Morgunblaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 35
Morgunblaðið/Alfons Finnsson Rígvænn Þráinn Viðar Egilsson er stýrimaður á Esjari SH. Það er gam- an að vera til sjós þegar vel veiðist og skemmtilegt að hampa stór- þorski fyrir ljósmyndarann. land. Þá fengu karlarnir á Steinunni SH 167 51 tonn einn daginn í síðustu viku og 47 tonn daginn eftir. Eigum allt undir Mikið af þeim afla sem berst á land í Snæfellsbæ er unnið þar í bæ. Ann- að fer á fiskmarkað og er flutt til kaupenda hingað og þangað um landið. En það sem skiptir þó einna mestu er að góð aflabrögð skila miklum tekjum. Fólkið sjálft hefur meira handa á milli. En áhrif þessa koma líka fljótt fram hjá bæjarsjóði. „Febrúar, mars og apríl eru bestu mánuðirnir hjá okkur. Þá eru tekjur sveitarfélagsins mestar,“ útskýrir Kristinn Jónasson bæjarstjóri. Það er 15. hvers mánaðar sem sveit- arfélögin fá útsvarshlutann af inn- heimtum skatttekjum mánaðarins á undan; það er innheimtir skattar fyrir febrúar koma um miðjan mars. „Um þetta leyti árs eru tekjur okkar af útsvari oft í kringum 80 milljónir króna á mánuði. Þegar hægist um við sjávarsíðuna til dæm- is þá geta tekjurnar jafnvel verið helmingi minni, kannski rúmlega 40 milljónir króna. Í byggðarlagi eins og Snæfellsbæ eigum við allt undir því að vel veiðist,“ segir bæjarstjór- inn. Allar myndirnar með þessari grein tók Alfons Finnsson í Ólafsvík. sbs@mbl.is Vinna Röskleiki þegar keðjur eru settar utan um körin sem svo fara upp á bíl. vertíðinni MORGUNBLAÐIÐ 35 Op t ima r - I c e l a nd | M i ðh r a un 2 | 2 1 0 Ga r ð abæ | S ím i 5 8 7 1300 | Fa x 5 87 1301 | op t ima r@op t ima r . i s | www. op t ima r . i s Mjög mikilvægt er að kæla aflann hratt fyrstu klukkustundirnar eftir veiði, það lengir geymsluþol verulega. Notkun ísþykknis frá Optimar Ísland er góð aðferð til að ná fram hámarks kælihraða því flotmikið og fínkristallað ísþykknið umlykur allt hráefnið og orkuyfirfærslan er því gríðarlega hröð. Þessi hraða orkuyfirfærsla hamlar bakteríu- og örveruvexti og hámarks gæði aflans eru tryggð. Hröð niðurkæling er það semOptim-Ice® ísþykknið snýst um. Tryggir gæðin alla leið! 16 14 12 10 8 6 4 2 0 -2 0 1 2 3 4 5 6 Tími (klst) H ita st ig (° C ) Hefðbundinn ís Ísþykkni NIÐURKÆLING Á ÝSU Heimild: Seafish Scotland

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.