Víkurfréttir - 11.07.1991, Síða 11
Fjölmennt hverfi býr við hættulega slysagildru:
________u
Víkurfréttir
11. júlí 1991
Innritun á síðasta námskeiðið á morgun, föstudag kl. 13-16
í íþróttahúsi Keflavíkur, sími 11771. Verð kr. 2000.
SORP-
EIÐINGA-
STÖÐ
Oft er það sagt að tjölmiðlar
séu að kasta grjóti úr glerhúsum
þegar fjallað er um íslenskt mál.
í Gróftnni í Keflavík hafa
verið sett upp skilti á girðingu
er tilheyrir áhaldahúsi bæjarins.
Stafsetningarkunnátta skilta-
gerðarmannsins er örugglega
ekki upp á „tíu" ef vel er að gáð.
Við látum lesendum eftir að
finna villurnar.
Ljósm.:hbb.
C3
ca
IPROTTA- OG LEIKJASKOLI
KEFLAVÍKUR
Síðasta námskeið sumarsins.
Fótbolti - Körfubolti - Hand-
bolti - Frjálsar íþróttir - Fim-
leikar - Sund - Leikir.
ÚTI OG INNI
Kennt verður mánud. -
fimmtud. kl. 9.30-12.00
og 13.00-15.30.
Frjáls mæting föstudag
kl. 10-13.
Farið í heimsóknir,
ferðalög, skoðunarferðir
o.fl.
OF HRAÐUR AKSTUR
ORSÖK FLESTRA
SLYSANNA?
Tíð umferðaróhöpp hafa átt
sér stað á gatnamótum tengi-
vegar úr Heiðarholti við
Garðveg. Yfirleitt er um að
ræða aftanákeyrslur, þegar
ökumenn er ætla upp tengi-
veginn hægja skyndilega á, án
þess að hafa gefið stefnuljós,
og ætla að beygja upp veginn.
Ökumenn í bflum er koma á
eftir hafa þá ekki nægan tíma
til að stöðva, með afleiðingum
sem allir þekkja. Blaðið hafði
samband við Karl Her-
mannsson, formann um-
ferðarnefndar Keflavíkur, og
spurði hann út í það hvort
einhverra úrbóta væri að
vænta á þessum gatnamótum:
„Þessi tengivegur úr Heið-
arholti niður á Garðveg var
gerður tii bráðabirgða, til þess
að minnka þann umferðar-
þunga sent var á gatnamótum
Vesturgötu og Hringbrautar. I
þessu hverfi er tengivegurinn
liggur frá býr um helmingur
íbúa Keflavíkur og honum var
því ætlað að draga stórlega úr
umferðarþunga".
- Nú eru tíð umferðaróhöpp
á þessum gatnamótum og
SORPEIÐINGAb I Ut>lN
OPSN 'óRKA DAGA KL 8 22
LWJGARDA6A KL 8 16
margsinnis hefur legið við
árekstrum vegna umferðar um
tengiveginn. Hvað er til úr-
bóta?
„Við í umferðarnefndinni
eigum von á því að þessi
tengivegur verði bráðlega
leystur af hólmi með nýjum
vegi sem mun liggja vestan
við byggðina og tengja saman
Garðveginn og Reykja-
nesbrautina að flugstöðinni.
Ég hef engar upplýsingar um
það hvenær ráðist verður í
gerð þess vegar. Bráða-
birgðalausnirnar vilja oft
verða notaðar of lengi.
Gatnamótin séð ofan af tengiveginuni og niður á Garðveg.
Yfir vetrartímann má einnig sjá óhöpp eins og þetta.
Svona óhöpp eru tíð við gatnamótin.
Ein helsta orsök um-
ferðaróhappa á þessum stað er
hinn mikli umferðarhraði á
Garðveginum, því framhjá
gatnamótunum er leyfilegur
hámarkshraði 70 km/klst., en
Ljósmyndir: hbb.
hraðinn á þessum slóðum er
oft meiri,“ sagði Karl Her-
mannsson, formaður um-
ferðarnefndar Keflavíkur að
endingu.