Morgunblaðið - 05.02.2016, Page 35
Gefjun víða um land, en lengstum
var hann leigubílstjóri meðfram
öðrum störfum. Hann var einnig
ráðherrabílstjóri í tvo áratugi,
byrjaði hjá Halldóri E. Sigurðs-
syni og lauk ferlinum hjá Þor-
steini Pálssyni. Eftir það keypti
Lárus jörðina Hellishóla í Fljóts-
hlíð og bjó þar í nokkur ár með
Svani syni sínum og Sigurborgu
Óskarsdóttur tengdadóttur sinni,
en hann býr núna í Hvassaleitinu
ásamt Kristínu Gísladóttur.
Lárus varð snemma hrifinn af
hestum og hafði gaman af því að
kaupa þá og selja, en hætti
hestamennskunni fyrir nokkrum
árum. Það var eins með bílana og
átti hann oft fleiri en einn í einu.
Lárus skilaði ökuskírteini sínu í
fyrra en hefur farið um á raf-
skutlu.
Hlustar á Moggann
„Það hefur eiginlega ekki verið
hægt að fara um á rafskutlunni
lengi,“ segir Lárus þegar blaða-
maður ræddi við hann daginn fyrir
101 árs afmælið. „Það hefur verið
svo mikil hálka. Svo er ég líka al-
veg að missa sjónina, en ég nota
lesara mikið, Blindrafélagið lét
mig fá tækið og ég var að hlusta á
Moggann í morgun.“
Spurður út í heimsmálin þá líst
honum illa á þau. „Ég get ekki
dæmt um hvort heimurinn sé að
versna eða að batna. Heimurinn
hefur alltaf verið slæmur, maður
sér það eftir að hafa fengið upp-
lýsingar um hvernig mann-
skepnan hefur hegðað sér í
gegnum tíðina.“
Að lokum nefnir Lárus minning-
arbrot frá fyrri tíð. „Ég var með
trillubúskap og á stríðsárunum
söfnuðu smábátarnir saman fiski
og settu hann um borð í bát frá
Hólmavík sem flutti fiskinn síðan
til Bretlands til að hjálpa Bret-
unum. Það var eftirminnilegt að
fara ekki í land með fiskinn heldur
koma honum í skip.“
Fjölskylda
Sambýliskona Lárusar er Krist-
ín Gísladóttir, f. 21.12. 1925, fædd í
Geirshlíð í Hörðudal í Dalasýslu.
Eiginkona: Kristín Hannes-
dóttir, f. 2.11. 1917, d. 1.12. 2008,
húsfreyja á Kolbeinsá í Hrútafirði
og síðar matráðskona og sauma-
kona í Reykjavík. Þau skildu. Börn
þeirra: Hreinn Sverrir, f. 16.9.
1937, d. 12.9. 1998; Gréta Kristín,
f. 29.1. 1941; Indríður Hanna, f.
14.9. 1944; Ingunn Erna, f. 11.1.
1949; Sigfríður, f. 8.1. 1951; og
Svanur Sigurjón, f. 7.8. 1952.
Systkini: Guðmundur, f. 1912, d.
2004, Hans Hallgrímur, f. 1913, d.
2008, f. Anna Helga, f. 1918, Stein-
grímur Matthías, f. 1919, d. 1976,
Salóme Sigfúsa, f. 1920, d. 1920,
Guðrún Sigríður, f. 1921, d. 1998,
Eiríkur, f. 1923, d. 2008, Garðar, f.
1924, d. 1988, Haraldur Gísli, f.
1925, Sólbjörg, f. 1927, d. 1947,
Guðbjörg María, f. 1929, d. 2004,
Salóme Sigfríður, f. 1932, d. 2010,
og Þorbjörn Sigmundur, f. 1934, d.
2002.
Foreldrar: Sigfús Sigfússon,
bóndi á Stóru-Hvalsá í Hrútafirði,
Strandasýslu, f. 7.8. 1887, d. 29.1.
1958, og Kristín Gróa Guðmunds-
dóttir, húsfreyja á Stóru-Hvalsá, f.
8.10. 1888, d. 15.2. 1963.
Úr frændgarði Lárusar Sigfússonar
Lárus
Sigfússon
Bjarni Sigfússon
b. í Skarði í Strandasýslu og vinnum. í Eyjum
María Bjarnadóttir
vinnuk. í Eyjum
Sigfús Bjarnason
b. á Eyjum í Bjarnarfirði á Ströndum
Salóme Þorbergsdóttir
húsfr. á Eyjum
Sigfús Sigfússon
b. á Stóru-Hvalsá
Þorbergur Björnsson
b. í Reykjarvík á Ströndum
Agata Bjarnadóttir
húsfr. í Reykjarvík
Steingrímur Matthías Sigfússon
tónskáld og rithöfundur (Valur Vestan)
Haraldur Gísli Sigfússon
leigubílstjóri í Rvík
Eiríkur Sigfússon
b. á Stóru-Hvalsá
Anna Sigfúsdóttir
húsfr. í Skrúð í
Reykholtsdal
Loftur Bjarnason
sjóm. í Hafnarfirði
Garðar Sigfússon
lengi lögreglumaður í Kópavogi
Hreinn
Haraldsson
vegamálastj.
Finnur Eiríksson
forstj. Frum
Sigfús Jónsson
b. og hagyrðingur
í Skrúð
Steinunn Loftsdóttir
húsfr. í Hafnarfirði
Reynir Pétur Steinunnarson
göngugarpur
Nikulás Bárðarson
b. á Pjötlu í Staðarsókn
á Snæfellsnesi
Sigríður Loftsdóttir
húsfr. á Pjötlu
Guðmundur Nikulásson
b. á Kollsá
Sólbjörg Jórunn Vigfúsdóttir
húsfr. á Kollsá í Hrútafirði
Kristín Gróa Guðmundsdóttir
húsfr. að Stóru-Hvalsá í Hrútafirði
Vigfús Vigfússon
b. á Kollsá
Helga Jónsdóttir
húsfr. á Kollsá
Með yngri börnunum Lárus og
Kristín þegar þau voru flutt suður.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2016
101 árs
Lárus Sigfússon
95 ára
Sigríður Þorláksdóttir
90 ára
Guðbjörg Jónsdóttir
85 ára
Helga Eðvaldsdóttir
Rakel Jónsdóttir
Sigurður Tómasson
80 ára
Guðrún Guðmundsdóttir
Magnús Valsteinn
Tryggvason
Marta Sigurjónsdóttir
75 ára
Anna María Einarsdóttir
Sólveig Sigurjónsdóttir
70 ára
Anna Yiwen Wang
Guðlaug Jónína
Aðalsteinsdóttir
Jón Ingi Guðjónsson
Kristleifur Indriðason
Steinunn Garðarsdóttir
Þórlaug Rósa Jónsdóttir
60 ára
Björn Torfason
Erna Dagbjört
Stefánsdóttir
Hrafnhildur Hauksdóttir
Ingibjörg Jónsdóttir
Sveinn Einar Magnússon
Wojcieh Andrzej Drozniak
50 ára
Brynja Arnardóttir
Scheving
Guðmundur Valur
Sævarsson
Hafdís Gylfadóttir
Hrafnhildur Sigurgeirs-
dóttir
Jacek Piotr Dawidowicz
Jódís Jóhannsdóttir
Jóhanna Hrafnkelsdóttir
Nils Gústavsson
40 ára
Ágúst Örn Márusson
Bjarni Rafn Garðarsson
Björn Ingi Edvardsson
Eðvarð Hilmarsson
Hugrún Fanney
Sigurðardóttir
Kolbrún Dóra Snorradóttir
Laufey Dóra
Guðbjargardóttir
Przemyslaw Marek
Mazurowski
Ragnar Sigurbjörnsson
Sigurþór Friðbertsson
Stella Júlía Ágústsdóttir
Súsanna Reinhold
Sæbergsdóttir
Valey Benediktsdóttir
30 ára
Aðalsteinn Magnús
Friðjónsson
Bartosz Tadeusz Krakowiak
Darren Townes
Elín Dís Vignisdóttir
Guðmundur
Sigurbjörnsson
Hallbjörn Freyr Ómarsson
Halldóra Hanna
Halldórsdóttir
Hólmfríður F. Zoega
Smáradóttir
Jóhannes Mundi
Kristinsson
Jóhannes Þorkell
Tómasson
Valgerður Rós Karlsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Hallbjörn er frá
Skagaströnd og er sjó-
maður á Arnari HU.
Maki: Árdís Pétursdóttir,
f. 1981, bílamálari.
Systkini: Arnar, Ómar
Ingi, Amy, Fjóla og Linda.
Sonur: Kristján Freyr, f.
2009.
Foreldrar: Ómar Sigur-
björnsson, f. 1955, sjó-
maður hjá Eimskip, og
Kenný Hallbjörnsd., f.
1963, bús. á Skagaströnd.
Hallbjörn Freyr
Ómarsson
30 ára Hólmfríður Fjóla
Zoëga er fædd og uppalin
í Þorlákshöfn. Hún er
íþróttafræðingur að
mennt og kennir íþróttir
og sund.
Systkini: Brynjar Smára-
son, f. 1978, og Otri
Smárason, f. 1984.
Foreldrar: Guðmundur
Smári Tómasson, f. 1944,
rafvirki og Sigríður Ósk
Zoëga Sigurðardóttir, f.
1956, húsvörður í Grunn-
skólanum í Þorlákshöfn.
Hólmfríður F.
Smáradóttir
40 ára Valey er Akurnes-
ingur og er innanhúss-
arkitekt að mennt og er
fulltrúi hjá FVA.
Maki: Stephen John
Watt, f. 1981, sérfræð-
ingur hjá Íslandsbanka.
Börn: Matthea Kristín, f.
2007, Christian Sturri, f.
2009, og Ethan Agnar, f.
2011.
Foreldrar: Benedikt Björn
Jónmundsson, f. 1944, og
Matthea Kristín Stur-
laugsdóttir, f. 1947.
Valey Bene-
diktsdóttir
Lísa Anne Libungan hefur varið
doktorsritgerð sína í líffræði við Líf-
og umhverfisvísindadeild Háskóla
Íslands. Ritgerðin ber heitið: Að-
greining síldarstofna (Identification
of herring populations). Leiðbein-
andi var dr. Snæbjörn Pálsson, pró-
fessor við Líf- og umhverfisvís-
indadeild Háskóla Íslands, en einnig
sátu í doktorsnefnd dr. Guðmundur
J. Óskarsson, sérfræðingur hjá Haf-
rannsóknastofnun, og dr. Gunnar
Stefánsson, prófessor við Raunvís-
indadeild Háskóla Íslands.
Þekking á stofnlíffræði fiskistofna
er mikilvæg fyrir árangursríka fisk-
veiðistjórnun og fyrir skilning á út-
breiðslu, farmynstri og til verndunar
á líffræðilegum fjölbreytileika. Um-
fangsmikil sýnataka var framkvæmd
á tveimur tegundum af síld, Atlants-
hafssíld (Clupea harengus) og
Kyrrahafssíld (C. pallasii), víðs veg-
ar í Norður-Atlantshafi, meðfram
strandlengju Noregs, Rússlands og í
Kyrrahafi. Í doktorsritgerðinni, sem
samanstendur af 6 birtum vís-
indagreinum, voru þróaðar aðferðir
til aðgreiningar síldarstofna: örtungl
til að greina erfðabreytileika og op-
inn hugbúnaður (shapeR) í forrit-
unarmálinu R til
að greina svip-
farsbreytileika
kvarna, en kvarn-
ir eru kalksteinar
í innra eyra bein-
fiska. Niður-
stöður sam-
anburðar sem
byggðist á ört-
unglum gat ekki greint erfðafræði-
legan mun á milli stofna í Norður-
Atlantshafi, hins vegar fannst mun-
ur á kvarnaútliti. Breytileika í
kvarnaútliti var einnig að finna með-
al fjarðarstofna í Noregi, meðal
tveggja síldartegunda, Atlantshafs-
síldar og Kyrrahafssíldar, og meðal
undirtegunda Kyrrahafssíldarinnar,
en þær niðurstöður sýndu að síld í
Beringshafi í NV-Kyrrahafi er líkari
síld í N-Noregi og Barentshafi en
síld í NA-Kyrrahafi, en þær nið-
urstöður eru í samræmi við erfða-
rannsóknir á þessum sömu stofn-
um. Niðurstöður þessara rannsókna
sýna að hægt er að nota útlits-
einkenni kvarna til að aðgreina síld-
arstofna, undirtegundir og tegundir
á stórum og smáum landfræðilegum
kvarða.
Lísa Anne Libungan
Lísa Anne Libungan er fædd árið 1977 í San Diego í Kaliforníu, Bandaríkjunum.
Hún lauk B.Sc. gráðu í fiskifræði og vistfræði árið 2006 og M.Sc. gráðu í sjáv-
arlíffræði með áherslu á vistfræði þorsksins árið 2009 frá Háskóla Íslands. . Lísa
er gift Kjartani Benediktssyni verkfræðingi og eiga þau þrjú börn, Seif Ísak
(2006) og Stíg Sæ (2010) og Mareyju (2015).
Doktor