Morgunblaðið - 05.02.2016, Side 36

Morgunblaðið - 05.02.2016, Side 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Taktu það ekki óstinnt upp þótt aðrir séu með spurningar um tilgang þinn og starfsaðferðir. Hvernig væri að byrja á nýju? Þú þrífst á þessu hvort eð er. 20. apríl - 20. maí  Naut Þetta er frábær dagur til mennta, fjölmiðlunar, útgáfu, auglýsinga, ferðalaga eða samskipta við erlend ríki. Reyndu að setja þér reglur og fara eftir þeim. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Mundu að þú getur ekki tekið öll vandamál fjölskyldunnar á þínar herðar því það er ekki á þínu valdi. Blandaðu þér ekki í vandamál annarra. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þetta er góður dagur til að kafa í ákveðin málefni. Stundum eru sambönd bara ekki þess virði að halda í þau. En jafn- brýnt er að taka til hendinni þegar það á við. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er ekki auðvelt að setja sig í fót- spor annarra, sérstaklega ekki ef maður er með hælsæri. Haltu ótrauður þínu striki og þá leysast þessi vandamál af sjálfu sér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Mannfólkið er oft upptekið af sjálfu sér, og því er svo sætt að þig langi að vita um hluti sem snerta þig ekkert. Ekki treysta aðstöðu þar sem peningarnir skipta meira máli en vinnan. 23. sept. - 22. okt.  Vog Sýndu umburðarlyndi og þolinmæði í samskiptum þínum við börn og unglinga í dag. Tímasetningin er lykilatriði. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert of auðmjúkur í sam- skiptum við þína nánustu og þyrftir að vera fastari fyrir. Farðu aftur á hugmyndastigið. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þetta er góður dagur til að leggja upp í langferð, bæði í bókstaflegum og táknrænum skilningi. Láttu ekki aðra fara í taugarnar á þér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú gætir freistast til að grípa til lyginnar til að forðast óþægindi á heim- ilinu. Dagurinn hentar því vel til naflaskoð- unar. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur gott tækifæri til þess að skoða samskipti þín við aðra. Annað kallar á misskilning. Allt sem þú lætur yfir þig ganga en er ekki viðunandi dregur þig smám saman niður. 19. feb. - 20. mars Fiskar Jafnvel þótt þér líði best þegar þú ert ein/n með sjálfri/sjálfum þér sækist fólk eftir félagsskap þínum þessa dagana. Flas er ekki til fagnaðar. Páll Imsland segist halda áframað bulla, nokkrum leirliðum til mikillar ánægju: Mermundur Mannsson á Fjalli átti merar tvær komnar að falli. Honum datt þá í hug að heimsækja guð og færa tvö folöld þeim karli. Aðalsteinn Svanur Sigfússon yrkir á Boðnarmiði: Oft hefi ég háðslega ort, sýnt hroka og virðingarskort. Allt svívirt og sært sem mér er kært – einungis upp á sport. Jón Arnljótsson segir frá því á Leirnum að rifjast hafi upp fyrir sér vísur sem Rósberg Snædal orti á sínum tíma (um 1980) þegar verið var að reikna út kvótann, áður en hann var fyrst settur á. – „Rósberg var þá kennari við Barnaskólann á Hólum og sendi reikningsmönn- unum eina vísu á hverjum degi, en þeir voru þar á staðnum við þessa iðju. Einn þeirra var Matthías Egg- ertsson. Sumar þessar vísur tel ég mig kunna, en þær voru 7 að mig minnir,“ segir hann: Lukkufírar letrað geta lögin skýr á eyðublað. Ær og kýr og merar meta möppudýr á Hólastað. Upp í móti æviveg allir hljóta að svamla. Eftir kvótakerfi ég keyri skótann gamla. Alltaf verð ég minni og minni máttvana í lífsins brasi. Ég er ekki einu sinni ærgildi hjá Matthíasi. Reisa löppum riða á rollan slöpp og kýrin. Bændum kröppu kjörin ljá kvótamöppudýrin. Það er skemmtilegt að rifja upp prestavísur. Um sr. Gunnar Jó- hannesson á Skarði á Landi orti Eiríkur Einarsson frá Hæli: Hér stendur stirðvaxinn klerkur stórlax að ærunni. Í sálinni er vaxtarverkur og vorull á gærunni. Sr. Tryggvi Kvaran hefur ekki verið að öllu sáttur við þá er stýrðu blöðum og tímaritum þegar hann orti þessa vísu: „Þú mátt eiga þetta lið það mun við þig stjana,“ sagði Drottinn Satan við og sendi honum ritstjórana. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Mermundi karli, kvóta og prestum Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „TJA, EINHVER HRINGDI OG PANTAÐI 3 KÍLÓ AF JARÐHNETUM.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... svefnleysi í Hafnarfirði og Húsavík ÆTLARÐU AÐ DEILA ÞESSU? ÞESSU!DEILA HVERJU? VÓ! ÞÚ ÆTTIR AÐ TALA HRAÐAR! KOKKURINN Á BARNUM VARÐ MJÖG TILFINNINGA- HEITUR ÞEGAR ÉG SAGÐI SVOLÍTIÐ MÓÐGANDI UM MATSELDINA HANS! VARÐ HANN SÁR? HANN JAFNAÐI METIN! Áhyggjumiðstöði n -svo þú þurfir þess ekki Flestir vita að mánudagur er ekkiþað sama og fimmtudagur enda mæða allt annað en frægð. Aug- ljósasta dæmið um þessar mundir eru dagarnir tveir, þar sem annar hefur heldur betur verið í skugg- anum af hinum. x x x Borgarstjórinn í Reykjavík virðisthafa bitið í sig að betra sé að vera frægur að endemum heldur en ósýnilegur með öllu. Fjölmargir upplýsingafulltrúar í ráðhúsinu hafa vart undan við að senda efni í máli og myndum til fjölmiðla af nýjustu stjórans afrekum, sem hafa ekkert með stjórn borgarinnar að gera heldur frekar ýmsar kúnstir, þá nýj- ustu um danstilburði yfirmannsins á fjölum Borgarleikhússins. x x x Fjölmiðlar, einkum á netinu, hafatekið þessu efni feginshendi og birt óstytt enda rýmið nægt. Þrátt fyrir það hefur frægðin látið á sér standa og til dæmis hefur Víkverji ekki séð að minnst hafi verið á nú- verandi borgarstjóra í þýskum fjöl- miðlum, þar sem borgarstjórar hafa verið í hávegum hafðir um aldir, en þar hefur nafn Dags Sigurðssonar verið á hvers manns vörum. x x x Þegar vel er að verki staðið er eftirþví tekið. Dagur Sigurðsson kom öllum á óvart þegar hann stýrði Þjóðverjum til Evrópumeistaratitils í handknattleik um liðna helgi. Þjóð- verjar héldu enda ekki vatni yfir ár- angrinum og Angela Merkel, kansl- ari Þýskalands, sá loks til sólar eftir erfiðleika heima fyrir vegna vanda- mála í sambandi við hælisleitendur. x x x Dagur Sigurðsson, þjálfari karla-liðs Þýskalands í handbolta, er þjóðhetja í Þýskalandi. Ætla má að hann fái sér nokkrar Berlínarbollur á bolludaginn og klæðist síðan meistarafötum á miðvikudag. Borg- arstjórinn í Reykjavík á úr vöndu að ráða en með tilliti til stöðu sorp- hirðumála í borginni kæmi engum á óvart ef hann kæmi til dyranna eins og hann er klæddur og yrði ösku- dagur á miðvikudag. víkverji@mbl.is Víkverji Lát ekki hið illa sigra þig en sigra þú illt með góðu. (Róm. 12.21)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.