Víkurfréttir - 26.05.1989, Side 35
Verslunin FRÍSTUND
Frístund er verslun sem stendur undir nafni, því hún er með margt sem
hægt er að njóta í frístundum. Frístund er einnig myndbandaleiga og sel-
ur auk þess hljómtæki, sjónvörp, myndbandstæki, hljóðfæri, ljósmynda-
vörur og ýmsar gjafavörur. Eigandi Frístundar er Astþór Sigurðsson en
hann rekur samnefnda verslun einnig að Holtsgötu 26 í Njarðvík. I
Hólmgarðshúsið flutti Frístund 3. des. 1988.
Ástþór sagði að það væri mikil aukning í útleigu á myndefni, sem kæmi
meðal annars til af því að úrval myndefnis hefði aukist, auk þess sem nýjar
bíómyndir kæmu nú fyrr en áður á myndband.
Aðspurður um sölu hljómtækja, myndbandstækja og sjónvarpa sagði
Ástþór að hún væri mest í kringum jól og fermingar. „Öll tækjasala hefur
aukist. Verðið hefur farið hlutfallslega lækkandi og það hefur ýtt á
söluna.“
Frístund er einnig með móttöku fyrirfilmuframköllun frá Myndsýnen
með hverri framköllun fylgir frí filma í kaupbæti. Frístund er opin sjö
daga vikunnar til kl. 11 á kvöldin.
Verslunin BÖRNIN
Verslunin Börnin var fyrsta fyrirtækið sem opnaði í Hólmgarðshúsinu að
Nonna og Bubba undanskildu. Eins og nafnið ber með sér er hér um
barnafataverslun að ræða og eru eigendurnir systurnar Hildur og Brynja
Kristjánsdætur. Verslunin fagnar einmitt 2ja ára afmæli um þessar
mundir.
Brynja sagði að á boðstólum væri barnafatnaður fyrir 0-12 ára krakka,
þýskur og franskur, mjög vandaður fatnaður. I versluninni er einnig að
finna úrval ungbarnaleikfanga.
Aðspurð um tískuna sagði Brynja að krakkar almennt fylgdust mjög
vel með henni. „Krakkarnir vilja að sjálfsögðu vera í tískunni eins og
fullorðna fólkið. I dageru föt i neon-litum vinsælust, neon-gallar, -húfur,
-buxur og fleira,“ sagði Brynja. Verslunin er einnig með móttöku fyrir
Efnalaug Suðurnesja.
Á myndinni er Brynja Kristbjörnsdóttir ásamt Ólöfu Magnúsdóttur, af-
greiðslukonu.
Snyrtivöruverslunin SMART
SMART er ný snyrtivöruverslun sem tók til starfa ekki alls fyrir löngu í
Hólmgarðshúsinu. Eigandi hennar er Helga Sigurðardóttir og sagði hún
að hún hefði fengið fljúgandi start strax í byrjun.
Hjá Smart eru á boðstólum snyrtivörur fyrir bæði kynin, auk skart-
gripa sem Helga flytur sjálf inn. Auk þess að selja snyrtivörur og skart-
gripi, þá hefur Helga á boðstólum undirfatnað og fyrir stuttu bætti hún
við úrvalið er hún tók inn leðurveski í mörgum stærðum.
Snyrtivöruverslunin Smart býður fólki einnig upp á heimsendingar-
þjónustu á gjöfum, en nóg er fyrir fólk að hringja í síma 15414 og panta
gjöfina. Opnunartími verslunarinnar er kl. 10-18 virka daga og kl. 10-14
á laugardögum.
Verslunin PERSÓNA
Herrafataverslunin Persóna er ein af yngri verslunum í Keflavík. Hún
opnaði i júní 1988 að Flafnargötu 61 enfluttií byrjunmarsí Hólmgarðs-
húsið. Eigendur eru Agústa Jónsdóttir og Guðmundur Reynisson en
sonur þeirra, Georg Birgisson, er afgreiðslumaður.
Ágústa sagði að boðið væri upp á vandaðan herrafatnað frá kunnum
framleiðendum s.s. GANT sportfatnað og Z-Victory auk gallabuxna frá
Custer. Þá er úrval af jakkafötum frá Peter Van HoIIand, sem er þekktur
klassafatnaður. Innan tíðar verður bætt enn frekar við úrvalið með þýsk-
um, mjög vinsælum herrafatnaði.
Aðspurð um tískuna sagði Ágústa að herrafatatískan hefði breyst meira
að undanförnu og væri „djarfari“ en oft áður og nefndi sem dæmi marglit
vesti og rósóttar skyrtur og bindi. „Karlmenn eru farnir að pæla almennt
meira í klæðnaði en áður, ekki síst yngri kynslóðin. Það finnst mér mjög
jákvæð þróun,“ sagði Ágústa Jónsdóttir í Persónu.