Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.05.1989, Síða 38

Víkurfréttir - 26.05.1989, Síða 38
KEFLAVÍK 40 ÁRA Knattspyrna hefur verið uppá- haldsíþrótt Keflvíkinga lengst af, þótt ýmsar aðrar greinar hafi náð tímabundnum vinsældum á meðal fólks, eins og t.d. sund og frjálsar íþróttari, sem átt hafa sín blóma- og hnignunarskeið. Körfuknatt- leikurinn er sú íþrótt sem unnið hefur mikið á í Keflavík en knatt- spyrnan heldur samt velli, þrátt fyrir nokkra lægð um þessar mundir; ÍBK á sæti í fyrstu deild- inni, sem það hyggst haida á kom- andi leiktímabili, hvað sem tautar og raular. Knattspyrnan hefurver- ið stærsti þátturinní starfsemi ÍBK allt frá stofnun bandalagsins árið 1955, eftir að hafa verið innan íþróttabandalags Suðurnesja um nokkurra ára skeið. Léku við heimsþekkt félög Keflvíkingar hösluðu sér fljótlega völl í landsmótum KSI og það tók ekki mörg ár að vinna fyrsta Islands- meistaratitilinn, í fjórða flokki árið 1959, en sá kjarni vann einmitt 1. deildina fimm árum síðar eða árið 1964. Síðan hafa margir sigrar unnist og ÍBK hefur víða farið og reynt sig við heimsþekkt erlend lið í Evrópu- keppnum. Reyndar er nokkuð um Þrír knattspyrnukappar úr gullaldarliði ÍBK, Jón Jóhannsson, Jón Olafur Jónsson og Magnús Haraldsson, rifja upp „gamla góða“ tímann . . . Iiðið frá seinasta Evrópuleik ÍBK en til þess að bæta úr því verða þeir að komast í efri mörk fyrstu deildarinn- ar og nú er stefnt að því öllum árum af þeim sem núna halda um stjórnvölinn í bandalags- og knattspyrnuráði. Gömlu góðu dagarnir Menn tala stundum um gullaldar- tímabil ÍBK, árin frá 1964 til 1973, og það ekki að ástæðulausu. Fræknustu sigrarnir og almennur áhugi var þá mjög mikill, 3-4 þúsund manns á leik og knattspyrnumennirnir voru hetj- ur heimabæjar, dáðir af öldnum sem ungum, körlum sem konum. Fólk réði sér varla fyrir gleði þegar sigrar unnust og hálfgerður sorgarblær kom á bæinn við töpin. Til að rifja svolítið upp þessa gömlu, góðu daga voru teknir tali þeir Jón Jóhannsson, Jón Ólafur Jónsson og Magnús Har- aldsson, sem eiga það sammerkt að hafa spilað í meistaraflokki IBK þennan tíma. Hafsteinn var nánast allt „Pegar ég byrja að æta meo meisL- araflokki IBK eru að eiga sér stað kynslóðaskipti. Frumherjarnir undir merki bandalagsins eru óðum að leggja skóna á hilluna eftir að hafa fallið í 2. deild árið 1960 og hinir yngri að taka við. Samt urðu nokkrir eftir, eins og Högni Gunnlaugsson, Sig- urður Albertsson, sem báðir voru að- fluttir eins og reyndar meira enhelm- Jón Ólafur, Jón Jóhanns og Magnús Haralds, í verðlaunaherbergi ÍBK. T.h. er mynd af íslandsmeisturum ÍBK 1964. „Fáum vonandi aðra gullöld“ ingur aðalliðsins fyrstu þrjú árin í 1. deild, það er 1958, 1959 og 1960“ sagði Magnús Haraldsson, „og má þar nefna Hafstein Guðmundsson, sem var nánast allt í liðinu og í félags- starfinu, leikmaður, þjálfari og for- maður IBK og í knattspyrnuráðinu, Svavar Færseth frá Siglufirði, Gunn- ar Albertsson frá Ólafsfirði, Garðar Pétursson frá Isafirði, Guðmundur Guðmundsson frá Akureyri, Isleifur Sigurðsson úr Garðinum, Skúli Skúlason frá Reykjavík. Segja má að þegar þeir eru að hætta, ásamt Páli Jónssyni og Skúla Fjalldal, sem flutt- ist til Danmerkur, þá erum við að byrja eins og Hólmbert Friðjónsson. Seinna koma svo smám saman í liðið 4. flokks Islandsmeistararnir, piltar sem höfðu notið góðrar þjálfunar og öðlast leikreynslu í keppni yngri flokkanna. Skammt var svo að biða þess að sæmdarheitið “Besta knatt- spyrnulið á Islandi“ félli í skaut IBK, eða árið 1964.“ Fyrsti Evrópuleikurinn Auk sæmdarheitisins færði titill- inn þeim þátttökurétt í Evrópu- keppni meistaraliða og Magnús var þá búinn að vinna sér fastan sess í IBK-liðinu, enda með afbrigðum sprettharður. Liðið sem drógst á móti þeim voru sjálfir Ungverja- landsmeistararnir Ferencvaros, með Florian Albert í sínum röðum, orð- inn heimsþekktur. „Þetta var upp- hafið að löngum ferli í keppni við er- lend lið. Þarna var um alvöruleiki að ræða. Ekki vináttuleiki, þar sem allir urðu að leggja sig fram til hins ítrasta. Við stóðum okkur vel í fyrri leiknum á Laugardalsvellinum, töpuðum að vísu 1:4, en þetta var engin einstefna og kannski of mikill markamunur miðað við gang leiksins" sagði Magn- ús. „Okkur gekk verr fyrir austan. Ungverjarnir voru á heimavelli, 20-30 þúsund áhorfendur, allir á þeirra bandi á Nep-leikvellinum, okkar fyrsti leikur í alþjóðakeppni. En það sem verra var, fyrsti leikur IBK í flóð- ljósum, sem er reynsla út af fyrir sig. Ungverjarnir léku á alls oddi. Skoruðu 9 mörk gegn 1, enda þess krafist af fylgjendum þeirra að sigur- inn yrði stór yfir þessu liði frá litlum bæ á Islandi" bætti Magnús við. Albert skipulagði Ungverja- lands- ferðina Að þessu leyti til voru Ungverjarn- ir ekki gestrisnir. Þeir hefðu jafnvel viljað hafa mörkin fleiri, „en bættu það upp með frábærum móttökum i alla staði“. Á svip Magnúsar má greina að hann lifir enn í minningunni um ferðina. „Annars skeði margt skemmtilegt í ferðinni," og nú erþað Jón Jóhannsson sem blandar sér í samtal okkar Magnúsar, „ég man ávallt að skömmu áður en leikurinn hófst fóru áhorfendur að hlæja, ráku upp rokur hvað eftir annað. Við átt- uðum okkur ekki alveg strax á hverju þetta sætti en ástæðan var sú, að þegar nöfn okkar birtust á ljósatöfl- unni þótti þeim svona fyndið að sjá sömu endinguna á nöfnum okkar eða son. Þeim fannst víst að við værum allir bræður," og Jón hlær við, „en ferðin var í alla staði vel heppnuð. Mjög vel skipulögð, því þótt við vær- um ekki með öllu óvanir utanlands- ferðum gerðu menn sér ljóst að þegar um Evrópukeppni var að ræða varð að vanda til verksins. Hafsteinn Guð- mundsson, formaður IBK, fékk vin sinn og félaga Albert Guðmundsson til að skipuleggja ferðina og Atla Steinarsson blaðamann í fararstjórn- ina. Varla hægt að fá betri og reynd- ari menn, enda varð ferðin í samræmi við það.“ Tryggir áhorfendur Hægt væri að skrifa hejla bók um þær ferðir og þá leiki sem IBK spilaði við erlend stórlið. Það er í rauninni stór og glæstur kafli í sögu Keflavík- urbæjar, sem gera ætti góð skil og varðveita á spjöldum sögunnar. Nöfn eins og Everton, Tottenham, Real Madrid, Hamburger SV, Ferencvar- os, eru nöfn sem fá félög á Islandi geta státað af að hafa keppt við. IBK hefur meira að segja komist í aðra umferð Evrópukeppninnar. „Slíkar ferðir voru mikil lyftistöng og kannski þau einu laun sem menn fengu fyrir erfið- ið, enda ávallt tilhlökkunarefni að fara og reyna sig við nýja mótherja og sjá nýja staði. Fjölmenni var oft í þessum ferðum, tryggir fylgjendur liðsins létu sig ekki vanta á áhorf- endabekkina, þótt utanlands væru,“ sagði Magnús, sem hafði orðið aftur. „En þyí miður er orðið allt of langt síðan ÍBK hefur unnið sér rétt til að leika í Evrópukeppni, seinast 1973, svo að u'mi er kominn til að IBK taki sig á og vinni sig að nýju í fremstu röð íslenskra knattspyrnuliða,“ og Magnús leggur lófann þéttingsfast á borðið, orðum sínum til áherslu.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.