Morgunblaðið - 05.02.2016, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 05.02.2016, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2016 BAKSVIÐ Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Júlíus Vífill Ingvarsson og Hildur Sverrisdóttir, lögðu fram fyrir- spurn í umhverfis- og skipulags- ráði Reykjavík- urborgar í fyrradag um fjölgun ferða- manna og til- heyrandi eft- irspurn eftir gistirýmum í Reykjavík. Í fyrirspurn- inni segir: „Fjölgun gisti- rýma, og íbúða sem notaðar eru í skamm- tímaleigu, hefur verið gríðarlega mikil. Slík ör breyting á borgar- bragnum veldur skiljanlegu óöryggi borgarbúa í nærumhverfi sínu. Þær áhyggjur sem heyrst hafa um að stefnuleysi varðandi utanumhald þeirrar nýju stöðu sé komið á hættustig eru því skilj- anlegar. Kvótar hafa verið settir varð- andi hótelrými í Kvosinni, en hvaða reglur gilda um hótelrými á öðrum svæðum miðborgarinnar og aðliggjandi hverfa? Hvaða stefnu- mótun er um önnur gistirými og gistiheimili? Nauðsynlegt er að eftirlit sé virkt og fyrir liggi hvernig til dæmis eigi að meta og mæla vistvæni hverfa, s.s. hvenær talið sé að gengið sé á félagsauð þeirra.“ Uppbygging hótelrýmis hröð Júlíus Vífill segir að þótt upp- bygging hótelrýmis sé mjög hröð núna sé hún ekki nálægt því að ná í skottið á þessari miklu fjölgun ferðamanna. „Við viljum þess vegna að það sé eitthvert utanumhald, eins og frumvarp iðnaðar- og viðskipta- ráðherra gerir ráð fyrir. En til þess að tryggja utanumhald og eftirlit þarf að tryggja að visst fjármagn verði fyrir hendi,“ sagði Júlíus Vífill í samtali við Morgun- blaðið í gær. Hann telur að eftirspurn eftir heimagistingu muni þverra þegar framboð á hótelrými eykst, en sú þróun að hluti erlendra ferða- manna sækist eftir gistingu í gegnum Airbnb, eða vilji hafa skipti á íbúðum, muni ekki breyt- ast. „Það þarf í raun að tryggja tvennt: að íbúar hverfanna séu ekki komnir inn í mitt ferða- mannahverfi í stað íbúðarhverfis og að ferðamennirnir séu ekki að kaupa sér gistingu þar sem þeir telja að þeir muni kynnast Íslend- ingum, en hitta svo mestmegnis erlenda ferðamenn í götunni eða hverfinu,“ sagði Júlíus Vífill. Ákveðið lágmarkseftirlit Hann kveðst ekki með þessu vera að segja að það eigi að girða fyrir heimagistingu og vera með mikil boð og bönn. Hann telji hins vegar að ákveðið lágmarkseftirlit sé nauðsynlegt, ekki síst þar sem orðið hafi ákveðnar breytingar á ferðavenjum fólks á undanförnum árum og áratugum. Án eftirlits geti heimagisting í síauknum mæli breytt öllu nærumhverfi ákveð- inna gatna og hverfa, ekki síst í nágrenni miðbæjar Reykjavíkur. Málinu frestað í ráðinu Júlíus Vífill segir að fyrirspurn hans og Hildar Sverrisdóttur hafi einungis verið lítillega rædd á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í fyrradag, en málinu hafi síðan verið frestað. Hann kveðst ekki vita hvenær eftirlits- og skipulagssvið muni svara fyrirspurninni, en yfirleitt berist svör sviðsins skjótt og vel og hann voni að svo verði í þessu efni einnig. Vilja eftirlit með heimagistingu  Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í umhverfis- og skipulagsráði með áhyggjur vegna aukningar heima- gistingar og áhrifa á heilu göturnar og hverfin  Ör breyting á borgarbragnum valdi óöryggi íbúa Morgunblaðið/Golli Kortið skoðað Gífurleg fjölgun ferðamanna, ekki síst í heimagistingu í miðborginni, veldur ýmsum áhyggjum. Júlíus Vífill Ingvarsson Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Um 35% þeirra ökumanna sem segj- ast tala í farsíma án handfrjáls bún- aðar segjast nota hann til annars, t.d. senda sms eða fara á netið oft, stund- um eða sjaldan. Um 62% vegfarenda segja farsímanotkun ökumanna valda truflun og álagi við akstur. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun sem Gallup gerði í lok síðasta árs meðal vegfarenda um umferðarhegð- un almennings. Samgöngustofa og áður Umferðarstofa hafa látið gera slíkar kannanir árlega frá árinu 2005. Gerð er athugun á hegðun og við- horfi vegfarenda til farsímanotkunar, hraðaksturs, bílbeltanotkunar, akst- urs eftir neyslu áfengis og hvaða at- riði í hegðun vegfarenda fer mest í taugarnar á svarendum. Um var að ræða netkönnun sem fór fram í nóvember sl. Úrtakið var nærri 1.500 manns á öllu landinu, eldri en 18 ára, og handahófsvaldir úr viðhorfs- hópi Gallup. Svarhlutfallið var 60,6%. Athygli vekur að flestir svarenda telja það almennt hættulegt að nota farsíma við akstur, eða um 83% virkra ökumanna, en litlu minna hlutfall við- urkennir engu að síður slíka notkun hjá sér, eða 74% sem segjast oft, stundum eða sjaldan tala í farsíma án handfrjáls búnaðar. Helst er að vegfarendur telji símtöl með handfrjálsum búnaði vera hættu- minni. Þannig telja yfir 20% það frek- ar eða mjög hættulítið og um 25% eru hlutlaus, telja það hvorki hættulegt né hættulítið að nota síma með hand- frjálsum búnaði. Samkvæmt könnuninni telja 78,2% það stórhættulegt að nota símann á netinu undir annað en samfélags- miðla, 77,2% telja það stórhættulegt að skoða samfélagsmiðla í símanum við akstur, 75,1% telur textaskilaboð stórhættulega iðju undir stýri, 65% flokka myndatökur á símanum sem stórhættulegar, að stjórna tónlist með símanum telja 47,8% vera stór- hættulegt og sama hlutfall er 25% þegar spurt er um hættuna af símtöl- um án handfrjáls búnaðar. Um 8% svarenda telja það frekar hættulítið að tala í farsímann án búnaðar. Í aldurshópnum 18-24 ára fækkar þeim ökumönnum sem segjast oft nota farsímann án handfrjáls búnaðar um 17% frá síðustu könnun. Sam- göngustofa segir skýringuna á því geta verið þá að ungir ökumenn noti símann ekki mikið til að tala í hann heldur til að senda eða lesa skilaboð, ásamt annars konar samskiptum sem snjallsímar bjóða upp á. Mismunandi eftir landshlutum Tæplega helmingur ökumanna, um 47%, sem segjast tala í farsíma og eru búsettir á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra svarar því ját- andi að nota farsíma til annars en að tala í hann. Algengast í þessum lands- hlutum, borið saman við aðra, er að ökumenn sendi t.d. sms eða fari á net- ið meðan á akstri stendur. Eykst þessi notkun um 15% í þessum lands- hlutum, sem Samgöngustofa telur neikvæða og hættulega þróun. Vera kann að þetta skýrist af minna um- ferðareftirliti en í öðrum landshlut- um. Um þriðjungur símnotenda við stýrið vafrar á netinu  Um 83% telja símanotkun hættulega í akstri en 74% viðurkenna slíka notkun Morgunblaðið/Þorkell Akstur Varasamt er að tala í farsíma við aksturinn. Myndin er sviðsett. „Í þessum könnunum okkar höfum við séð aukningu á farsímanotkun ökumanna og það er orðið mikið áhyggjuefni hjá þeim sem koma að umferðarörygg- ismálum,“ segir Einar Magnús Magnússon, sérfræð- ingur hjá Samgöngustofu. Einar segir mikilvægt að gera breytingu á lögum til samræmis við þá farsímanotkun sem greinilega tíðk- ist í dag. Notkun sé orðin allt önnur og meiri en fyrir 10 árum. Ökumenn séu ekki aðeins að tala í símana heldur að velja tónlist, fara á netið, senda sms og taka myndir. Aðspurður telur Einar að farsímanotk- unin sé meiri hér á landi en í flestum nágrannalöndum okkar. Sektir og viðurlög séu sömuleiðis harðari og full ástæða sé til að herða refsingar hérlendis. „Við verðum að fara að taka harðar á þessu. Núgildandi sektir og viðurlög endurspegla ekki alvöru þessara brota og við þurfum að senda skýr skilaboð með háum sektum,“ segir Einar Magnús. Herða þarf sektir og viðurlög SAMGÖNGUSTOFA HEFUR ÁHYGGJUR AF ÞRÓUNINNI Einar Magnús Magnússon „Ég hef kallað eftir því að formanns- kjöri og landsfundi verði flýtt svo flokkurinn fái nauðsynlega við- spyrnu. Þar með yrðu forystumál flokksins útkljáð og í framhaldinu farið í málefnavinnu eins og þarf þegar ár er til alþingiskosninga,“ segir Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Stjórn Samfylkingarinnar fundaði í gær og ræddi stöðu mála í flokkn- um, en í grasrótinni er þung krafa um breytingar vegna bágs gengis í skoðanakönnunum. Kallað hefur verið eftir því að landsfundi flokks- ins verði flýtt og samhliða gengið til kosninga. Ólína sagði á vefsíðu Sam- fylkingarinnar í vikunni að flokk- urinn lifði ekki til haustsins yrði ekki gripið til aðgerða. Sema Erla Ser- dar, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingar, telur ekki mögulegt, samkvæmt lögum flokksins, að halda reglulegan landsfund á þessu ári. Sema bendir jafnframt á að gert sé ráð fyrir að formaður sé kjörinn í allsherjarkosningu fyrir landsfund sé farið fram á það. Ekki komi hins vegar fram í lögunum hvenær slík kosning eigi að fara fram eftir að landsfundur hefur verið boðaður. Þetta muni framkvæmdastjórn flokksins þó fjalla betur um á næst- unni. sbs@mbl.is Landsfund- ur ræddur  Viðspyrnu þarf Fundur Samfylkingarfólk ræddi ástand og horfur í flokknum í gær. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.