Morgunblaðið - 05.02.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.02.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ljósahjúp Hörpu var breytt í stóran, gagnvirkan striga við setningu Vetrarhátíðar í Reykjavík í gærkvöldi. Höfundar verksins, sem heitir Sletti- reka, eru þeir Halldór Eldjárn og Þórður Hans Baldursson og sýndu þeir Degi B. Eggertssyni borgarstjóra í gærkvöldi hvernig hægt væri að myndskreyta „strigann“ með því að sletta á hann sýndarmálningu á vefsíðunni paint.is. Verkinu er ætlað að hvetja til virkra samskipta á meðal þátttakenda. Á hátíðinni verður fjölbreytt dagskrá víða um borgina og mun hún standa til 7. febrúar. Hjúpi Hörpu breytt í gagnvirkan striga Morgunblaðið/Eggert Vetrarhátíð í Reykjavík var sett í gærkvöldi með verkinu Slettireku Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Seint í gærkvöldi stóð til að opna Suðurlandsveg úr Reykjavík austur í Hveragerði fyrir nóttina, en leið- inni var lokað í eftirmiðdaginn í gær þegar aust- anstætt hvass- viðri og snjókoma gekk inn yfir landið. Vegurinn um Kjalarnes var opnaður um kl. 21 og hafði þá veðurs vegna verið lok- aður frá því um kl. 17. Leiðina um Mosfellsheiði átti ekki að opna fyrr en nú í morgunsárið. Þá var Hring- vegurinn frá Hvolsvelli að Breiða- merkursandi lokaður mestan hluta dags í gær. Á ellefta tímanum í gærkvöldi hafði veðrinu sunnanlands að mestu slotað, en frá Vestfjörðum og hring- inn austur um land var hvassviðri og ofankoma. Sá Veðurstofan því ástæðu til að gefa út viðvörun um snjóflóðahættu á Patreksfirði. Vegna þeirrar vár voru nokkur hús í bænum rýmd á tíunda tímanum í gærkvöldi. Þá var á svæðinu austanbylur, ofan- koma og skafrenningur. Enginn smygi í gegn Ekki urðu nein teljandi óhöpp í þessum annars hefðbundna febr- úarhvelli, en björgunarsveitamenn stóðu þó í ströngu. Flokkur frá Hvammstanga fór síðdegis upp á Holtavörðuheiði og kom 20 manns á átta bílum til aðstoðar. Nokkrir höfð- ust svo við í fjöldahjálparstöð í fé- lagsheimilinu Víðihlíð í Húnaþingi vestra. Þá var mannskapur úr hjálp- arsveitunum á Suðurnesjum, Stykk- ishólmi, á Svalbarðseyri og Grenivík – svo nokkrir staðir séu nefndir – í tilfallandi verkefnum. Sömuleiðis voru björgunarsveitamenn einnig á vaktinni þar sem vegum var lokað. „Ökumenn sýna lokunum skilning og það verður aldrei ágreiningur úr þessu,“ sagði Unnar Már Sigur- björnsson í Hjálparsveit skáta í Reykjavík. „Lokun er kynnt rækilega í fjöl- miðlum svo Íslendingar vita hvað er í gangi. Þetta kemur þó að útlending- unum óvörum. Þeim finnst þetta ekkert vandamál og eru þakklátir að fá uppástungur um einhverja afþrey- ingu,“ segir Unnar Már. Aðspurður segist hann telja skynsamlegt hjá Vegagerðinni að loka vegum þegar óveður er í aðsigi. Það sé fólki óskemmtileg reynsla að lenda í hremmingum á fjöllum, sitja þar fast í marga klukkutíma og þurfa aðstoð. Ófærð og snjóflóðahætta vestra  Hús voru rýmd á Patreksfirði í gærkvöldi  Hefðbundinn febrúarhvellur  Leiðum víða um landið var lokað í gær  Björgunarsveitamenn stóðu í ströngu  20 voru sóttir í bíla á Holtavörðuheiðinni Unnar Már Sigurbjörnsson Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ófært Við höfuðborgina var Suðurlandsvegi lokað með slá á Norðlingaholti. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Íslenskt skyr frá MS mun frá og með mánudeginum fást í Bretlandi en af því tilefni var efnt til veislu í sendi- ráðinu í London. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hélt meðal annars ávarp af því tilefni. MS hefur náð samkomulagi við Waitrose verslunarkeðjuna í Bret- landi sem rekur um 380 verslanir í landinu. Í upphafi mun íslenska skyrið, sem framleitt er hjá MS Sel- fossi, verða í boði í um 200 versl- unum og kom fram í veislunni að MS hefur góðar væntingar um að það eigi eftir að seljast vel. „Waitrose er verslunarkeðja í háum gæðaflokki og það verður áhugavert að tengjast þeim,“ segir Ari Edwald, forstjóri MS. Á síðasta ári voru seldar um 100 milljón skyrdósir á vegum MS en heildarverðmæti skyrsölu MS og samstarfsfyrirtækja var um níu milljarðar á síðasta ári. Íslenskt skyr fæst einnig í Sviss og á Norðurlöndunum. Sigmundur Dav- íð ávarpaði gesti í sendiráðinu og einnig verðlaunakokkurinn Agnar Sverrisson, eigandi Texture, en hann hefur notað skyr á sínum veitingastað. Texture er eini Michel- in-staðurinn í eigu Íslendings. Agn- ar hefur notað skyrið í eftirrétti sína svo eftir hefur verið tekið. Svipað verð og á Íslandi „Skyr mun kosta í kringum eitt pund sem er ekki langt frá verðinu sem þekkist á Íslandi. Við höfum náð árangri í Finnlandi sem er um fimm milljón manna markaður. Við höfum líka farið bratt af stað í Sviss þrátt fyrir að aðrir séu að selja skyr sem er ódýrara en okkar. Við telj- um að það sé engin ástæða til ann- ars en að vera bjartsýn og það er góð byrjun að byrja í um 200 versl- unum. MS byrjaði í 60 verslunum í Finnlandi en við erum nú í um 2500 verslunum. Í Sviss byrjaði skyr í 200 verslunum en er núna í um 500 verslunum. Við gerum okkur vonir að þróunin geti verið með svip- uðum hætti hér í Bretlandi,“ segir Ari. Nú geta Bretar gætt sér á íslensku skyri Ljósmyndir/Simona Susnea Skyr Um 150 manns komu saman í sendiráði Íslands í London í gær til að fagna því að íslenskt skyr mun nú fást í Bretlandi í Waitrose verslununum. Breskar skyrdósir Breska skyrið mun kosta um eitt pund. Málefni Sýrlands voru rædd á fundi leiðtoga um sjötíu ríkja í London í gær. Ríkin hafa lofað að veita meira en tíu milljarða dollara til hjálp- arstarfs í Sýrlandi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sat fundinn og verður framlag Íslands tveir millj- arðar króna. Sigmundur Davíð gerði grein fyr- ir því á fundinum hvernig fénu verð- ur varið. Hann segir að í heimsókn sinni til Líbanons í vikunni hafi kom- ið fram mikill samhljómur við stefnu Íslands um heildstæða nálgun til þess að takast á við vandann. Samhljómur við stefnuna Hæstiréttur dæmdi í gær hollenska konu, Mirjam Foekje van Twuijver, í átta ára fangelsi fyrir stórfelldan innflutning á fíkniefnum til landsins. Áður hafði hún verið dæmd í 11 ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness. Atli Freyr Fjölnisson hlaut fjögurra ára fangelsi í Hæstarétti fyrir að hafa veitt fíkniefnunum viðtöku og lækkaði þar með dómur héraðsdóms um eitt ár. Van Twuijver kom ásamt dóttur sinni til landsins á föstudaginn langa í fyrra með flugi frá Amsterdam. Falið í ferðatöskum þeirra fannst talsvert magn amfetamíns, kókaíns og MDMA. Hollenska kon- an fékk 8 ár

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.