Morgunblaðið - 05.02.2016, Síða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2016
✝ Haraldur PállBjarkason
fæddist á Ólafsfirði
18. júlí 1968. Hann
lést á heimili sínu
26. janúar 2016.
Foreldrar hans
eru Bjarki Sigurðs-
son, fæddur 6. maí
1944, og Elín H.
Haraldsdóttir, fædd
26. mars 1950.
Systkini hans
eru: a) Stefán Kemp, fæddur 12.
nóvember 1963, maki Gunnlaug
Hartmannsdóttir, eiga þau þrjár
dætur og eitt barnabarn. b)
Ragna Rós, fædd 17. nóvember
1971, maki Gunnar Valsson, eiga
þau fimm börn og eitt barna-
barn. c) Jón William, fæddur 9.
ússon, fæddur 8. október 2013.
Haraldur ólst upp á Ólafsfirði
til ársins 1985 en þá flutti hann
með foreldrum sínum til Sauð-
árkróks. Það sama ár kynnist
hann eiginkonu sinni og hófu
þau sambúð þar. Haraldur vann
þar lengst af hjá Steypustöð
Skagafjarðar auk þess sem hann
vann við tamningar. Árið 1995
hófu þau búskap ásamt hrossa-
rækt í Sólheimum í Blönduhlíð,
sem þau stunduðu til ársins 2003
er þau fluttu til Reykjavíkur.
Haraldur hóf þá sjálfstæðan
rekstur sendibifreiðar í nánu
samstarfi við tengdaföður sinn.
Árið 2011 fluttist fjölskyldan á
Selfoss og hóf Haraldur þá störf
við sölu véla og tækja hjá Jötni
vélum. Alla tíð stundaði Harald-
ur hestamennsku og hrossarækt
og var virkur í félagsstörfum
hestamanna.
Útför Haraldar Páls fer fram
frá Selfosskirkju í dag, 5. febr-
úar 2016, og hefst athöfnin
klukkan 14.
desember 1979,
maki Guðríður Eva
Þórarinsdóttir.
Eiginkona
Haraldar Páls er
Guðrún Elín
Hilmarsdóttir, fædd
10. febrúar 1970,
foreldrar hennar
eru Hilmar Hilm-
arsson og Krist-
björg Óladóttir.
Systkini Guðrúnar
eru Karen og Hilmar, maki hans
Jóna Kristín Jónsdóttir og eiga
þau tvo syni.
Börn Haraldar og Guðrúnar
eru Hulda Björk fædd, 1. októ-
ber 1993, og Hlynur Óli, fæddur
28. mars 1998. Sonur Huldu
Bjarkar er Baldur Ingi Magn-
Til elsku sonar míns.
Oft virðast undarleg örlögin,
og mörg svo ósanngjörn atvikin.
Á leið um lífsins braut
er lögð ókleif þraut.
Eitt atvik ávallt í huga býr
sem aldrei dofnar né burtu flýr.
Dæmd voru vorsins blóm
vægðarlausum dóm.
Í gáska enginn að endinum spyr
óvægin sorgin oft knýr þá á dyr.
Augu hrópa, enginn segir þó neitt
Því orð fá engu breytt.
Öll skulum trúa og treysta því
sá tími komi enn á ný
við getum glöð í lund
átt góðan endurfund.
Þá fái sérhver er sorgina bar
svarið við því, til hvers hún var.
(Oss) veitist veröld blíð
sem varir alla tíð.
(Ólafur Þórarinsson)
Þín
mamma.
Elsku pabbi, þessum morgni
gleymi ég aldrei. Þvílíkt sjokk
sem þetta var fyrir okkur öll,
ekkert af okkur var tilbúið fyrir
lífið án þín.
Þegar ég hugsa til baka verð
ég þakklát. Minningarnar sem
ég á frá yngri árum eru ynd-
islegar. Við höfum verið bestu
vinir frá því áður en ég man eft-
ir mér. Ég er þakklát fyrir sam-
eiginlega áhugamálið okkar,
hestana. Flestallt sem ég kann
og veit er það sem þú hefur
kennt mér. Þú varst hestglögg-
ur maður og mér fannst alltaf
skemmtilegast að tala um hesta
og hrossarækt við þig af öllum.
Við vorum yfirleitt sammála um
það sem við ræddum. Þú varst
alltaf til staðar fyrir mig og
þekktir mig betur en flestallir
aðrir, stuðningurinn sem ég
fékk frá þér í öllu sem ég tók
mér fyrir hendur er ómetanleg-
ur og ég væri ekki á þeim stað
sem ég er í dag án þín, elsku
pabbi minn.
Þú tæklaðir afahlutverkið
sem þú fékkst frá mér eins vel
og hægt var. Það var varla frið-
ur til að koma Baldri Inga í
heiminn því þú hringdir svo oft í
mömmu til að gá hvort þú
mættir ekki koma upp á spítala.
Ég held að þú hafir lítið sem
ekkert sofið þessa nótt vegna
spennu yfir nýja hlutverkinu.
Sambandið milli þín og Baldurs
var ótrúlegt frá fyrstu stundu.
Baldur Ingi sá ekki sólina fyrir
þér, það snérist allt um Halla
afa. Núna eru komnar myndir af
þér í litla myndaalbúmið sem
Baldur Ingi er alltaf með til að
hjálpa honum að muna eftir þér.
Þegar ég lít yfir hesthúsið
okkar er það fullt af ungum og
efnilegum hrossum. Ég ætla að
klára það sem við vorum byrjuð
á og fylgja þessum gæðingum
alla leið. Ég ætla að halda þinni
ræktun áfram, sem þú varst svo
stoltur af. Þú átt eftir að hjálpa
mér þegar kemur að því að velja
stóðhesta fyrir merarnar þínar
og ég vona að ég nái að gera
þetta jafn vel þú.
Ég á eftir að sakna þess að
þú hringir í mig óeðlilega oft yf-
ir daginn. Þú hafðir kannski
ekki endilega eitthvað að segja
en hringdir samt bara til að
spyrja: „Hvað segirðu“ og „hvað
ertu að gera“.
Ég veit þú átt eftir að leiða
mig og okkur öll í gegnum það
sem tekur við. Þú varst bara
þannig maður, þú varst alltaf
tilbúinn til að hjálpa öllum. Það
er ótrúlegur fjöldi af fólki sem
hefur heimsótt okkur, hringt og
sent falleg skilaboð. Það sýnir
svo vel hversu vinmargur þú
varst og hversu mikilvægur þú
varst í lífi svo margra. Þú varst
ótrúlegur maður, pabbi.
Minning þín lifir í hjörtum
okkar allra, elsku pabbi minn,
takk fyrir allt.
Hulda Björk Haraldsdóttir.
Elsku Halli, það er svo margt
sem kemur upp í hugann þegar
ég hugsa til þín og það er svo
ósanngjarnt og ennþá svo óskilj-
anlegt að ég þurfi að vera að
hugsa svona til þín. Þakklæti,
gleði og vinsemd eru mér of-
arlega í huga þegar kemur að
þér. Þið Gunna tókuð mér eins
og ykkar eigin barni þegar ég
flutti inn til ykkar og er ég ykk-
ur ævinlega þakklát fyrir tím-
ann sem við áttum saman heima
í Sílatjörn. Þetta ár leið svo
fljótt og það hefur alltaf frá
fyrsta degi verið svo gott að
vera hjá ykkur og að eiga ykkur
að.
Þú hafðir virkilega góða nær-
veru og varst svo sannarlega til
staðar fyrir alla í kringum þig,
það sem þú tókst þér fyrir
hendur gerðir þú vel og þá er
nauðsynlegt að minnast á
hrossaræktina þína og ykkar.
Hesthúsið er núna fullt af ung-
um og efnilegum hestum og ég
ætla að setjast í brekkuna með
þér og horfa á þá sama á hvaða
braut þeir enda. Ég veit að þú
verður mættur fyrstur af öllum.
Það var alltaf hægt að leita til
þín og auðvitað leituðum við
Hulda til þín þegar okkur vant-
aði meri til þess að fara með
undir hest síðastliðið vor. Þú
varst ekki lengi að samþykkja
það að lána okkur eina frá þér
og stússaðir mikið í kringum
það með okkur.
Það var líka alltaf stutt í grín-
ið og ég gleymi aldrei góðu
stundunum og glottinu á þér
þegar talið barst að hinum og
þessum strákum í kringum okk-
ur Huldu. Það skipti engu máli
hvort það vorum bara við heima
eða hvort fastagestirnir í kvöld-
kaffinu í Sílatjörn voru með í
umræðunum, þær voru alltaf á
léttu nótunum og komu okkur
alltaf til að hlæja saman. Við
áttum engin leyndarmál. Gunna
mamma, Hulda, Hlynur og
Baldur Ingi, ég ætla að halda
utan um ykkur eins fast og ég
get, alltaf.
Ég sakna þín núna og ég á
eftir að sakna þín alltaf. Hvíldu í
friði, elsku Halli.
Þín dóttir,
Brynja Rut.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Síðast þegar ég sá þig, Har-
aldur Páll minn, þá varstu svo
glaður og ánægður, nýkominn
úr fríi með fjölskyldunni. Gott
að ylja sér við minninguna um
síðustu heimsókn þína til mín.
Guð blessi Guðrúnu og börn-
in, foreldra og systkini. Guð
blessi minningu þína.
Ragna amma.
Í nokkrum orðum viljum við
minnast góðs vinar og bróður,
Haraldar Páls Bjarkasonar.
Halli, eins og hann var jafnan
kallaður, var mikið ljúfmenni og
okkur afar kær vinur. Það var
ávallt gaman og gott að vera í
kringum hann, hvort sem það
var í hestastússi á Mýrum, á
ferðalögum, sem mörg hver
tengdust hrossum á einn eða
annan hátt, eða heima í faðmi
fjölskyldunnar.
Halli var mikill hestamaður
og beindist áhugi hans meir og
meir að ræktun. Hann var alltaf
með eitthvað á prjónunum og
voru ófá símtölin þar sem hann
viðraði hugmyndir sínar. Það
var mikið spáð og spekúlerað.
Lengi hafði verið í umræðunni
að fara saman á heimsmeist-
aramót íslenska hestsins og
varð sá draumur loks að veru-
leika síðastliðið sumar. Í dag er-
um við þakklát fyrir að sá
draumur varð að veruleika og
minningar frá þessum tíma okk-
ur ómetanlegar. Þrjár fjölskyld-
ur fóru saman í ferðalag til
Herning í Danmörku þar sem
Halli var oftar en ekki hrókur
alls fagnaðar. Þar líkt og á Ís-
landi þekkti hann bændur sem
litið var í heimsókn til, stóðið
skoðað og spjallað yfir kaffi-
bolla. Á mótinu keppti hestur úr
ræktun Halla og vann til silf-
urverðlauna í sínum flokki. Það
var stoltur hrossaræktandi sem
heimsótti núverandi eigendur að
móti loknu. Þegar voru uppi
plön um að fara á næsta heims-
meistaramót og að sjálfsögðu á
landsmót í Skagafirðinum næsta
sumar.
Mikið mun vanta á þeim við-
burðum þegar Halla nýtur ekki
lengur við.
Halli átti stóran vinahóp,
lagði mikið upp úr því að halda
góðu sambandi við vini sína og
gaf sér alltaf tíma fyrir þá. Tími
var eitthvað sem Halli átti alltaf
nóg af. Hann kom til dyranna
eins og hann var klæddur og
átti afar gott með samskipti.
Þessir eiginleikar hafa án efa
komið sér vel í starfi hans sem
sölumaður þar sem hann ferðað-
ist um sveitir landsins og seldi
bændum ýmsar vélar og tæki.
Erfitt er að ræða um Halla
án þess að Gunna sé þar nefnd.
Þau hófu sambúð ung að árum
og voru afar samrýnd hjón sem
stigu lífsdansinn í takt og ávallt
boðin og búin að rétta fjölskyldu
og vinum hjálparhönd. Halli átti
afar náið samband við tengda-
foreldra sína og reyndist þeim
eins og sonur. Auk þess átti
Halli því láni að fagna að vinna
mikið með tengdaföður sínum
og var samstarf þeirra mjög far-
sælt. Halli var mikill fjölskyldu-
maður og lét sér annt um sitt
fólk og eru ómetanlegar stund-
irnar sem við fjölskyldan höfum
átt með þeim hjónum og börn-
um þeirra. Dætur okkar hugsa
með hlýju og þakklæti til allra
þeirra góðu stunda sem þær
fengu notið með Halla frænda.
Hann var stoltur afi og naut
samvista við litla afastrákinn
sinn hann Baldur Inga. Við
munum hjálpa honum að muna
afa Halla.
Elsku Gunna, Hulda, Hlynur
og Baldur Ingi, við vottum ykk-
ur okkar dýpstu samúð. Það er
gott að eiga góðar minningar að
ylja sér við á þessum erfiðu
stundum.
Stefán bróðir og fjölskylda.
Elsku brósi minn.
Þú munt taka á móti mér,
brósi, þegar minn tími kemur,
passa mig og vísa mér veginn
eins og þegar við vorum lítil.
Við höfum gengið í gegnum ým-
islegt saman. Ég hugsa til tím-
ans þegar við vorum að alast
upp í Ólafsfirði, þegar við vorum
alltaf á skíðum alla daga, á
sumrin að veiða í ósnum, eða í
vörubílunum með pabba og
frændum okkar. Það var allt svo
spennandi og gaman. Svo fórst
þú að fara í sveitina á sumrin,
þá beið ég eftir að réttirnar
kæmu því þá fórum við að ná í
þig. Stundum áttum við erfitt,
alltaf passaðir þú mig, hugsaðir
um mig að mér liði ekki illa.
Þetta þjappaði okkur saman og
oft finnst mér við hafa talað
saman í þögninni þegar við urð-
um eldri. Svo fengum við hest-
ana, það var þitt líf og yndi, við
vorum öll saman í þessu, það
var yndislegt. Besti tíminn minn
var þegar þú og Stebbi bróðir
fóruð að leigja hesthús hér uppi
í Mosó. Jón bróðir var í verk-
námi hér fyrir sunnan, við vor-
um öll saman í sama hverfinu,
það er minn besti tími.
Þú komst svo oft við hjá okk-
ur Gunna, að tékka á því hvað
systir þín væri að elda í kvöld-
matinn. Komst í kaffi í hest-
húsið og við til ykkar. Eftir að
ég flutti suður þá urðum við
nánari öll, vorum á tímabili
mjög dugleg að hittast og borða
saman. Þú og Gunni minn náðuð
vel saman og gátuð náttúrlega
endalaust talað um hesta fram
og tilbaka. Þegar ég gifti mig þá
komstu til mín stuttu seinna og
tókst utan um mig og sagðir
mér hvað þér fannst ég falleg
þegar ég gekk inn kirkjugólfið,
að þú hefðir tárast, allt hefði
verið svo fallegt og hátíðlegt,
ofsalega finnst mér vænt um
þessi orð. Ég er stolt af, þér
elsku brósi minn, segi hundrað
sinnum á dag „Halli bróðir“, ég
vil ekki hafa þig minningu, ég
vil að þú sért hjá okkur. Heldur
vil ég ekki segja að þú sért
kominn á betri stað, þú varst á
besta stað í heimi, hjá konunni
þinni og börnum, afadrengnum
þínum sem þú sást ekki sólina
fyrir, varst svo ofsalega ánægð-
ur. Samband okkar minnkaði
eftir að þið fluttuð á Selfoss, það
var aldrei meiningin hjá mér og
örugglega ekki hjá þér, við lif-
um orðið svo hratt og allt plan-
að svo fram í tímann að maður
hefur aldrei orðið lausa stund
fyrir sína nánustu eða sjálfan
sig þannig lagað. Nú held ég að
það sé kominn tími til að stoppa
og líta í kringum sig og sjá það
sem skiptir mann máli í lífinu og
virða það sem maður hefur og á.
Ég fékk að merkja líksæng-
ina þína og var það mér svo
mikill heiður að fá að gera þetta
fyrir þig, en það erfiðasta sem
ég hef gert, hún verður breidd
yfir þig, brósi minn, og heldur á
þér hlýju á nýja staðnum. Þegar
ég sit hér og skrifa þessi orð til
þín er vika síðan þú fórst, ein
vika, svo verður einn mánuður,
svo eitt ár. Allt er svo erfitt
fyrst. Fyrsta landsmótið, ég hef
aldrei farið á landsmót og þú
ekki þar, Laufskálarétt, þú ekki
þar, æi, brósi minn. Ég gæti
sagt svo miklu meira en við
höldum áfram að tala saman í
þögninni, veit að þú verður með
mér í framtíðinni og fylgist með
okkur í hrossaræktinni. Þangað
til við hittumst síðar, elsku
hjartans bróðir minn.
Elsku Gunna mása mín,
Hulda Björk, Hlynur Óli og
Baldur Ingi, megi guð styrkja
ykkur í þessari miklu sorg, ég
er svo stolt að eiga ykkur.
Þín systir,
Ragna Rós, Gunnar
og fjölskylda.
Meira: mbl.is/minningar
Elsku Halli frændi minn hef-
ur kvatt okkur í hinsta sinn. Það
eru ótal ljúfar minningar að
leita í á þessum erfiðu tímum.
Halli var kærleiksríkur mað-
ur sem elskaði fjölskyldu sína af
öllu hjarta. Ég er svo heppin að
hafa eytt mörgum stundum með
þeim og notið þess kærleika
sem Halli gaf. Ein af mínum
fyrstu minningum um Halla er
frá fæðingu Huldu Bjarkar þeg-
ar stoltur nýbakaður faðir bauð
mér, litlu frænku sinni, upp á
fæðingardeild að skoða frum-
burðinn. Við vorum bæði glöð
og stolt á þessum degi. Enn í
dag gleðst ég yfir að hann
skyldi vilja deila gleðinni með
mér.
Í huga mér sitjum við hér
saman, Halli segir brandara og
ég hlæ. Hjá Halla var stutt í
glens og gaman. Hann gat kom-
ið með hnyttin tilsvör og sagt
gamansögur og það ríkti gleði í
kringum hann. Það gladdi mig
að Halli skyldi alla tíð bjóða
mér með, sem hluta af fjölskyld-
unni.
Þær eru ómetanlegar stund-
irnar sem við áttum saman í
sveitinni í Sólheimum. Þar var
alltaf nóg af verkefnum og alltaf
fengum við krakkarnir að vera
með. Halli var mikið fyrir bú-
störf og var ánægjulegt að
sniglast í kringum hann við þau.
Þar kynntist ég nautunum sem
bauluðu í kór þegar við fórum
að gefa, alltaf voru hestarnir
nærri og heyannirnar voru upp-
spretta gleðistunda sem eru
ferskar í minningunni.
Halli var vakandi og nærgæt-
inn gagnvart þörfum barnanna í
lífi sínu og enn frekar eftir að
hann varð afi. Það kom mér
þess vegna ekki á óvart að hann
beið spenntur eftir fæðingu
dóttur minnar og samgladdist
okkur fjölskyldunni af því til-
efni. Ég vil þakka þér fyrir svo
margt. Þú varst mér alltaf svo
góður. Það eru forréttindi að
hafa átt þig sem föðurbróður.
Hugur minn dvelur nú hjá
Gunnu og börnunum og veit ég
að bjartar minningar hugga.
Elísabet Kemp Stefánsdóttir.
Traustur vinur er falleg ljóð-
lína sem sungin er í þekktum
dægurlagatexta. Þetta á svo
sannarlega við í dag þegar við
kveðjum traustan vin okkar,
hann Halla Palla eins og við
nefndum hann stundum. Halli
var einstaklega einlægur og
hjartahlýr maður og við fjöl-
skyldan teljum okkur lánsöm að
hafa fengið að njóta samvista
hans í öll þessi ár en þó ekki
eins lengi og við hefðum viljað.
Það var erfiður dagur þegar
okkar kæri vinur kvaddi okkur
svona óvænt, hversu ósann-
gjarnt getur það nú verið þetta
líf og af hverju hann? Við verð-
um að takast á við þessa lífs-
raun með okkar nánustu fjöl-
skyldu og vinum eftir bestu
getu.
Fjölskyldur okkar hafa átt
margar ánægjustundir og margt
brallað. Á þessum stundum var
alltaf stutt í hlátur og gaman-
semi, Halli fór yfirleitt þar
fremstur í flokki enda með ein-
dæmum skemmtilegur og góður
félagi okkar allra í fjölskyld-
unni.
Í fyrra varð ég þess aðnjót-
andi að fara með honum tvær
ferðir til útlanda. Fyrri ferðin
var á fyrsta Liverpool-leik okk-
ar beggja síðasta vor. Það var
ljúft að sitja í stúkunni á Anfield
með tárin í augunum og fá að
njóta þessarar stundar með
mínum góða félaga.
Síðla sumars fórum við fjöl-
skyldan með honum og fjöl-
skyldu á hans fyrsta Heims-
meistaramót íslenska hestsins í
Danmörku og þar með rættist
langþráður draumur hans. Með
í ferð til Danmerkur var Stebbi
bróðir hans og fjölskylda og var
þetta ógleymanleg ferð þar sem
Halli fór á kostum eins og hon-
um einum var lagið. Báðar þess-
ar ferðir eru í dag yndisleg og
ómissandi minning sem hefur
verið gott að rifja upp undan-
farna daga.
Það er skrýtið að eiga aldrei
eftir að eiga þessi reglulegu
símtöl við Halla þar sem um-
ræðuefnið var yfirleitt hrossa-
rækt, hestamennskan og mögu-
leg jarðarkaup sem voru honum
oft ofarlega í huga.
Á þessari stundu er gott að
eiga mikið af góðum minningum
um traustan og góðan vin sem
mun eiga sinn stað í hjörtum
okkar margra um ókomin ár.
Halli var mikill fjölskyldu-
Haraldur Páll
Bjarkason
HINSTA KVEÐJA
26. janúar 2016 líður mér
aldrei úr minni, hann Halli
vinur minn er látinn.
Hver minning dýrmæt perla að
liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf,
sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu
að kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Takk fyrir mig, Halli.
Elsku Gunna, Hulda, Hlyn-
ur og Baldur, okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Guðlaugur og fjölskylda.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandend-
ur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs-
ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður.
Minningargreinar