Víkurfréttir - 11.07.1991, Page 16
Erlendur gjaldeyrir
afgreiddur
samdægurs!
ií5Pf\RI5JÖDURIMN
I KEFLAVIK
KLOFNAÐIVEGNA STAÐSETNINGAR
VATNSRENNIBRAUTAR
Staðsetning vatnsrenni-
brautar þeirrar sem Vatns-
veita Suðurnesja vill gefa
Keflvíkingum var enn einu
sinni til umræðu á fundi
byggingarnefndar sundmið-
stöðvar á miðvikudag í síð-
ustu viku. Þar klofnaði
nefndin í málinu.
Meirililuti nefndarinnar
Sigurður Steindórsson, Jó-
hann Einvarðsson og Jón
Halldórsson voru samþykkir
því að brautin yrði staðsett í
austurhorni laugarinnar, en
minnihluti, Hafsteinn Guð-
mundsson og Kolbeinn Páls-
son vildu að brautin yrði
staðsett við áhorfendapalla
og útiklefa kvenna.
Oskaði Hafsteinn Guð-
mundssona eftirfarandi bók-
unar:
„Á fundi byggingar-
nefndar Sundmiðstöðvar
sem haldinn var 17. apríl sl.
var samþykkt að vatns-
rennibrautin verði staðsett
við áhorfendapalla og að hún
endi í útiklefa kvenna. Voru
allir sammála um að braut-
inni væri vel fyrir komið á
þessum stað.
Utiklefa karla yrði síðan
tvískipt (fyrir konur og karla)
enda nægilegt rými til þess.
Þessi samþykkt bygg-
ingarnefndar var gerð eftir að
ítarlegar athuganir, allt frá
opnun Sundmiðstöðvarinnar,
höfðu farið fram á því, hvar
heppilegast væri að staðsetja
vatnsrennibrautina. Voru
mjög margir ntöguleikar
kannaðir m.a. að láta brautina
enda í barnalauginni, en ýmsir
vankantar voru á því. Niður-
staðan af þessum athugunum
varð því sú, að heppilegast
væri að konta brautinni fyrir
sem næst barnalauginni og
væri það hægt með því að
nýta það svæði sem sáralítið
er notað þ.e. hluta af á-
horfendasvæði og ca. einn
þriðja af útiklefa kvenna.
Þessi staðsetning er mjög
heppileg enda eru vatns-
rennibrautir, sem mest eru
notaðar af börnum, yfirleitt
látnar enda í bamalauginni
eða í sérstakri laug í
námunda við hana.
Að staðsetja vatnsrenni-
brautina við enda djúpu
laugarinnar er mjög var-
hugavert þar sem ósynd börn
m.a. koma til með að nota
brautina mikið og einnig er
þetta aðalsólbaðssvæði sund-
laugarinnar. sem er mikið
notað á góðviðrisdögum og
því fráleitt að taka það svæði
undir vatnsrennibraut.
Er ég því mótfallinn því að
vatnsrennibrautin verði stað-
sett á þessum stað.
Hafsteinn Guðmundsson“
Meistarakoss!
Karen Sævarsdóttir og Hilniar Björgvinsson sigruðu á ineist-
aramóti G.S. um helgina. Sjá uinfjöllun á bls. 14.
Ljósm. Pket.
RESÍAURANT
101
Fyrsta flokks veitingasalur,
ekki bara fyrir hótelgesti
- heldur líka fyrir þig!
SÍMI 92-15 222
FW
HSIÉL
NOTAÐIR
BÍLAR í
ÚRVALI
BÍLAKRINGLAN
Grófin 7 og 8
Símar 14690 - 14692
Mjólkurbikarkeppnin í knattspyrnu:
Víðismenn
slógu Fram út
- unnu sinn fyrsta sigur á sumrinu, 2 -1.
Það kom að því að Víðismenn
ynnu sigur í sumar. Þeir slógu Is-
íandsmeistara Fram út úr Mjólk-
urbikarkeppninni á þriðju-
dagskvöldið á Laugardalsvelli.
Síðast þegar liðin léku í Laug-
ardalnum sigraði Fram með fimm
mörkum gegn engu í úrslitaleik
Mjólkurbikarsins. Sigurinn yfir
Fram að þessu sinni var því enn
sætari fyrir bragðið.
Víðismenn áttu fyrsta orðið í
leiknum þegar í upphafi. Grétar
Einarsson skoraði með því að
vippa knettinum yfir Birki í marki
Fram, eftir góða sendingu frá
Bimi Vilhelmssyni.
Framarar voru meira með
knöttinn eftir markið, en tókst þó
ekki að jafna leikinn fyrr en langt
var liðið á síðari hálfleik. Víð-
ismenn gáfust samt ekki upp,
PASSA-
MYNDIR í
ÖLL
SKÍRTEINI
TILBÚNAR
STRAX!
| l.iiismviiilaslotii |
HAFNARGOTU 52 KEFLAVIK SIMI 14290
heldur héldu áfram að berjast og
fimm mínútum síðar skoraði Sig-
urður Magnússon annað mark
Víðis, sem jafnframt reyndist
sigurmark leiksins. Víðismenn
fengu homspymu, Grétar sendi
knöttinn á Guðjón Guð-
mundsson, sem skallaði á Sigurð,
sem var einn og óvaldaður á
miðjum markteig og átti ekki í
vandræðum með að skalla knött-
inn í netið.
Víðismenn sýndu þarna og
sönnuðu að þeir eru alltaf sterkir
í bikamum, og verður spennandi
að sjá hvemig gengur í 8-liða úr-
slitunum. Með þessum sigri hafa
Víðismenn vonandi brotið ísinn
og geta nú snúið sér að því að
vinna nokkra leiki á Islands-
mótinu.
Ódýrar
hágæöa,
amerískar
matvörur
ALLTAF í
HÁDEGINU
SÚPAOG RÉTTIR
DAGSINS Á
GÓÐU VERÐI
Sími 14777