Víkurfréttir - 11.07.1991, Síða 14
Meistaramót golfklúbbanna
Hilmar og Karen
meistarar G.S.
Verðlaunahafar í meistaramóti G.S. ásamt mótanefnd. Ljósm.: pket.
Hilmar Björgvinsson og Karen
Sævarsdóttir urðu meistarar Golf-
klúbbs Suðurnesja 1991. Meist-
aramótið fór fram frá miðvikudegi
til laugardags og voru leiknar 72
holur í fimrn flokkum karla, tveimur
flokkum kvenna, öldungaflokki og
unglingaflokki.
Mótið heppnaðist vel í alla staði,
þrátt fyrir að veðurguðirnir væru
ekki sem blíðastir þrjá fyrstu dag-
ana. Síðasta daginn bættu þeir þó
heldur betur fyrir rigninguna með
rjómablíðu allan daginn.
Urslitin í einstökum flokkum
fara hér á eftir.
Öldungaflokkur:
ÖRUGGT HJÁ KJÆRBO
Þorbjörn Kjærbo vann nokkuð
öruggan sigur í öldungaflokknum
án forgjafar. Hann lék holurnar 72
á 328 höggum, tíu höggum betur en
landsliðseinvaldurinn í golfi, Jó-
hann Benediktsson, sem lék á 338.
Jóhann var svo aftur tíu höggum
betri en Hólmgeir Guðmundsson,
sem varð þriðji, lék á 348 höggum.
I öldungaflokki með forgjöf
sigraði Friðjón Þorleifsson, eins og
oft áður, lék á 292 nettó. Annar varð
Kristján Einarsson á 311 og þriðji
Garðar Jónsson á 317.
Kvennaflokkur:
KARENí SÉRFLOKKI
Karen Sævarsdóttir var í sér-
flokki í kvennaflokknum án for-
gjafar eins og fyrirfram var við bú-
ist. Karen lék á 320 höggum
samtals, eða akkúrat á 80 höggum
að meðaltali hvern hring. Næst kom
Rakel Þorsteinsdóttir á 376 högg-
um, og þriðja varð Gerða Hall-
dórsdóttir á 388 höggum.
I kvennaflokki með forgjöf, var
Magdalena Sirrý Þórisdóttir hlut-
skörpust á 286 höggum nettó. í
öðru sæti varð systir Rakelar, Rut
Þorsteinsdóttir á 299 höggum nettó
og þriðja varð Eygló Geirdal á 304
nettó.
Unglingaflokkur:
ÖRN ÆVAR NÁÐI BESTA
HEILDARSKORI MÖTSINS
Örn Ævar Hjartarson sigraði
með nokkrum yfirburðum í ung-
lingaflokknum. Hann lék á 309
höggum og var það jafnframt besta
heildarskor mótsins. Annar í ung-
lingaflokki varð Kristinn Sörensen
á 331 höggi og þriðji Steinar Þór
Stefánsson á 347, eftir harða baráttu
við Gunnar Logason sem lék á
samtals 348 höggum.
4. flokkur karla:
HERMANN HÉLT VELLI
Hermann Jónasson vann nokkuð
öruggan sigur í 4. flokknum, en
hann er skipaður golfurum með 20
f forgjöf og meira. Hermann lék 72
holurnar á 362 höggum, tíu högg-
um betur en Benedikt Sigurðsson,
sem háði harða baráttu við Högna
Þórðarson og Lárus Gunnarsson.
Benedikt vann Högna með einu
höggi og Högni vann Lárus með
einu höggi. Benni var því á 372 í
öðru sætinu, og Hcgni á 373 í þriðja
sætinu.
3. llokkur karla:
GOTT H.IÁ GARÐARI
Garðar K. Vilhjálmsson hafði
nokkra yfirburði í 3. flokknum, sem
skipaður er kylfingum með 15-20 í
forgjöf. Garðar náði forystunni
strax á fyrsta degi og jók hana jafnt
og þétt eftir það. Hann lék holurnar
72 á 338 höggum, 21 liöggi belur en
Pétur Már Pétursson, sem lék á 359
höggum. Á síðasta degi tókst svo
Gunnlaugi Kárasyni að skjótast upp
í 3. sætið, lék samtals á 362 liögg-
urn.
2. flokkur karla:
GUÐMUNDUR HAFÐI
ÚTHALDIÐ
I örðrum flokki karla, sem skip-
aður er kylfingum með 11-15 í for-
gjöf, voru nokkrar sviptingar og
keppnin spennandi fram á síðasta
dag. Það var Guðmundur Mar-
geirsson sem reyndist sterkastur
allra á endasprettinum, en hann
tryggði sér sigurinn með spari-
spilamennsku síðustu níu holurnar.
Guðmundur stóð uppi sem sig-
urvegari á 332 höggum. Gísli
Torláson varð annar á 337 og
Magnús Garðarsson þriðji á 341
höggi. Þeir Sturlaugur Ólafsson,
Þorgeir Ver Halldórsson og Jón
Sigurðsson blönduðu sér allir í bar-
áttuna fram á síðasta dag, en töpuðu
áttum í blíðunni á laugardaginn og
misstu af forystunni.
I. flokkur karla:
HELGI SIGRAÐI EFTIR
HÖRKUBARÁTTU
Helgi Þórisson tryggði sér sig-
urinn í fyrsta flokknum á 72. hol-
unni. Helgi hafði forystuna í upp-
hafi dagsins, missti liana niður, en
náði með harðfylgi að endurheimta
hana með sfðasta pútti st'nu.
Helgi háði harða baráttu við þá
Davíð Jónsson, Marinó Má Magn-
ússon og Amar Ástþórsson um sig-
urinn. Síðasta daginn iéku þeir
Helgi, Davíð og Marinó saman, og
voru hnífjafnir þegar á síðustu flöt-
ina kom. Helgi var að því er virtist
í' verstu aðstöðunni til að sigra, átti
eftir 20 metra pútt, en Davíð og
Marinó 2-3 metra. Helgi náði að
tvípútta, en hinir urðu spennunni að
bráð; Davíð þrípúttaði og Marinó
náði ekki að reka sitt pútt niður.
Helgi vann því á 315 höggurn, en
Davíð, Marinó og Arnar voru allir
jafnir á 316 höggum. Þá spiluðu
jreir þrjár holur til viðbótar um 2. og
3. sætið og eftir það voru Davíð og
Arnar enn jafnir. Þeir léku þá
bráðabana og náði Arnar þá að
knýja fram sigur.
Meistarflokkur karla:
HILMAR SIGRAÐI
Hilmar Björgvinsson náði for-
ystunni í meistaraflokki strax á
fyrstadegi.og hélt henni allt til loka
mótsins. Fyrir síðasta daginn átti
hann sjö liögg í forystu á Pál Ket-
ilsson og níu á Magnús Jónsson og
þótti nokkuð víst að sigri hans yrði
ekkiógnað.
Menn létu það þó ekki á sig fá og
t.a.m. tók Sigurður Sigurðsson sig
tii og sýndi sitt rétta andlit, lék síð-
asta daginn á 71 höggi, einu undir
pari vallarins. Var það besti hringur
mótsins.
Lokaúrslitin í meistaraflokki
urðu jrau að Hilmar sigraði á 311
höggum, Sigurður varð annar á 316
og Magnús þriðji á 320 höggum.
Golfkl. Grindavíkur:
Jón og Sigrún
sigurvegarar
Meistaramót Golfklúbbs Grinda-
víkur fór fram á Húsatóftavelli t'
síðustu viku og um helgina. Meist-
arar klúbbsins urðu Jón Pétursson
og Sigrún Sigurðardóttir. Jón sigr-
aði í 1. flokki karla á 309 höggum,
en Sigrún í kvennaflokki án for-
gjafar á 278 höggum. Karlamir í
Grindavtk léku 72 holur en kon-
urnar 54.
Úrslit einstakra flokka urðu
jressi:
Kvennafiokkur án forgjafar:
1. Sigrún Sigurðardóttir.....278
2. Berglind Demusdóttir......296
3. Bylgja Guðmundsdóttir.....307
Kvennaflokkur með forgjöf:
1. Alda Demusdóttir.........221
2. Sigrún Jónsdóttir.........237
3. Kristjana Eiðsdóttir......239
Unglingafiokkur án forgjafar:
1. Helgi Bragason............317
2. Jón Freyr Magnússon.......344
3. Júlíus Daníelsson.........347
Unglingaflokkur með forgjöf:
1. Öli S. Flóventsson........237
2. Gunnar Arinbjarnarson.....252
3. Axel R. Guðnrundsson......264
4. flokkur karla:
1. Kristmundur Ásmundsson ....358
2. Kristján Finnbogason......391
3. Sigurfinnur Jónsson.......413
3. flokkur karla:
1. Árni Hauksson.............350
2. Magnús Jónsson............365
3. Pétur Gíslason............367
2. flokkur karla:
1. Ólafur Bjamason...........317
2. Bjarni Andrésson..........334
3. Valdinrar Einarsson.......336
1. flokkur karla:
1. Jón Pétursson.............309
2. Gunnlaugur Sævarsson......320
3. Pétur Antonsson...........323
Golfkl. Sandgerðis:
Víöir vann
Golfklúbbur Sandgerðis hélt sitt
meistaramót rétt eins og stærri
klúbbarnir og var keppt í einum
flokki karla, nreð og án forgjafar.
Sigurvegari án forgjafar og jafn-
framt klúbbmeistari varð Víðir Sv.
Jónsson. Hann lék 72 holurnar á
samtals 326 höggum. Næstur kom
Erlingur Jónsson á 330 höggum og
þriðji án forgjafar varð Jón Frið-
riksson á 349 höggum.
I keppni með forgjöf var háð
liörð keppni urn meistaratitilinn.
Þegar upp var staðið var það Hlynur
Jóhannsson, sem sigraði á 273
höggurn nettó. Næstirogjafnirurðu
þeir Guðmundur Einarsson og Að-
alsteinn Guðnason á 274 höggum
nettó.
SUMAR
TILB0Ð
A GÖLLUM
20% afsláttur
föstudag, laugardag og mánudag
SPORTBÚÐ ÓSKARS
Hafnargötu 23 Sími 14922