Morgunblaðið - 05.02.2016, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 05.02.2016, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2016 Vökudeild Barnaspítala Hringsins átti 40 ára afmæli 2. febrúar sl. Hringskonum var boðið til af- mælishátíðar í tilefni dagsins og þar tilkynnti formaður félagsins, Sonja Egilsdóttir, að samþykktar hefðu verið styrkbeiðnir að upphæð níu milljónir króna. Þeim verður varið til kaupa á fjórum mælum sem notaðir eru til að meta og stýra þörf fyrir önd- unarstuðning barns sem er í önd- unarvél. Einnig verða keyptar fimm brjóstamjólkurdælur. „Það er með mikilli ánægju og gleði sem Hringskonur afhenda þessar gjafir. Við þökkum starfs- fólki vökudeildarinnar fyrir frá- bært starf og óskum því alls hins besta í framtíðinni,“ segir í frétt frá Hringskonum. Morgunblaðið/Kristinn Vökudeild Barnaspítalinn við Hringbraut. Hringskonur færðu vökudeild gjafir Fjölmenningarsamfélagið Ísland verður skoðað frá fjölbreyttum sjónarhornum á viðamikilli ráð- stefnu sem fram fer í Háskóla Ís- lands laugardaginn 6. febrúar nk. frá kl. 10-14.30. Ráðstefnan ber heitið Fræði og fjölmenning 2016: Uppbygging og þróun íslensks fjölmenningarsam- félags og er henni ætlað að miðla og byggja upp frekari þekkingu á sviði fjölmenningar. Um 60 erindi í um 20 málstofum verða flutt á ráðstefnunni og snúa þau bæði að aðstæðum innflytj- enda, flóttafólks og hælisleitenda á Íslandi. Dagskrá ráðstefnunnar má einnig finna á: http://www.hi.is. Ráðstefnan er opin öllum og fer skráning fram með tölvupósti á net- fangið: jse@hi.is. Ráðstefna um fræði og fjölmenningu Laugardagskvöldið 6. febrúar verður haldin hátíð í Lágafellslaug í Mosfellsbæ undir heitinu Sund- laugarnótt. Tengist hún fjögurra daga Vetrarhátíð sem haldin er dagana 4.-7. febrúar í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæð- isins. Frítt í laugina frá kl. 19-21. „Í boði er frábær skemmtun fyrir fjölskylduna og kjörið að eiga sam- an notalega kvöldstund í sundi,“ segir í tilkynningu. Sundlaugarnótt í Lágafellslaug STUTT ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Óli G. Jóhannsson listmálari var áberandi maður í bæjarlífinu. Hann lést 2011 en listin heldur nafni hans á lofti og henni eru nú gerð góð skil í veglegri bók sem kom út í gær og kynnt var í menningarhúsinu Hofi.    Það er fjölskylda Óla, Lilja Sig- urðardóttir og börn þeirra fjögur, sem gefur bókina út í samstarfi við útgáfufélagið Sögur. Í tilefni útkomu bókarinnar er sýning á verkum Óla G í Hofi, þangað sem margir lögðu leið sína. Nánar um bókina í Sunnu- dagsblaði Morgunblaðsins.    Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni og er fyrsta heil- brigðisstofnunin á Íslandi til þess og raunar sú fyrsta á Norðurlöndum. Vottunaraðilinn er alþjóðlega fyr- irtækið DNV GL sem er eitt af stærstu fyrirtækjum á þessu sviði í heiminum.    Vottunin er samkvæmt þeim kröfum sem staðlar DNV GL Int- ernational Accreditation for Hospit- als gera til sjúkrahúsa. Þetta er fyrsti áfangi á leið til vottunar sjúkrahússins samkvæmt ISO 9001:2015 staðlinum sem stefnt er að á næsta ári.    Vottunin tekur m.a. til gæða- kerfis og gæðastjórnunar, áhættu- stýringar og áhættumats, skipulags, allrar klínískrar þjónustu, starfs- aðstöðu, húsnæðis og réttinda sjúk- linga og eru stjórnendur spítalans himinlifandi eins og gefur að skilja.    „Þetta skiptir heilmiklu máli; með þessu fáum við staðfestingu á því góða starfi sem starfsfólk okkar hefur unnið síðustu ár. Vottunin sýn- ir að við getum það sem við ætlum okkur,“ segir Hildigunnar Svav- arsdóttir, framkvæmdastjóri bráða-, fræðslu- og gæðasviðs SAk.    Sigurður E. Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri lækninga og stað- gengill forstjóra, tekur í sama streng. „Við tölum stundum um að heilbrigðiskerfið hér sé eitt það besta í heimi. Margt bendir til þess að við gerum góða hluti en hingað til höfum við ekki getað lagt fram mat þriðja aðila á því hvernig við stönd- um okkur. Þetta snýst um það: hing- að kemur utanaðkomandi aðili sem hefur það verksvið að meta heil- brigðisstofnun og gefa út ákveðið vottorð um að við uppfyllum stað- algæðakröfur; ekki bara mér finnst og ég held, heldur alþjóðlegar kröf- ur.“    Megin-drifkrafturinn í þessari vegferð sjúkrahússins, sem hlotið hefur nafnið Gæðingurinn, er aukið öryggi og þjónusta við sjúklinga og bætt starfsaðstaða, segja for- ráðamenn SAk. Vottunin og sú vinna sem henni tengist skili markvissari vinnuferlum, auknu öryggi sjúklinga og starfsmanna og tryggi stöðugar umbætur sem munu leiða til skil- virkari þjónustu. Þá skerpi hún á hlutverkum hvers og eins sem m.a. hefur jákvæð áhrif á vinnuumhverfi og samskipti sem eru lykilþættir í starfsánægju.    Fulltrúar DNV GL komu tvisvar í heimsókn á SAk og koma einu sinni á ári héðan í frá til að gera út- tekt á starfinu. „Það heldur okkur á tánum að halda áfram í þessari þró- un. Við höfum fengið staðfest að við erum að gera góða hluti og við ætl- um að sjálfsögðu að halda því áfram,“ segir Hildigunnur. „Því má ekki gleyma að í svona úttektum fáum við ýmsar ábendingar um eitt- hvað sem betur má fara og við erum með aðgerðaráætlun sem hjálpar okkur á þeirri vegferð sem við erum á.“    Bæjarstjórn Akureyrar skorar á ríkisstjórn Íslands og borgarstjórn Reykjavíkur að tryggja óskerta starfsemi Reykjavíkurflugvallar og tryggja þar með öryggishagsmuni íbúa landsbyggðanna, a.m.k. þangað til jafngóð eða betri lausn finnst. Þetta kemur fram í bókum sem Njáll Trausti Friðbertsson lagði fram í bæjarstjórn í vikunni og var sam- þykkt samhljóða.    Í bókuninni segir ennfremur: „Það er með öllu ólíðandi að dregið verði úr öryggi sjúklinga og slasaðra sem þurfa að komast með hraði á Landspítalann þar sem staðsett er sérhæfð þjónusta s.s. hjartaþræð- ingar, heila- og taugaskurðlækn- ingar og vökudeild.“    Á nýliðnu ári voru 752 fluttir í sjúkraflugi. þar af rúmlega 85% með flugvélum Mýflugs og tæplega 15% með þyrlum Landhelgisgæsl- unnar. „Því miður er óraunhæft að ætla að í náinni framtíð skapist þær aðstæður í íslenskri heilbrigðisþjón- ustu að ekki verði þörf á að koma mörgum af erfiðustu tilfellunum sem koma upp á landsbyggðunum á Landspítalann við Hringbraut. Mikilvægt er að aðgengi íbúa landsbyggðanna að öflugustu heil- brigðisþjónustu landsmanna sé tryggt,“ segir í bókuninni.    Í kvöld verða tónleikar til heiðurs Amy heitinni Winehouse á Græna hattinum; Bryndís Ásmundsdóttir söngkona flytur lög Winehouse ásamt hljómsveit. Á morgun verður svo hljómsveitin Dimma með tón- leika á staðnum. SAk fyrst með alþjóðlega gæðavottun Bókin Þórhallur Jónsson sem tók allar ljósmyndir í bókina, Lilja Sigurð- ardóttir, ekkja Óla G, og börn þeirra: Hjördís Óladóttir, Sigurður Ólason og Hrefna Óladóttir. Örn Ólason, sem hannaði bókina, var fjarverandi. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Litagleði Gestir í útgáfuhófi í menningarhúsinu Hofi í gær flettu spenntir listaverkabókinni um Óla G. Jóhannsson. TORMEK Brýnsluvélar Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is ▲ Tormek T-4 er uppfærsla á T-3 og er nú kominn með málmhaus sem eykur nákvæmni um 300% Fylgihlutir sjást á mynd. Verð: 65.890 ▼ Tormek T-7 er hannaður fyrir látlausa notkun og mikil afköst. Fylgihlutir sjást á mynd. Verð: 110.700 Opið virka daga frá 9-18 lau frá 10-16 Allar stýringar fyrirliggjandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.