Morgunblaðið - 05.02.2016, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 05.02.2016, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2016 Kringlunni - 103 Reykjavík - Sími 578 8989 - www.myrinstore.is Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Trúnaðarráðsfundur grunnskóla- kennara í Reykjavík, haldinn í síð- ustu viku, lýsti yfir þungum áhyggj- um af fjárhagslegri stöðu grunn- skólanna í Reykjavík. Trúnaðarráð grunnskólakennara í Reykjavík samanstendur af trúnaðarmanni úr röðum kennara úr hverjum einasta grunnskóla borgarinnar. Í yfirlýsingu trúnaðarráðsins sagði m.a.: „Fjár- hagur skólanna er með þeim hætti að það fé sem þeim er út- hlutað dugar ekki fyrir þjónustu sem skólunum er ætlað að veita, meðal annars vegna þess að niðurskurður kreppuáranna hefur ekki verið bættur. Af þessum ástæðum fóru flestir grunnskólar fram úr fjárveitingu ársins 2015 og er þeim nú gert að taka hallann með sér inn í nýtt rekstrarár. Trúnaðarráðið telur einnig mikið áhyggjuefni að síðasta árið hafi ekki verið sett fjármagn til stærri skóla- þróunarverkefna, svo sem innleið- ingar á nýrri aðalnámskrá. Verði ekkert gert til að bæta úr er ljóst að þjónusta skólanna mun skerðast og skólaþróun dragast saman.“ Búnaður í molum Rósa Ingvarsdóttir er formaður Kennarafélags Reykjavíkur. Hún sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að áhyggjur grunnskólakenn- ara í Reykjavík vegna yfirstandandi skólaárs væru miklar. „Okkar áhyggjur snúast ekki bara um þann niðurskurð sem er verið að undirbúa að hrinda í fram- kvæmd nú heldur snúa þær að því að grunnskólarnir í Reykjavík standa mjög illa fyrir þennan niður- skurð. Það er ekki verið að verja neinum fjármunun til skólanna, eins og til innleiðingar nýrrar aðalnám- skrár og annarra stærri verkefna. Búnaður í skólunum er allur í mol- um og hefur ekki verið endur- nýjaður frá því kreppan skall á. Það er einfaldlega svo margt í skólunum sem kallar á auknar fjárveitingar,“ sagði Rósa. Rósa segist telja að ef ekki náist að hagræða um þessar 670 milljónir sem nú er gerð krafa um óttist grunnskólakennarar að ráðist verði í einhverjar aðrar aðgerðir, sem muni þá bitna enn frekar á gæðum skólastarfsins og þjónustu. Hún segir að þegar blasi við að hægja muni á því lögbundna verk- efni sem grunnskólar borgarinnar eigi að sinna, sem er innleiðing nýrrar aðalnámskrár, vegna þess að ekkert fjármagn sé sett í skólaþró- unarverkefni og hafi ekki heldur verið gert á síðasta skólaári. Spurning um forgangsröðun Rósa segir að Kennarafélag Reykjavíkur hafi verið í sambandi við borgarstjórnarmeirihlutann, en svörin þaðan séu einfaldlega þau að ekkert fjármagn sé til, þótt þeir seg- ist hafa fullan skilning á þörfinni. „Í okkar huga snýst þetta um það sem við höfum verið að reyna að segja: Hver á forgangsröðunin að vera? Í hvað vilja menn setja pen- ingana? Vilja þeir forgangsraða í þágu samgöngumála? Við erum að hvetja borgina til þess að forgangs- raða í þágu barna og setja meiri peninga í skólana til þess að okkar unga fólk geti blómstrað í framtíð- inni,“ sagði Rósa Ingvarsdóttir. Forgangsraða eigi í þágu barnanna  Segir kennara hafa þungar áhyggjur af skólastarfinu í ár Morgunblaðið/Árni Sæberg Grunnskólar Kennarar í grunnskólum Reykjavíkur hafa áhyggjur af því að minnkandi fjárframlög til skólanna komi niður á gæðum skólastarfsins. Rósa Ingvarsdóttir Viðgerð á Samskip Hoffelli er að ljúka og er stefnt að því að skipið hefji aftur siglingar 15. febrúar næstkomandi. Talið er að sprunga hafi komið í þilfar skipsins í miklu óveðri. Það olli því að sjór komst í eldsneyti og er það talin helsta ástæða þess að allar vélar skipsins stöðvuðust. Guðmund- ur Þór Gunnarsson, framkvæmda- stjóri millilandasviðs Samskipa, sagði að taka hefði þurft ljósavélar skipsins upp. Skip var tekið á leigu í staðinn fyrir Samskip Hoffell og var tíminn nýttur til að dytta að ýmsu um borð. Hoffell er 15 ára. Áhafnir heiðraðar Áhafnir Arnarfells og Samskip Hoffells voru nýlega heiðraðar fyrir hugrekki, snarræði og útsjónarsemi þegar skipin lentu í erfiðleikum nú í byrjun ársins. Áhöfn Arnarfells var þakkað fum- leysi og áræði þegar henni tókst að ráða niðurlögum elds sem kom upp í vélarrúmi skipsins 5. janúar sl. Áhöfn Hoffells var þakkað hug- rekki og þrek sem hún sýndi við hættulegar og mjög krefjandi að- stæður þegar skipið missti vélarafl á leið til Reykjavíkur þann 10. janúar. Skipið var þá statt um 160 sjómílur suðvestur af Færeyjum í afar slæmu veðri þegar bilunin kom upp og voru aðstæður áhafnar mjög erfiðar allt þar til varðskipið Þór kom með það til hafnar. gudni@mbl.is Sjór komst í elds- neyti Hoffells  Samskip heiðraði áhafnir Arnarfells og Samskip Hoffells Ljósmynd/Samskip Heiðraðir F.v.: Artem Chaykov, skipstjóri á Hoffelli, Pálmar Óli Magnússon, forstjóri Samskipa, og Magnús Magnússon, skipstjóri á Arnarfelli. Samstarfsráð félagasamtaka í for- vörnum, SAFF, hefur sent frá sér yf- irlýsingu þar sem skorað er á þing- menn að fella áfengisfrumvarpið sem er til meðferðar á Alþingi. Vísa sam- tökin til stefnuyfirlýsingar ríkis- stjórnarinnar um bætta lýðheilsu landsmanna og forvarnastarf meðal barna og ungmenna. Í samstarfsráðinu eiga sæti alls 24 félagasamtök sem með einum eða öðrum hætti vinna að áfengis-, tób- aks- og vímuefnaforvörnum á vett- vangi mannræktar, velferðar, félags- mála, samfélagsþróunar, uppeldis- og skólamála, íþróttamála og tóm- stundastarfs. Meðal þeirra sem standa að yfir- lýsingunni má nefna Heimili og skóla, Krabbameinsfélag Reykjavíkur, UMFÍ, Skátana, Samhjálp, þjóð- kirkjuna, Lions á Íslandi, Samfés, Barnaheill, Vímulausa æsku, For- eldrahús, Olnbogabörn, HIV á Ís- landi, Vernd og FRÆ. „Við förum þess á leit að fulltrúar okkar á Alþingi kynni sér af kost- gæfni möguleg áhrif frumvarpsins á lýðheilsu og þjóðarhag og byggi af- greiðslu þess á rannsóknum, ráðgjöf og upplýsingum sérfræðinga í lýð- heilsumálum, áfengis- og vímuefna- málum og, ekki síst, þeirra sem sinna málefnum ungmenna,“ segir m.a. í yf- irlýsingu SAFF. Vitnað er til rannsókna um að auk- ið aðgengi og framboð á áfengi leiði til aukinnar neyslu. Áfengi sé engin venjuleg söluvara sem hægt sé að setja eingöngu í afmarkað markaðs- og viðskiptasamhengi. „Við vekjum athygli á að í stefnu- yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands seg- ir að bætt lýðheilsa og forvarnastarf verði meðal forgangsverkefna ríkis- stjórnarinnar. Í samræmi við það var sett á fót ráðherranefnd um lýð- heilsumál undir hatti forsætisráð- herra. Samhliða henni var einnig sett á fót sérstök ráðgefandi lýðheilsu- nefnd undir yfirstjórn heilbrigðis- ráðherra sem hafði það meginhlut- verk að vinna drög að heildstæðri stefnumótun og aðgerðaáætlun sem hefur það að markmiði að efla og bæta lýðheilsu á öllum aldursskeiðum en með sérstakri áherslu á börn og ungmenni,“ segir ennfremur í yfirlýs- ingunni en lýðheilsunefndin skilaði tillögum til ráðherra í fyrra. Morgunblaðið/Eggert Áfengissala Samkvæmt áfengisfrumvarpinu yrði einkaréttur ÁTVR á sölu áfengis afnuminn og hafa félagasamtök miklar áhyggjur af afleiðingunum. Skora á þingmenn að fella frumvarpið  SAFF mótmælir áfengisfrumvarpi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.