Víkurfréttir - 26.05.1989, Síða 41
KEFLAVÍK 40 ÁRA
Gleraugnaverslun Keflavíkur opn-
aði á vordöguni 1982, nema hvað
aðeins fyrr en áætlað var. Eigend-
urnir, þeir Kjartan Kristjánsson og
Pétur Christiansen, lögðu nótt við
dag síðustu dagana til að geta opnað
á laugardagsmorgni 22. maí. Þeir
félagar voru fram undir morgun að
gera klárt, höfðu rétt tíma til að
skreppa heim til að skipta unt föt,
til að drífa sig suður eftir til Kefla-
víkur og opna nýju búðina, sem
heimamenn höfðu lengi beðið eftir.
Þegar þeir stigu inn í búðina var
hún opin og inni beið Bandaríkja-
maður með blað í hendi og bauð
góðan daginn, eins og ekkert væri
eðlilegra. Fyrsti viðskiptavinurinn
var kominn á undan eigendunum,
sem höfðu gleymt að læsa útidyrun-
unt. En það kont ekki að sök og auð-
vitað tókst þeim að selja kananum
gleraugu.
„Við fengum glimrandi góðar við-
tökur og þar sem húsnæðið sem við
vorum í, að Hafnargötu 27, var mjög
lítið, ákváðum við að flytja okkur um
set, í gömlu löggustöðina sem þá
hafði verið gerð upp,“ segja þeir fél-
agar, Kjartan og Pétur, þegar ég spyr
þá út í gang mála í byrjun. Ekki voru
þeir búnir að vera lengi í gamla tukt-
húsinu þegar þeir beittu sér fyrir því
að fá hingað fast starfandi augnlækni
en fram að þeim tíma hafði Ulfar
Þórðarson, augnlæknir, komið reglu-
lega á heilsugæslustöðina til að sinna
þessari þjónustu. I dag er Haraldur
Sigurðsson starfandi augnlæknir á
efri hæðinni að Hafnargötu 17, sem
þeir félagar Iétu innrétta eftir að þeir
fluttu með reksturinn í húsið.
Ahersla á góða þjónustu
Gleraugnaverslun Keflavíkur er
sérverslun með gleraugu og snerti-
linsur. Einnig annast þeir Kjartan og
Pétur töluvert innflutning á optisk-
urn vörum, sem þeir síðan selja til
annarra gleraugnaverslana í landinu.
„Okkar aðal merki er Metzler,
Mondi, sem er Vestur-Þýsk hágæða-
vara. Einnig erum við með dreifingu á
hinum kunnu Ray Ban sólgleraug-
um.“
Hvað með afgreiðslu á gleraugum?
„Við höfum allt frá upphafi lagt
mikla áherslu á góða og fljóta þjón-
ustu. Annar okkar er alltaí í búðinni
og því getur fólk gengið að faglegum
ráðleggingum vísum hvenær sem er.“
Tískuvara
Þeir sem hitta þá ,,gleraugnagæa“
ósjaldan sjá að þeir eru aldrei lengi
með sömu gleraugun. Og þó svo að
þeir séu eigendur fyrirtækisins þá
þarf það ekki endilega að vera að þeir
skipti oft þess vegna. Eru gleraugu
sem sagt orðin u'skuvara? „Viðhorf
fólks gagnvart gleraugnanotkun hafa
gjörbreyst. I dag er algengt að fólk
eigi tvenn, jafnvel þrenn gleraugu.
Einnig hefur hjálpað til að verð á gler-
augum hefur farið lækkandi á undan-
Pétur og Kjartan með starfsstúlkum sínum, þeim Kristínu, Ástu, Sigrúnu og Ingibjörgu.
„Höfum frá upphafi lagt
áherslu á góða þjónustu“
förnum árum vegna tollabreytinga.
Vönduð gleraugu kosta nú orðið
minna eða svipað hér og í nágranna-
löndunum."
Snertilinsur fyrir alla
En nú hefur orðið mikil þróun í
snertilinsum á undanförnum árum.
Hefur sala í þeim ekki aukist? „Jú,
þar hefur þróunin einnig verið mjög
ör. Fyrir nokkrum árum gátu ekki
nærri því allir notað snertilinsur. I
dag geta nánast allir notað þær, sem
þurfa á sjónhjálpartækjum að halda.“
Gleraugnaverslun Keflavíkur er
ekki einungis í Keflavík. Hún er einn-
ig starfrækt á Keflavíkurflugvelli og
sögðu þeir Kjartan og Pétur að varn-
arliðsmenn nýttu sér þjónustuna vel.
Svo hafa þeir einnig farið út á land til
að þjónusta byggðarlög sem ekki hafa
gleraugnaþjónustu á sínum snærum.
Þeir fara t.d. reglulega á Austfirðina
og segjast hafa gaman af því að heim-
sækja Austfirðinga.
Starfsmenn Gleraugnaverslunar-
innar eru sjö á þessum tveimur stöð-
um. „Við höfum verið ákaflega
heppnir með starfsfólk,“ sögðu þeir
Kjartan Kristjánsson og Pétur
Christiansen að lokum.
- segja þeir Kjartan Krístjánsson og
Pétur Ghristiansen í
Gleraugnaverslun Keflavíkur
Pétur er hér að vinna við gler, sem sköntmu Kristín Jóna sýnir ljósmyndaranum brot af „Eftirspurn eftir snertilinsum hefur aukist
seinna sntall inn í umgjörðina. ótrúlegu gleraugnaúrvali. mikið“, segir Kjartan.