Morgunblaðið - 05.02.2016, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2016
Umboðsaðili: Yd heildverslun, s. 587 9393, yd@yd.is, YdBolighus
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Sigurjón Árnason, fyrrverandi
bankastjóri Landsbankans, var í gær
dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir
hlut sinn í svonefndu markaðsmis-
notkunarmáli Landsbankans. Ívar
Guðjónsson, fyrrverandi forstöðu-
maður eigin fjárfestinga bankans, var
dæmdur í 2 ára fangelsi og Júlíus S.
Heiðarsson, fv. starfsmaður eigin
fjárfestinga, var dæmdur í 1 árs fang-
elsi. Sindri Sveinsson, fv. starfsmaður
eigin fjárfestinga Landsbankans,
fékk níu mánaða dóm.
Allir dómarnir voru óskilorðs-
bundnir. Var dómurinn þyngdur um
hálft ár yfir Sigurjóni en hann hafði
verið dæmdur í Héraðsdómi Reykja-
víkur í 12 mánaða fangelsi, þar af níu
mánuði skilorðsbundna.
Sigurjón hafði áður fengið þriggja
og hálfs árs dóm í svonefndu Ímon-
máli og er dómurinn nú hegningar-
auki við fyrri dóm. Hefur Sigurjón því
fengið samtals fimm ára dóm vegna
hrunmálanna svokölluðu.
Þyngdi dóma héraðsdóms
Ívar og Júlíus voru dæmdir í níu
mánaða fangelsi í héraðsdómi, þar af
sex mánuði skilorðsbundna, en Sindri
var sýknaður. Dómur Hæstaréttar
var því þynging á dómi héraðsdóms
yfir öllum ákærðu og fékk Sindri dóm
þótt hann hefði verið sýknaður áður.
Ákært var fyrir tímabilið 1. nóvember
2007 til 3. október 2008 þegar bankinn
var tekinn yfir. Voru allir sýknaðir
fyrir tímabilið 1. nóvember 2007 til 26.
september 2008, en þremenningarnir
Sigurjón, Ívar og Júlíus fundnir sekir
í héraði um síðustu vikuna.
Í grunninn gengur málið út á að
deild eigin fjárfestinga hjá Lands-
bankanum keypti mikið magn bréfa í
bankanum sjálfum, en þau kaup náðu
hámarki vikuna áður en bankinn var
tekinn yfir.
Í dómi Hæstaréttar segir að þessi
viðskipti hafi verið líkleg til að gefa
verð hlutabréfa í Landsbankanum
ranglega til kynna: „Ekki leikur neinn
vafi á að sá mikli fjöldi tilboða, sem
ákærðu Júlíus og Sindri gerðu, og þau
umfangsmiklu viðskipti, sem þeir áttu
þátt í að koma á, gáfu eða voru í það
minnsta líkleg til að gefa eftirspurn
og verð hlutabréfa í Landsbanka Ís-
lands hf. ranglega eða misvísandi til
kynna.
Með þessari háttsemi brutu þeir
því af ásettu ráði og á refsiverðan hátt
gegn a. lið 1. töluliðar 1. mgr. 117. gr.,
sbr. 1. tölulið 146. gr. laga nr. 108/
2007, enda verður slík háttsemi ekki
skýrð með því að lögmætar ástæður
hafi búið að baki henni ellegar hún
verið í samræmi við viðurkennda
markaðsframkvæmd á skipulegum
verðbréfamarkaði,“ segir í dómi
Hæstaréttar.
Brotin ekki metin til fjár
Í dómnum segir að ekki sé hægt að
meta brotin til fjár, en þau hafi valdið
víðtækum afleiðingum.
„Brotin leiddu til alvarlegrar rösk-
unar á verðbréfamarkaði með víðtæk-
um afleiðingum fyrir fjármálamark-
aðinn hér á landi og allan almenning,
en tjónið, sem af þeim hlaust verður
ekki metið til fjár.“ Við ákvörðun refs-
ingar verður horft til þess hve alvar-
leg brotin voru. Jafnframt ber að líta
til þess að ákærði Sigurjón gegndi
starfi bankastjóra og var yfirmaður
ákærða Ívars. Undir hann heyrðu
ákærðu Júlíus og Sindri og var brot
þess fyrrnefnda sýnu alvarlegra en
þess síðarnefnda.
Það horfir ákærðu til hagsbóta að
enginn þeirra hafði brotið af sér þeg-
ar brotin voru framin þannig að áhrif
hafi á ákvörðun refsingar. Þótt rann-
sókn og meðferð málsins fyrir dómi
hafi samanlagt tekið langan tíma
verður ekki litið svo á að hún hafi
dregist úr hófi fram.“
Saksóknari setti málin upphaflega
fram sem eitt mál, markaðsmisnotk-
unarmál, en það sama var uppi á ten-
ingnum varðandi markaðsmisnotkun-
armál Kaupþings. Héraðsdómur
ákvað aftur á móti að skipta málinu
upp í sölu- og kauphluta í Lands-
bankamálinu en Kaupþingsmálið var
rekið áfram sem eitt mál. Úr varð að
söluhlutinn – Ímon-málið – var rekinn
sérstaklega fyrir dómstólum og
fékkst niðurstaða Hæstaréttar í því
máli í október í fyrra. Auk Sigurjóns
voru þau Sigríður Elín Sigfúsdóttir,
fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrir-
tækjasviðs bankans, og Steinþór
Gunnarsson, fyrrverandi forstöðu-
maður verðbréfamiðlunar Lands-
bankans, fundin sek í málinu.
Telur dóminn fordæmisgefandi
Arnþrúður Þórarinsdóttir sak-
sóknari sagði ljóst að brotin væru litin
alvarlegum augum.
„Þetta eru allt óskilorðsbundnir
dómar óháð því hvaða stöðu menn
gegndu innan bankans. Í tilviki
ákærða Sigurjóns er um hegningar-
auka að ræða þannig að refsingin er
höfð með hliðsjón af dóminum í svo-
kölluðu Ímon-máli,“ sagði hún.
Aðspurð hvort hún telji málið for-
dæmisgefandi telur hún svo vera.
„Ljóst er að mál Kaupþings bíður
afgreiðslu í Hæstarétti. Þetta er svip-
uð háttsemi, þó engin tvö mál séu
eins,“ segir hún. Dómur féll í héraðs-
dómi í svonefndu markaðsmisnotkun-
armáli Kaupþings síðasta sumar, en
það bíður nú afgreiðslu Hæstaréttar.
Í því máli voru níu fyrrverandi starfs-
menn ákærðir.
Tjónið verði ekki
metið til fjár
Hæstiréttur þyngdi dóma héraðsdóms í svonefndu mark-
aðsmisnotkunarmáli Landsbankans Sigurjón Þ. Árnason
dæmdur í 18 mánaða fangelsi Dómarnir óskilorðsbundnir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dómsmál Sigurður G. Guðjónsson hrl. ræðir við skjólstæðing sinn, Sigurjón Þ. Árnason, fyrrv. bankastjóra Lands-
bankans, á fyrri stigum málsins. Ívar Guðjónsson, fyrrv. forstöðumaður eigin fjárfestinga bankans, er þeim við hlið.
Norsku loðnuskipin Eros og Fiske-
bas komu í gær til Fáskrúðsfjarðar
með samtals um 450 tonn af fallegri
loðnu. Aflinn veiddist í fyrrinótt en
skipin komu í land vegna væntan-
legrar brælu á miðunum.
Friðrik Mar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar á
Fáskrúðsfirði, og Kjartan Reynis-
son útgerðarstjóri færðu áhöfnum
beggja skipanna glæsilegar kökur
skreyttar myndum af skipunum.
„Hér er siður að menn fái köku
þegar þeir koma með góðan afla,“
sagði Friðrik. „Loðnan var mjög
fín. Hún fer í frystingu og
bræðslu.“ Skipin eru vel búin með
kælitanka fyrir aflann og skila
fyrsta flokks hráefni. En hvernig
líst Friðriki á útlitið varðandi
loðnuveiðar?
„Við erum ýmsu vanir í þeim efn-
um. Stundum breytist þetta hratt. Í
þessari grein þarf maður að vera
viðbúinn öllu. Þessi kvóti, 100 þús-
und tonn, er ekki neitt fyrir Íslend-
inga. Hafrannsóknaskipin eru að
leita og vonandi kemur eitthvað út
úr því,“ sagði Friðrik.
Í gær hafði 21 norskt loðnuskip
tilkynnt komu eða var komið á
loðnumið við Ísland. Færeyska
loðnuskipið Nordborg var á heim-
leið með um 1.350 tonn af loðnu. Sjö
íslensk skip voru á kolmunna við
Færeyjar, samkvæmt upplýsingum
frá Vaktstöð siglinga.
gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Albert Kemp
Fáskrúðsfjörður Friðrik Mar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Loðnu-
vinnslunnar, og Kjartan Reynisson útgerðarstjóri með girnilega köku.
Skipverjar fengu fínar
kökur á Fáskrúðsfirði
Í dómnum segir að brotið hafi ver-
ið á rétti ákærðu með því að hlusta
á símtöl þeirra, skömmu eftir að
þeir höfðu gefið skýrslu hjá lög-
reglu þar sem þeir höfðu rétt-
arstöðu sakborninga og var því
óskylt að svara spurningum um
refsiverða hegðun sem þeim var
gefið að sök.
Mikið hefur verið deilt um hler-
anir embættis sérstaks saksókn-
ara í þessu máli sem og öðrum
hrunmálum, en ákærðu í þeim hafa
meðal annars gagnrýnt harðlega
að tekin hafi verið upp símtöl
þeirra við verjendur. Í dómi Hæsta-
réttar kemur fram að slíkar upp-
tökur hafi ekki verið lagðar fram í
málinu og tekur þar af leiðandi
ekki frekari afstöðu til þess hlutar.
Aftur á móti eru hleranir lögreglu á
símum ákærðu í kjölfar yfirheyrslu
þeirra hjá lögreglu gagnrýndar.
Segir í dómnum að því verði þau
símtöl ekki notuð sem sönn-
unargögn í málinu. „Með því að
hlusta á símtöl ákærðu við þessar
aðstæður, þótt það væri gert á
grundvelli dómsúrskurða, var brot-
ið gegn rétti þeirra til réttlátrar
málsmeðferðar samkvæmt 1. mgr.
70. gr. stjórnarskrárinnar og 1.
mgr. 6. gr. samnings um verndun
mannréttinda og mannfrelsis, sbr.
lög nr. 62/1994 um mannréttinda-
sáttmála Evrópu. Því verður horft
framhjá upptökunum við úrlausn
málsins,“ segir í dómnum.
Hleranir voru brot á rétti
HORFT VAR FRAM HJÁ UPPTÖKUM VIÐ ÚRLAUSN MÁLSINS