Morgunblaðið - 05.02.2016, Síða 22

Morgunblaðið - 05.02.2016, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Viðræður hóf-ust á mánu-daginn í Genf á milli fulltrúa stjórnarandstæð- inga og ríkis- stjórnar Bashars al Assads Sýrlands- forseta um það hvernig hægt væri að koma á vopnahléi í sýr- lenska borgarastríðinu, sem nú hefur staðið í nærri því fimm ár. Viðræðurnar voru vart komnar af stað þegar Sameinuðu þjóð- irnar ákváðu að fresta þeim til loka febrúar og hafði þá lítt þok- ast áfram. Það hjálpaði ekki málstað frið- arins, að stjórnarher Assads ákvað að hefja stórsókn í kring- um borgina Aleppo í norðurhluta Sýrlands stuttu áður en viðræð- urnar áttu að hefjast. Stjórnar- herinn hefur, með dyggri aðstoð rússneska flughersins, náð að ýta andstæðingum sínum til baka og meðal annars tekið til baka þorp og bæi sem hafa verið undir stjórn uppreisnarmanna síðustu árin. Þá er herinn mjög nálægt því að slíta á tengsl Aleppo við landamæri Tyrklands, þaðan sem uppreisnarmenn hafa fengið nauðsynlegan stuðning. Skiljanlega hefur stjórnarand- staðan því gert þá kröfu að loft- árásum Rússa linni undireins og að stjórnarherinn hætti við sókn sína. Bandaríkjastjórn og önnur vestræn ríki hafa tekið undir þá kröfu. Rússar hafa hins vegar hafnað því, og segja að þeir muni ekki láta af loftárásum sínum fyrr en búið sé að knésetja hryðju- verkasamtök á svæðinu, og vísa þar meðal annars til Nusra-fylking- arinnar, undirsáta Al Qaeda-samtak- anna. Vandinn sem Vesturlönd og stjórnarandstaðan standa frammi fyrir er einfaldlega sá, að Assad og Pútín Rússlandsforseti hafa litla sem enga ástæðu til þess að ræða frið, meðan sókn þeirra er í fullum gangi. Á sama tíma hafa ríkisstjórnir Vestur- landa lagt mjög mikla áherslu á að ná fram vopnahléi, bæði til þess að hægt verði að stemma stigu við flóttamannastraumnum mikla til Evrópu og til að hægt verði að einbeita kröftunum í að ráða niðurlögum Ríkis íslams. Þegar Rússar hófu loftárásir sínar seint á síðasta ári mátu sér- fræðingar stöðuna svo, að líklega myndu þeir geta viðhaldið stöðu Assads, en ekki mikið meira en það. Nú er hins vegar að koma á daginn, að stuðningur Rússa hef- ur reynst mun þyngri á metunum en talið var. Staffan de Mistura, fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Sýrlandi, neitar því að viðræðurnar séu að fara í súginn. Hann segir að við- ræðurnar séu nú á „könnunar- stigi“, sem geti varað í allt að sex mánuðum. Haldi fram sem horfir er alls óvíst að stjórnarand- staðan verði í nokkurri samn- ingsstöðu eftir það langan tíma. Assad telur sig vera í sigurstöðu og hef- ur því lítinn hug á samningum} Slegið á friðarvonir FjárhagurReykjavíkur- borgar hefur verið í ólestri, þrátt fyrir að allir skattar hennar og gjöld séu í toppi. Nýlega tilkynntu borg- aryfirvöld að þau þyrftu að skera niður í rekstrinum um vel á ann- an milljarð króna. Góðu frétt- irnar eru þær, að svo miklu leyti sem hægt var að skilja útlistun borgarstjóra, að niðurskurð- urinn mun ekki bitna á nokkrum manni. Þannig á að skera niður um 70 milljónir í mötuneytum leik- og grunnskóla. Í fréttum „RÚV“ um málið sagði: „Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að 70 milljóna króna hagræðing í mötuneytis- þjónustu leik- og grunnskóla borgarinnar þýði aðeins breyt- ingar í völdum skólum. Ekki eigi að draga úr gæðakröfum. Þessi hagræðing er hluti af hagræðing- artillögu meirihlutans í borg- arstjórn sem var samþykkt í gær. Dagur segir að kannað hafi verið hvaða skólar séu í þannig stöðu að þeir vilji gera breyt- ingar á matarmálum. Dagur borgarstjóri: „Það er oftast af tvennum ástæðum, annars vegar að eldhúsin séu komin á tíma og þarf að fara í kostn- aðarsamar fram- kvæmdir eða að það hafi einfald- lega gengið illa að ráða matráða til starfa og sviðið hyggst vinna með þessum skólum sem eru áhugasamir og viljugir til þess að gera breytingar og treystu sér til þess að ná hagræðingu án þess að það gangi á gæðin. Og ég held að þetta sé einkennandi fyrir til- lögugerð sviðanna, það er búið að liggja vel yfir þessu, þetta eru ábyrgar tillögur sem að nálgast þjónustuna af þeirri virðingu sem nauðsynlegt er því að borgin er auðvitað að sinna mjög mörg- um mikilvægum verkefnum.“ Morgunblaðið gefur lesendum sínum kost á að leysa úr þessari krossgátu og koma fram með til- lögu að niðurstöðu um hvað þessi texti kunni að þýða. (Gefið er að orðið hagræðing er notað í stað- inn fyrir niðurskurð.) Veitt verða bókarverðlaun fyrir líklegustu tilgátuna. (Umhverfis sjálfan sig 80 sinnum á einum Degi eftir Júl- íus V.) Danir kalla þetta að vera með ullarlagð uppi í sér} Sparnaðurinn felst m.a. í ónýtum eldhúsum E f kona sætir líkamsárás í tví- gang, í annað skiptið þegar hún er barnshafandi og í hitt skiptið fyrir framan börnin sín, þykir hæfileg refsing ofbeldismanns- ins þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og samtals 600.000 króna skaðabætur til kon- unnar og barnanna. Slíkur dómur féll í Héraðsdómi Vesturlands núna í vikunni og geta áhugasamir lesið hann og lýsingu á málsatvikum á vefsíðu dómstóls- ins. Þar má t.d. sjá að maðurinn tók konuna kverkataki, dró hana á hárinu og steig ofan á háls hennar þar sem hún lá á gólfi. Svo það sé nú engum vafa undiropið leikur enginn vafi á sekt mannsins. Hann játaði árásirnar og því má líka halda til haga að far- ið var fram á talsvert hærri skaðabætur fyrir konuna og börnin hennar. Margir hafa tjáð sig um þennan dóm á samfélags- miðlum og finnst sumum hann lítt hæfa brotinu. Und- irrituð er ekki lögfræðimenntuð og hefur litla þekkingu á laganna bókstaf og fýsti því að vita við hvers konar brot- um þessi sama refsing, þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi, hefur þótt hæfileg. Við örstutta leit á netinu finnast allnokkrir dómar þar sem fólki hefur verið dæmd sama refsing fyrir hin marg- víslegustu brot. T.d. var maður dæmdur í þriggja mán- aða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára fyrir skömmu fyrir að aka upp að tveimur konum sem voru á gangi og áttu sér einskis ills von þegar hann tók skyndilega upp á því að fróa sér undir stýri. Fyrir nokkrum ár- um var maður dæmdur til sömu refsingar fyrir að æpa ókvæðisorð að lögreglumanni og sparka í hann og þá er ekki langt síðan sama refsing þótti hæfileg fyrir landabrugg. Í fyrra var maður dæmdur í þriggja mán- aða skilorðsbundið fangelsi fyrir að þukla á afturenda unglingspilts og þá þóttu sömu við- urlög líka hæfileg fyrir að brjótast inn í tvö sumarhús á Suðurlandi. Þessi brot eru eingöngu tiltekin hér vegna þess að hæfileg refsing fyrir þau þótti sú sama og fyrir brotið sem tilgreint er í upp- hafi greinarinnar. Í þessari upptalningu eru ekki öll heimilisofbeldismálin þar sem dæmt var til sömu, eða vægari refsingar. Þau eru nefnilega svo mörg. Mörg sveitarfélög hafa farið í átak gegn heimilisofbeldi og þá hafa lögregluembætti víðs vegar um landið skorið upp herör gegn því. Umræða hefur aukist, þolendur stíga fram og segja sögu sína, það hafa líka nokkrir gerendur gert og úrræðum fyrir þá hefur fjölgað. Þá hefur verið fjallað talsvert um heimilisofbeldi í fjölmiðlum og má í því sambandi nefna stórgóðan greinaflokk Egils heitins Ólafssonar, blaðamanns á mbl.is og Morgunblaðinu, sem birtist á mbl.is sumarið 2013. Þessi viðhorfabreyting virðist þó ekki hafa náð inn í dómsalina. Þessi tiltekni dómur og aðrir slíkir senda skýr og einföld skilaboð til þolenda heimilisofbeldis: það tekur því eiginlega ekki að kæra. annalilja@mbl.is Anna Lilja Þórisdóttir Pistill Landabrugg = heimilisofbeldi? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Uppgangur lífeyrissjóða-kerfisins hefur verið mik-ill á umliðnum áratugum.Saga Lífeyrissjóðs verzl- unarmanna, sem fagnar um þessar mundir 60 ára afmæli sínu, sýnir þetta vel. Fyrir tæpum 50 árum, árið 1967, náði fyrsti sjóðfélaginn í Lífeyrissjóði verzlunarmanna ellilífeyrisaldri. Tveir aðrir bættust við það sama ár, en þeir urðu ekki fleiri fyrr en árið 1971 þegar þeim fjölgaði í ellefu. Til samanburðar voru lífeyrisþegar hjá sjóðnum á seinasta ári orðnir 9.192 talsins og fengu þeir greiddar 7.507 milljónir í ellilífeyri. Meðaltalsraunávöxtunin yfir 7% undanfarin fimm ár Lífeyrissjóður verzlunarmanna var stofnaður 1. febrúar árið 1956 og fagnar sjóðurinn þeim tímamótum með margvíslegum hætti á afmælis- árinu. Afkoma sjóðsins hefur verið góð undanfarin ár og þó endanlegar nið- urstöður fyrir nýliðið ár liggi ekki fyrir er ljóst að nýliðið ár var sjóðn- um mjög hagfellt, samkvæmt upplýs- ingum sem fengust hjá sjóðnum í gær. Meðaltalsraunávöxtun undan- farin fimm ár er yfir 7%. Forsvarsmenn sjóðsins hafa tek- ið saman ýmsar upplýsingar um sögu sjóðsins, aðdraganda að stofnun hans og stöðu lífeyrissjóðsins í tilefni af af- mælinu. Þar kemur fram að sjóð- urinn er nú um 580 milljarðar króna að stærð „og má vænta að á afmælis- árinu nái hann táknrænni stærð og hrein eign til greiðslu lífeyris fari yfir 600 milljarða markið,“ segir í grein sem birt er á vefsíðu sjóðsins. Á síð- ustu árum hefur sjóðurinn vaxið ár frá ári. Í árslok árið 2014 var hrein eign sjóðsins um 509 milljarðar króna og hafði þá aukist um 12,2% frá árinu á undan. Til samanburðar virðist hrein eign allra lífeyrissjóða landsins, bæði samtryggingar- og séreignardeilda, hafa náð 3.300 milljörðum í lok nýlið- ins árs skv. bráðabirgðatölum Seðla- bankans og þar með aukist um hátt í 400 milljarða á síðasta ári en í árslok 2014 námu eignir þeirra 2.925 millj- örðum kr. Lífeyrissjóður verzlunarmanna er næststærsti lífeyrissjóður landsins og kemur fast á hæla Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, sem er stærstur í eignum talið. Eftir stofnun sjóðsins á sínum tíma var aðild að lífeyris- sjóðnum frjáls og gerðust rúmlega 200 manns sjóðfélagar. Um 150 þúsund manns eiga réttindi í lífeyrissjóðnum í dag Í sögulegri upprifjun sjóðsins kemur fram að sjóðfélögum fjölgaði hratt og strax á fyrsta starfsárinu voru þeir orðnir um 700. Í dag eiga um 150 þúsund manns meiri eða minni réttindi í sjóðnum, þ.e.a.s. hafa á einhverjum tíma greitt iðgjöld til sjóðsins. Eru virkir sjóðfélagar í dag um 48 þúsund talsins. Lífeyrisgreiðslurnar hafa aukist jafnt og þétt samhliða fjölgun lífeyr- isþega. „Alls voru greiddar 36 þúsund krónur í ellilífeyri fyrsta árið til þriggja fyrstu lífeyrisþeganna. Árið 1980 (árið fyrir myntbreytingu þegar nýkróna varð jafngild 100 gömlum krónum) voru greiddar 264.876 krón- ur í ellilífeyri til 183 lífeyrisþega. Árið 2015 voru greiddar 7.507 milljónir króna í ellilífeyri til 9.192 lífeyris- þega,“ segir í samantekt sjóðsins. Greiðslur sjóðsins vega þungt í lífeyr- isgreiðslum landsmanna. Þannig námu t.a.m. ellilífeyrisgreiðslur al- mannatrygginga 41 milljarði kr. á árinu 2014 en greiðslur lífeyrissjóða til ellilífeyrisþega voru þá um 66 millj- arðar. 600 milljarða stærð á 60 ára afmælisárinu? Morgunblaðið/Styrmir Kári Lífeyrir Alls eiga um 150 þúsund manns meiri eða minni réttindi í Lífeyr- issjóði verzlunarmanna og eru virkir sjóðfélagar í dag um 48 þúsund. Starfsemi Lífeyrissjóðs verzl- unarmanna byggðist á kjara- samningi Verzlunarmanna- félags Reykjavíkur og atvinnurekenda sem gerður var 27. maí 1955. Í yfirlits- grein á heimasíðu sjóðsins segir að enn í dag, 60 árum síðar, er starfsemi sjóðsins grundvölluð á kjarasamningi VR og atvinnurekenda auk laga frá Alþingi sem byggjast á allsherjarsamkomulagi á vinnumarkaði. Verzlunar- mannafélag Reykjavíkur breyttist árið 1955 úr sameig- inlegu félagi verzlunareigenda og starfsmanna í að vera hreint launþegafélag „… og tók upp frjálsa samninga við atvinnurekendur,“ eins og segir í 30 ára afmælisriti sjóðsins. Þessir samningar voru grundvöllur lífeyrissjóðs- ins. Aðildarskylda að lífeyris- sjóðum hér á landi var þó ekki lögboðin fyrr en komið var fram á áttunda áratuginn. Byggt á kjara- samningi TILURÐ LÍFEYRISSJÓÐSINS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.