi amma þín? KEFLAVÍK 40 ÁRA „Hún bjó í sínum bæ á Aðalgöt- unni. Hún hét Gróa Jónsdóttir, en Halldór breytti nafninu hennar í Guðrún Jónsdóttir. Þetta er sönn saga af henni. Hún villtist í þoku í Krísuvík, þar sem hún var vistuð vinnukona 16 árahjá gömlum útvegs- bónda á Nýjabæ í Krísuvík. Hún var send með deig í fötu eins og segir í sögunni til þess að grafa í heitan sand- inn við hverinn og átti að koma með brauð sem þegar var úr hverasandin- um. Á meðan skall á þessi þoka. Amma var ókunnug þarna og villtist, og það var ekki fyrr en að morgni fjórða dags að hún fannst. Eg bað hana mjög oft um að segja mér þessa sögu, kannski hefur það verið leikar- inn í mér. Hún snart mig mjög þessi saga og ég fann svo til með ömmu að ég fór alltaf að gráta. Eg spurði hana hvers vegna hún borðaði ekki brauð- ið og hún svaraði, maður boröar ekki það sem manni er trúað fyrir. Egheld að þetta hafi verið metnaður hjá henni. Hún var fátæk en trúmennska og heiðarleiki voru henni í blóð bor- in. Amma og afi byrjuðu sinn búskap í fjörukambinum á Gufuskálum í Leir- unni. Þar byrja þau sinn búskap í þurrabúðarkoti og eignast þar sín fyrstu fjögur börn. Þetta hefur verið ömurlegt líf þarna. Þau voru rétt- indalaust fólk og áttu ekkert. Þau voru upp á náð og miskunn Iandeig- andans og útgerðarmannsins komin. Þessir menn kærðu sig ekkert um að það risu kauptún og að fólk yrði sjálf- stætt og gæti farið að selja vinnu sína þeim sem byði hæst og samið um kaup og kjör. Samið um líf sitt. I mínum huga er Keflavík mjög frá- brugðin öðrum bæjum þó að hún hafi verið lítið pláss eins og Akranes, Isa- fjörður, Bolungarvík, Grindavík o.sv.frv. Það tókst aldrei neinum að eignast hana Keflavík. Við eignuð- umst aldrei neinn Einar Guðfinns- son, Harald Böðvarsson eða Einar í Garðhúsum, þessa stórlaxa sem eign- uðust plássin." -Var þaö kannski þessari almennu einstaklingshyggju Keflvíkinga aö þakka? „Já, það má vel vera. Þetta var á höndum fleiri aðila sem að ég held að hafi verið mjög gott fyrir okkur. En það er annað verra sem gerist hér. Vegna sundurþykkju Suðurnesja- manna nær Reykjavíkurvaldið of- boðslega miklum völdum á öllum framförum hér suðurfrá. Við erumað hneykslast á því í sögunni sem við þekkjum þegar að Danakonungur innleiðir hérna einokun árið 1602, og í tvær aldir blóðmjólkaði hann ís- lensku þjóðina. Og hvað skeður? Það er ekki skildingur skilinn eftir hér í þessari nýlendu Danakonungs. Það er allt tekið út úr landinu og farið með til Kaupmannahafnar. Það eru byggðar hallir og það er eins og Hall- dór segir, hún var lýst með íslenskum grút þessi borg, það voru brotnar kirkjuklukkur til þess að bræða upp í fallbyssur og klæða koparþök turn- anna og hallanna í Kaupmannahöfn. Allt er tekið af Islendingum og okk- ur svíður. Við gerum okkur grein fyrir þessu mikla arðráni sem á sér stað hjá einni þjóð gagnvart annari. En hvað skeður svo með Suðurnesja- menn? Þeir horfa og þegja og láta Reykjavíkurvaldið komast upp með nákvæmlega sama arðránið gagnvart sér. Það er gífurlega mikil atvinna sem skapast í kringum flugvöllinn og allt það hermang sem við verðum að sitja uppi með. En hvar er svo arður- inn? Inná Artúnshöfða í Reykjavík. Þar er byggt. Fyrir hvað? Arðránið á Suðurnesjum. Það vantaði stjórn- málamenn og félagasamtök til að gæta hagsmuna Suðurnesjanna betur en gert hefur verið.“ -Áttu eftir aö flytja aftur til Kefla- víkur? „Nei, það held ég nú ekki. Ég held að það skipti ekki svo miklu hvar maður býr, hvar maðurendar ævi sína svo framarlega sem maður lætur eitt- hvað gott af sér leiða þau ár sem eftir lifa.“ VISSIR ÞÚ... ... að í ofviðri, sem gerði snemma árs 1956, stór- skemmdist gamla haískipa- bryggjan í Keflavík. Bryggj- an var byggð í kringum 1936 og var hún talin óheppileg til afskipunar og stórhœttuleg stœrri skipum ef eitthvað var að veðri. VISSIR ÞÚ... ... að Guðni Kjartansson var kjörinn „íþróttamaðurársins 1973" í kjöri íþróttafrétta- manna. Það var Jón Asgeirs- son, formaður samtaka íþróttafréttamanna, sem afhentiGuðna verðlaunabik- arinn. Þetta ár unnu Keflvík- ingar öll verðlaun sem keppt var um nema Bikarkeppnina. VISSIR ÞÚ... ... að íbúatalá í Keflavík var komin í 5977 1. desember 1973, sem var tveggja pró- senta aukning frá fyrra ári... VISSIR ÞÚ... ... að í Suðurnesjatíðindum í marsmánuði 1974 er sagtfrá miklu deilumáli, sem kom upp í Gagnfrœðaskólanum í Keflavík milli nemenda og skólastjóra. Snerist deilan um það að nemendur vildu hafa dansleiki til kl. 01, en það vildi skólastjóri ekkifall- ast á. Stjórn skólafélagsins sagði af sér í kjölfar þessa máls og í Suðurnesjatíðind- um frá þessum tíma er harð- orð grein, þarsem einn nem- enda skólans segir skoðun nemenda. _ VISSIR ÞÚ... ... að ísumarbyrjun 1974var vígt að Hafnargötu 80 stór- glæsilegt íélagsheimili VSFK og VKFKN. Húsnœðið var áður í eigu matstofunnar Vík, en það nafn hlautfélags- heimilið einnig.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.