Morgunblaðið - 05.02.2016, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 36. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. Stúlkurnar brugðust hárrétt við
2. Heimilisofbeldi reyndist dópbæli
3. Nýjustu fréttir af Schumacher ekki…
4. Veðrið verður verst milli 18 og 20
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hin árlega hátíð Safnanótt er í
kvöld og eru þá ýmsar sýningar opn-
aðar í söfnum og sýningarsölum og
boðið upp á fjölbreytilega dagskrá.
Viðamesta sýningin verður opnuð á
Kjarvalsstöðum klukkan 16. Nefnist
hún Hugur og heimur og getur þar að
líta úrval margra glæsilegustu mál-
verka og teikninga sem Jóhannes S.
Kjarval skapaði á löngum ferli sínum.
Sýningin er sett upp í báðum sölum
safnsins; í Vestursal er úrval verka úr
einkasafni Þorvalds Guðmundssonar
og Ingibjargar Guðmundsdóttur, þar
á meðal „Lífshlaup“ listamannsins,
sem Kjarval málaði á veggi vinnu-
stofu sinnar. Í Austursalnum getur að
líta verk í eigu Listasafns Reykjavík-
ur. Þá verða meðal annars opnaðar í
kvöld sýningar í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar, Safni Ásgríms Jónssonar
og Listasafni ASÍ.
Listasafn Reykjavíkur - Kjarval
Kjarvalsverk um alla
Kjarvalsstaði
Tilraunatónlistarmaðurinn Alan
Courtis er staddur á landinu og hefur
síðustu daga verið með námskeið og
haldið fyrirlestra á vegum Listar án
landamæra og Listaháskólans. Court-
is heldur síðan tónleika í kvöld, klukk-
an 21, í menningarhúsinu Mengi við
Óðinstorg. Hann hefur
haldið tónleika í fjölda
landa, sent frá sér
ógrynni af efni og
unnið með fjölda
listamanna, þar á
meðal félögun-
um í dúettinum
Stillupp-
steypu.
Tilraunalistamaður
kemur fram í Mengi
Á laugardag Norðaustanátt, víða 8-15 m/s og él, en 13-20 og
snjókoma á Vestfjörðum. Frost 0 til 5 stig, en frostlaust við suður-
ströndina.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða austan 5-24 m/s, hvassast norðvestan-
til. Lægir og styttir að mestu upp eystra og nyrðra, en norðvestan-
til seint í dag. Hiti 0 til 5 stig syðra, en frost annars 0 til 6 stig.
VEÐUR
„Þessi vetur hefur verið
eins og rússíbani. Fyrir
tímabilið misstum við tvo
unga, uppalda Dani sem
þurfa að leggja skóna á
hilluna út af einhverjum
ættgengum galla,“ sagði
Arnar Guðjónsson, að-
stoðarþjálfari hjá danska
körfuboltaliðinu Svend-
borg, við Morgunblaðið en
mikið hefur gengið á í
leikmannamálum félags-
ins. »1
Veturinn eins og
rússíbani
„Hún hefur frábært viðhorf
til íþróttarinnar. Er ávallt í
frábæru formi og passar
upp á líkamlegt
ástand sem er alltaf
mikilvægt en ekki
síst þegar leikmaður
þarf að skila jafn
mörgum mínútum
og hún. Hlutverk
hennar útheimtir
mikla orku á báð-
um endum vall-
arins,“ segir þjálfari
Hamars í Hveragerði
um körfubolta-
konuna Írisi Ásgeirs-
dóttur, fyrirliða liðs-
ins, sem er leikmaður
umferðarinnar hjá
Morgunblaðinu. »4
Hún hefur frábært við-
horf til íþróttarinnar
Íslandsmeistarar Hauka hafa
tveggja stiga forskot á Vals-
menn í toppsæti Olís-
deildarinnar í handknattleik
eftir sigur á Aftureldingu á Ás-
völlum í gærkvöld. FH og Grótta
fögnuðu sigrum á heimavelli,
gegn Víkingi og Fram, en í Aust-
urbergi skildu ÍR-ingar og Eyja-
menn jafnir í hörkuleik. »2-3
Haukar með tveggja
stiga forskot
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Það er mikið um að vera í íslensku
íþróttalífi um þessar mundir. Ás-
valdur Andrésson, 87 ára fyrrver-
andi bifreiðasmiður í Kópavogi, er
einn þeirra sem láta þetta ekki
framhjá sér fara enda mikill áhuga-
maður um íþróttir. „Ég er hálfgerð
flökkutík þegar íþróttirnar eru ann-
ars vegar og á mér mörg uppáhalds-
lið,“ segir hann.
Seyðfirðingurinn byrjaði ungur að
vinna fyrir sér, fór meðal annars á
vertíð 15 ára, en eftir stríðið var erf-
itt að fá vinnu fyrir austan og þá
flutti hann til Keflavíkur, þar sem
hann bjó í nær áratug og vann hjá
bandaríska hernum. Síðar lærði
hann bifreiðasmíði hjá Agli Vil-
hjálmssyni. Þar vann hann þangað
til fyrirtækið flutti í Kópavog og
færði sig þá í störf við tryggingar.
Heldur með mörgum liðum
Ásvaldur fylgdist grannt með ný-
afstaðinni Evrópukeppni karla í
handbolta í sjónvarpinu. „Þetta var
frábært hjá Degi,“ segir hann um
Evrópumeistaratitil Þjóðverja undir
stjórn Dags Sigurðssonar. „Guð-
mundur [Guðmundsson] var svolítið
óheppinn með Danina og það var
sárt að við skyldum strax detta úr
keppni en við eigum möguleika á
móti Portúgal í umspilsleikjunum
fyrir heimsmeistarakeppnina. Ég
vona að strákarnir hafi betur í þeim
leikjum en það á eftir að ráða þjálf-
ara. Hann skiptir miklu.“
Ásvaldur segist hafa taugar til
enska fótboltaliðsins Arsenal eftir að
hann sá það spila í Reykjavík fyrir
mörgum áratugum. „Eftir að ég
flutti til Keflavíkur var ég heitur
Skagamaður, því þá var ekkert lið í
Keflavík og við fórum saman á leiki
ÍA og studdum Skagamenn á móti
Reykjavíkurliðunum. Ríkharður
Jónsson og Helgi Dan. voru í sér-
stöku uppáhaldi hjá mér. Ég hafði
því gaman af því að ein dóttir mín
skyldi flytja á Skagann, en hún fór
oft með mér á leiki þegar hún var lít-
il. Þá sigldum við til Akraness með
Akraborginni.“
Hjónin Ásvaldur og Erna María
Jóhannsdóttir, sem áttu 60 ára
brúðkaupsafmæli í gær, eiga þrjár
dætur, Hönnu Rúnu, Regínu og
Ragnhildi. Guðmundur Andri
Tryggvason Guðmundssonar er
efnilegur 17 ára framherji í KR og
dótturdóttursonur þeirra. „Mamma
hans spilaði líka fótbolta eins og
fleiri dótturdætur mínar. Hann er
mikill markaskorari og ég fylgist
með honum, en annars held ég með
Breiðabliki og vona að Blikar nái að
landa titlinum í ár. Ég er líka FH-
ingur því þar á ég gamla kunningja.
Í eldgamla daga byrjaði ég að halda
með FH, þegar liðið spilaði á móti
Reykjavíkurfélögunum í handbolta
á Hálogalandi.“
Það styttist í úrslitakeppni Evr-
ópumótsins í fótbolta í Frakklandi,
þar sem íslenska landsliðið verður í
eldlínunni. „Það verður heilmikil
uppákoma,“ segir Ásvaldur. „Lars
og Heimir hafa gert mjög mikið fyrir
landsliðið,“ heldur hann áfram. „Það
er mikið um að vera í fótboltanum í
ár en ég fer hvergi, held mig við
sjónvarpið.“
Flökkutík í íþróttunum
Ásvaldur Andr-
ésson lætur ekkert
framhjá sér fara
Morgunblaðið/RAX
Demantsbrúðkaup Erna María Jóhannsdóttir og Ásvaldur Andrésson áttu 60 ára brúðkaupsafmæli í gær.