Morgunblaðið - 11.03.2016, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ 13
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
www.isfell.is
Ísfell er eitt öflugasta fyrirtækið á Íslandi í þjónustu
við sjávarútveginn. Fyrirtækið rekur alhliða heildsölu
með útgerðar-, björgunar- og rekstrarvörur ásamt
veiðarfæragerð undir nafninu Ísnet. Sterk staða Ísfells
markast helst af góðu vöruúrvali, þjónustu og mikilli
þekkingu starfsfólks á íslenskum sjávarútvegi.
Hafðu samband við sölumenn okkar
og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna!
Fast þeir sækja sjóinn!
Bjóðum öll veiðarfæri og tengdan búnað sem þarf um borð í íslensk fiskiskip
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi
• Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1
• Kristbjörg Ólafsfjörður - Pálsbergsgata 1
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður
HAFNARFJÖRÐUR
VESTMANNAEYJAR
SAUÐÁRKRÓKUR HÚSAVÍK
AKUREYRI
ÞORLÁKSHÖFN
www.isfell.is
ÓLAFSFJÖRÐUR
„Instafish er það sem við vilj-
um kalla online brand fyrir ís-
lenskan fisk, en ekkert slíkt er til
í dag, sem er merkilegt þegar öll
viðskipti eru meira eða minna að
færast á netið,“ segir hann.
Stefnan er sett á að selja 100
tonn á ári til að byrja með, en í
fyrstu ætlar fyrirtækið að ein-
blína á að selja til einstaklinga.
Hann útilokar ekki möguleikann
á því að selja til veitingastaða í
Bandaríkjunum í framhaldinu.
Þvert á móti er fyrirtækið þegar
farið að skoða möguleikann á því
að selja íslenskan fisk á veit-
ingastaði, en hann segir að á
veitingastöðum inn til landsins í
Bandaríkjunum sé oft erfitt að
nálgast hágæðafisk. ash@mbl.is
dyrum
Þ
egar þjóðhagslegt mik-
ilvægi fiskveiða berst í
tal er gott að muna að
áhrifin ná langt út fyrir
sjálfar veiðarnar og vinnsluna.
Ótalmörg fyrirtæki þjónusta
sjávarútveginn með ýmsum
hætti og oft að sjávarútveg-
stengdar lausnir hafa myndað
grunninn að því sem í dag er
stór og fjölbreyttur rekstur.
Hrannar Erlingsson er fram-
kvæmdastjóri hugbúnaðarfyr-
irtækisins Wise lausnir og segir
ekki útilokað að fyrirtækið hefði
aldrei orðið til ef ekki hefðu
komið til verkefni fyrir sjávar-
útveginn.
Nær saga Wise allt aftur til
ársins 1995 og fór starfsemin
fyrst að taka á sig mynd hjá við-
skiptalausnadeild fyrirtækisins
Tölvumynda, en verður til í nú-
verandi mynd upp úr aldamót-
um, fyrst sem Maritech, en tók
upp nafnið Wise lausnir árið
2013. Í dag starfa rúmlega 70
manns hjá Wise og sinnir fyr-
irtækið hugbúnaðarþörfum um
500 fyrirtækja, stofnana og
sveitarfélaga. Segir Hrannar að
sjávarútvegsfyrirtæki myndi um
25% af viðskiptavinahópnum og
er Wisefish-hugbúnaðurinn einn
af aðalvörunum.
Wisefish er viðskiptahugbún-
aður sérsniðinn að þörfum fyr-
irtækja sem höndla með fisk á
einn eða annan hátt, hvort heldur
í veiðum, vinnslu, sölu eða dreif-
ingu. „Kerfið byggist á Dynamics
NAV-viðskiptakerfi Microsoft og
nýtist við flesta þætti rekstr-
arins, s.s. bókhald, framleiðslu,
sölu, innkaup og tilboðsgerð,“
segir Hrannar.
Talar við önnur kerfi
Eins og í öllum öðrum rekstri
skiptir miklu fyrir stjórnendur í
sjávarútvegi að hafa góða yf-
irsýn. Bendir Hrannar á að Wi-
sefish haldi utan um veiðar og
veiðiaðferðir, hversu miklu er
landað og hvaða tegundum. Einn-
ig nýtist forritið til að vakta
kvótastöðu og halda utan um
framleiðsluferla. Má tengja Wi-
sefish við önnur kerfi, eins og
Innova-matvinnsluhugbúnaðinn
frá Marel, og má láta kerfið tala
við jaðartæki, s.s. vogir og hand-
tölvur. „Svo er innbyggt í Wisef-
ish HACCP-gæðakerfi sem nota
má við alla framleiðsluna,“ út-
skýrir Hrannar. „Í kerfinu má fá
ítarlega sundurliðun á birgða-
stöðu, s.s. eftir tegund afla,
stærðum og magni, og mögulegt
að láta Wisefish t.d. greina fram-
legð af sölu. Gríðarmikið af upp-
lýsingum verður til innan Wisef-
ish um leið og byrjað er að nota
hugbúnaðinn.“
Sókn á Noregsmarkað
Í dag eru rétt um 60 íslensk fyr-
irtæki sem nota Wisefish og segir
Hrannar að í þeim hópi séu vel-
flest stærri sjávarútvegs- og
vinnslufyrirtæki landsins. Rekst-
urinn þarf þó ekki að vera mjög
stór til að borgi sig að innleiða
Wisefish . „Um leið og starfsemin
kallar á það að ráða fólk til vinnu
fer Wisefish að vera mjög gagn-
legt tæki og hentar minni aðilum
ekki síður en þeim stærri.“
Er Wisefish orðið útflutnings-
vara og hugbúnaðurinn notaður
af fyrirtækjum í Noregi, Bret-
landi, Þýskalandi, Bandaríkj-
unum, og jafnvel lengst austur í
Ástralíu og Nýja-Sjálandi.
Ljóstrar Hrannar því upp að fyr-
irhugað sé að markaðssetja Wi-
sefish af meiri krafti erlendis og
stofnaði Wise fyrir skemmstu
dótturfyrirtæki í Noregi til að
efla söluna á því markaðssæði.
„Töluverð samkeppni er þar fyrir
á markaði, en þó er enginn með
hugbúnað sem nær að gera ná-
kvæmlega það sama og okkar.“
ai@mbl.is
Hugbúnaður hannaður með fisk í huga
Wisefish frá Wise lausn-
um hefur náð góðri út-
breiðslu í íslenskum
sjávarútvegi og unnið er
að því að ná fótfestu á
erlendum mörkuðum