Víkurfréttir - 02.08.1989, Page 11
\>iKun
juiUt
Miövikudagur 2. ágúst 1989 11
KEFLAVlKURBÆR:
Stjórnsýslan fer í Sparisjóðshúsið
Bæjarráð Keflavíkur hef-
ur ákveðið að taka á leigu efri
hæð Sparisjóðshússins svo-
nefnda, þ.e. húss Islenskra
aðalverktaka aðTjarnargötu
12 í Keflavík. Hefur ráðið
samþykkt að fela Guðfinni
Sigurvinssyni bæjarstjóra að
undirrita leigusamning við
ÍAV.
Er þess vænst að húsið
komist í gagnið á næsta ári
og verður þá öll stjórnsýsla
Keflavíkurbæjar þar ásamt
tæknideild, félagsmálastofn-
un, byggingafulltrúa og
bókasafni.
Um leið og þetta gerist er
ráðgert að Sérleyfisbifreiðir
Keflavíkur fái a.m.k. neðri
hæðina í húsi því sem nú hýs-
ir bæjarskrifstofurnar en var
upphaflega byggt fyrir SBK.
Jafnframt eru uppi hug-
myndir um að nýta efri hæð-
ina annað hvort fyrir starfs-
menn fyrirtækisins eða jafn-
vel vísi að umferðarmiðstöð
fyrir Suðurnesin. Er nánar
fjallað um það mál annars
staðar í blaðinu.
Gamli bæjarkjarninn í Keflavík
í síðasta tölublaði gáfum
við smá sýnishorn af göml-
um húsum sem fengið hafa
andlitslyftingu svo um mun-
ar og eru orðin eigendum
sínum til sóma, þó sum
þeirra eigi enn langt í land
með að vera fullkláruð.
Enn höldum við áfram á
þeirri braut ogtökum nú fyr-
ir gamla bæjarkjarnann í
Keflavík. Það eru hús á
svæðinu milli Hringbrautar
og Hafnargötu, frá Vestur-
götu og upp að Vatnsnes-
vegi. Eins og síðast er þetta
ekki tæmandi úttekt heldur
sýnishorn þess sem gera má
varðandi gömlu húsin í stað
þess að rífa þau eða fjar-‘
líEgja.
Vonandi gefst okkurtæki-
færi til að birta slík sýnis-
horn frá öðrum bæjarhlutum
eða jafnvel hinum sveitarfél-
ögununt á Suðurnesjum síð-
ar í haust.
Vallargata 25. 1 Suðurgata 34. Vatnsnesvegur 24. Ljósmyndir: epj.