Morgunblaðið - 05.02.2016, Síða 19

Morgunblaðið - 05.02.2016, Síða 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2016 Rómantískur 13.-14. & 20.-21. febrúar, 20.-21. mars 9.990 kr. fyrir tvo matseðill fyrir tvo O Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk. | Sími 551 5979 | lebistro.is Forréttur til að deila Moules Marnieres (kræklingur) ✶ ✶ ✶ Aðalréttur, val um: Poulet aux ecrevisses (kjúklingur með ferskvatnshumri) Carré d‘agneau en croûte d‘herbes (grillaður lambahryggur í kryddskorpu) ✶ ✶ ✶ Eftirréttur til að deila Planche de verrines (úrval eftirrétta í glösum) Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Framkvæmdastjóri Þörungaverk- smiðjunnar á Reykhólum segir að samkvæmt langri reynslu fyrirtæk- isins séu nýtanleg 20 til 25 þúsund tonn af þangi í Breiðafirði á hverju ári. Það er lítið umfram hráefnisþörf fyrirtækisins. Því sé ekki mikið svig- rúm fyrir nýja aðila. Þörungaverksmiðjan hefur verið starfrækt á Reykhólum í 40 ár. Hún býr að mörgu leyti við kjöraðstæður, miklar þangfjörur, jarðhita, hreinan sjó og mikla reynslu og þekkingu starfsmanna. Á ýmsu hefur gengið í rekstrinum á þessum tíma. Fyrir- tækið er nú að mestu í eigu banda- ríska fyrirtækisins FMC og Byggða- stofnunar. Reksturinn gengur vel og er fyrirtækið ákaflega mikilvægt fyrir byggðina. Nú er verið að undirbúa nýja verksmiðju í Stykkishólmi, sem verður enn afkastameiri. Þá hyggj- ast ábúendur á Miðhrauni þurrka þörunga og hafa komið sér upp bún- aði til þess. Leyfi samkvæmt rannsóknum Sveitarstjórn Reykhólahrepps og fleiri aðilar hafa varað við hvert stefnir. Fyrirtækin sem um ræðir hafa haft samvinnu um að Hafrann- sóknastofnun skipuleggi og standi að rannsóknum á stærð þang- og þörungastofnsins í Breiðafirði og af- kastagetu. Rannsóknir á þangi hefj- ast í vor og fyrstu niðurstöður ættu að liggja fyrir í haust. Stjórnendur Þörungaverksmiðjunnar hafa lagt áherslu á það við ráðuneytið að það grundvalli stýringu á nýtingu auð- lindarinnar á niðurstöðum rann- sókna Hafró. Gamlar rannsóknir bentu til að milljón tonn af þangi væru í Breiða- firði. Finnur segir að það segi ekki alla söguna, lífmassi af nýtanlegu þangi skipti meira máli. Reynsla starfsmanna Þörungaverksmiðjunn- ar sem hafa aflað þangs þar í 40 ár bendi til að aðeins séu nýtanleg 100 til 120 þúsund tonn. Þörungavinnsl- an hvíli svæðin að jafnaði í fjögur ár á milli slátta og þess vegna sé ekki óhætt að slá nema 20-25 þúsund tonn á ári. Verksmiðjan aflar allt að 20 þúsund tonna á ári. Svigrúmið fyrir nýja aðila sé ekki mikið. Öll framleiðsla Þörungaverk- smiðjunnar hefur lífræna vottun. Hún grundvallast meðal annars á sjálfbærri nýtingu á þangi og þara úr Breiðafirði. Finnur segir að allar líf- rænar vottanir verði afnumdar ef rányrkja verður stunduð á auðlind- inni. Nýjar vörur væntanlegar „Verksmiðjan hér er í stöðugri endurnýjun og það kallar á fjárfest- ingar. Jafnframt er unnið að vöruþróun til að undirbúa framtíð- ina,“ segir Finnur. Ekki mikið svigrúm fyrir nýja  Þörungaverksmiðjan á Reykhólum nýtir megnið af þanginu sem vex í Breiðafirði á hverju ári  Framkvæmdastjórinn segir að rányrkja eyðileggi lífræna vottun  Samvinna um rannsóknir Ljósmynd/www.mats.is, Mats Wibe Lund Reykhólar Þörungaverksmiðjan á Reykhólum og höfnin. Miklar þangfjörur eru þar í kring en hráefni þó sótt víða. Hafró mun í sumar rannsaka stærð þangstofnsins í Breiða- firði og afkastagetu. Á næstu árum verður þarastofninn síðan rannsakaður. Karl Gunnarsson, sjávarlíf- fræðingur hjá Hafrannsókna- stofnun, segir að byrjað verði á því að meta magn þangs. Við það verði notaðar beinar mæl- ingar á uppskeru í fjörum og þáttum sem hafa áhrif þar á. Einnig verða notaðar gervi- tunglamyndir og loftmyndir til að meta heildarflatarmál þang- breiðanna. Með því að bera þessi gögn saman á að vera hægt að áætla magn þangs í firðinum. Loks verða gerðar mælingar á vexti þangs eftir slátt. Karl segist ekki gera sér grein fyrir því hvort það stefni í ofnýtingu þangs og þara. Hann segir mikilvægt að hags- munaaðilar hafi sameinast um rannsóknina. Það sýni að þeir vilji gera vel. Mikilvægt sé að kanna þetta vel og stíga varlega til jarðar. Afkastagetan verður metin BREIÐAFJÖRÐUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.