Víkurfréttir - 11.07.1991, Blaðsíða 7
7
Næturlífið í Keflavík:
Víkurfréttir
11. júlí 1991
NÆTURSALAN
BLÓMSTRAR
Um helgar er iðulega mikill fjöldi fólks á ferðinni langt fram eftir nóttu. Yfirleitt er þetta ungt
fólk á rúntinum margfræga, eða fólk að koma af skemmtistöðum bæjarins. Flestir þessara ein-
staklinga hafa þörf fyrir að fá sér annað hvort gos eða eitthvað annað í svanginn. Það ætti ekki að
vera erfitt, þar sem um tjóra staði er að ræða í Keflavík, vilji fólk komast í nætursölu.
Blaðamaður var gerður út af örkinni til að kanna þessi mál og varð starfsfólk á tveimur stöðum,
Aðalstöðinni og Pulsuvagninum, fýrir svörum.
Aöalstööin:
BESTA FÓLK Á ÖLLUM ALDRI
í gegnum áratugina hefur
planið við Aðalstöðina verið
einn helsti samkomustaður
þeirra sem keyra rúntinn í
Keflavík. Þeir eru líka margir
sem kíkja þar í lúguna og oft
er löng biðröð og starfs-
stúlkurnar hafa vart undan að
afgreiða gegnum tvær lúgur.
Þær María Bergsdóttir og Jó-
hanna Jóhannesdóttir voru á
vakt er blaðamann bar að.
„Hér er oft mikil traffík í
lúgunni og á planinu og hing-
að kemur besta fólk á öllum
aldri,“ sögðu þær María og
Jóhanna.
-Hvað vantar fólki helst?
„Það er óhætt að segja að
það séu ótrúlegustu hlutir sem
fólk þarf að kaupa sér eftir
miðnætti og raunar ekki hægt
að nefna eitt framar öðru.
Fólk vantar bara allt“.
Þær Jóhanna og María
sögðu að viðskiptavinimir
væru fólk sem væri á rúnt-
inum - fólk sem keyrði upp og
niður Hafnargötuna. Þær
sögðust ekki verða varar við
ölvun á fólki í bílunum eða
verða fyrir aðkasti frá ölv-
uðum.
-En hvernig er það að vera
lokaður inni á sjoppu þegar
bærinn iðar af lífi fyrir utan
gluggann?
„Það er ekki skemmtileg
tilfinning og oft væri gaman
að komast út á lífið,“ sögðu
þær stöllur að endingu.
• Eldhressar afgreiðslu-
stúlkur Aðalstöðvarinnar.
F.v. Jóhanna Jóhannes-
dóttir og María Bergs-
dóttir.
Ljósm.:hbb
Heimilistæki fyrir 150 þús. kr
eða meira, lánað í 36 mánuði.-
Engin útborgun
Þú færö hvergi betri kjör!
Komdu og verslaöu allan
„pakkann” í húsiö á
greiðslukjörumsem eiga
sér vart hliðstæöu
Munið sumarmyndasamkeppni
Vfkurfrétta og Myndarfólks.
• Frá Pulsuvagninum við Skrúðgarðinn. Þar er oft samankominn
inikill fjöldi fólks, en |iað var rólegt yfir að líta um síðustu lielgi. Þær
Svanfríður og Astrún voru ekki á þeim buxunuin að koma í mynda-
töku, svo við látum þessa mynd nægja. Ljósm.:hbb
Pulsuvagninn:
„Hresst fólk að fá sér í svanginn“
Pulsuvagninn við Skrúð-
garðinn liggur vel við allri um-
ferð í miðbæ Keflavíkur.
Skammt frá er skemmtistaðurinn
Edenborg og jafnframt safnast
mikill fjöldi fólks saman í mið-
bænum um helgar og stutt fyrir
það fólk að leggja leið sína á
Pulsuvagninn. Blaðamaður hitti
að máli þær Svanfríði Sverris-
dóttur og Astrúnu Viðarsdóttur,
sem voru á vakt þetta kvöld. Þær
voru fyrst spurðar af því hvort
það væru margir sem nýttu sér þá
þjónustu sem boðið væri uppá.
„Hingað kemur mikill fjöldi
fólks eftir miðnætti um helgar.
A föstudagskvöldum kemur
mikið af ungu fólki sem er á
rúntinum, en á laugardags-
kvöldum er þetta meira bland-
aður hópur fólks og jafnvel fleiri
fullorðnir," sögðu þær Astrún og
Svanfríður.
-Hvenær er mesta áiagið?
„Fólkið sem er á rúntinum er
að koma hingað fram undir
klukkan þrjú, en eftir það er það
fólkið sem er að koma af
skemmtistöðum bæjarins. Allt er
þetta fólk sem er komið hingað
til þess að fá sér eitthvað 'hollt' í
svanginn".
-Verðið þið varar við ölvun?
„Já. Við verðum varar við
ölvun á fólki, en verðum alis ekki
fyrir aðkasti frá þessu fólki. Þetta
er allt besta fólk og er hresst í
bragði þegar það kemur hingað.
Ekki spillir fyrir þegar veðrið er
gott, þá sjáum við oft ný andlit,"
sögðu þær stöllur að endingu.
VIÐSKIPTAVINIR
ATH.
Dagana 1. til 12. ágúst,
munum við draga verulega úr
starfsemi okkar
- vinsamlegast hafið þetta
hugfast við pöntun
á verkefnum.
Prentsmiðjan
GRÁGÁS H/F
Vallargötu 14.
Sími14760
SUMARTILBOÐ
20% afsl.
af jogging göllum
Nýkomnir ódýrir bolir
Regnfatnaður á full-
orðna - aðeins 2.970.-
Úrval af fatnaði í ferðlagið
5%
STAÐGREIÐSLU-
AFSLÁTTUR
SANDGERÐI Sítni 37415
KEFLAVÍK Sítni 13525