Morgunblaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 27
eins konar terrazzo-gólf, setja upp bar og svo komum við okkur auð- vitað upp góðu eldhúsi – en þetta hefur gengið vel og ekki skortir neitt á gestakomur.“ Það verður ekki annað sagt en vel hafi tekist til með innréttingar á húsnæðinu. Athygli vekur hve góð hljóðeinangrun er á staðnum. „Já, hljóðeinangrunin hefur tek- ist mjög vel,“ segir Erna. „Bryndís Bolladóttir kom með þá hugmynd að hafa nokkurs konar ullarbólur í loftinu og nokkrar eru meira að segja hér á veggnum á bak við þig,“ segir hún og bendir mér á marglitar ullarkúlur. Ég sný mér við og horfi líka upp í loftið og get ekki annað en dáðst að þessari skemmtilegu lausn hönnuðarins. Kirkjubekkir frá Siglufirði „Við höfum ekki kostað miklu til lagfæringa heldur endurnýjað hægt og rólega. Við keyptum gamla stóla sem við létum smám saman bólstra og klæða. Ég var líka dugleg að fara í Góða hirðinn og fékk þar marga fætur undir borð, lét taka plöturnar af og svo keyptum við nýjar í IKEA og skrúfuðum þær á. Bekkirnir út við gluggana á austurhliðinni eru úr kirkju á Siglufirði. Alls konar skreytingar hef ég keypt í utanlandsferðum, einkum í Frakklandi.“ Erna bendir mér á fiska, telgda úr tré með bláum sporði. „Þeir hanga á íslenskum rekaviði. Við erum hrifin af rekaviðnum. Svo vildum við hafa blóm en þau þrif- ust illa þangað til við duttum niður á Tannhvassa tengdamömmu, henni líkar ljómandi vel við okk- ur,“ segir Erna og bendir mér á blómaker með vöxtulegum tengda- mömmum af tannhvassari tegund- inni. Rjómaskyr og glútenfrí súkkulaðikaka En hvernig er matseðillinn hugs- aður? „Við viljum hafa sem mest ís- lenskt. Auk fisksins, sem við djúp- steikjum í deigi sem er leyni- uppskrift okkar, höfum við þróað margskonar skyrsósur. Núna erum við með níu tegundir. Við erum líka með margskonar salöt sem fólk getur valið úr. Hvað eftirmat snertir erum við með rjómaskyr með bláberjum og svo franska súkkulaðiköku sem er glútenfrí og með hrásykri. Ég get þó upplýst varðandi leyniuppskriftina að deig- inu að í því eru ekki egg og ekki mjólk og við notum spelt en ekki venjulegt hveiti. Við erum einnig með það sem við köllum „lego- matseðil“. Þá getur fólk valið sam- an það sem það vill en líka höfum við þrjá tilboðsrétti daglega. Við höfum verið mjög heppin með starfsfólk. Fyrst var bara fjöl- skyldan hér að störfum og þá voru Íslendingar flestir í gestahópnum. Svo kom hrunið og það var sem fyrr sagði dapurt hér um tíma. Það var reyndar athyglisverður tími hjá okkur því blaðamenn, kröfu- hafar og fjármálafólk funduðu gjarnan yfir matborðinu hjá okkur. En allt breyttist þegar ferðamenn- irnir fóru að streyma til landsins. Þá vænkaðist hagur Icelandic Fish & Chips heldur betur og við þurft- um að bæta við okkur fólki. Elsta dóttir mín vann hér um tíma og ég spurði hana hvort skólasystkini hennar hefðu áhuga á að starfa fyrir okkur. Þannig fengum við frábært fólk sem hefur verið hér að störfum meðfram námi. Svo er- um við með erlent starfsfólk frá Frakklandi, Þýskalandi og Banda- ríkjunum. Það er einkum mikil- vægt að hafa fólk sem getur talað við Frakkana og Þjóðverjana, þeir tala oft ekki ensku. Þjóðverjarnir benda þó á það sem þeir vilja en Frakkarnir pata með höndunum og þá er oft erfitt að botna í til hvers hugur þeirra stendur.“ Er þetta skemmtilegt starf? „Já, það kom mér á óvart hve skemmtilegt það er. Ég er nánast með hugann við ýmsar hliðar rekstursins jafnt að degi sem nóttu. Ég starfaði áður á ýmsum fjölmiðlum í mörg ár. Blaða- mennska er skemmtilegt starf en veitingahúsrekstur er ekki síður spennandi, ekki síst þegar svona mikið er um að vera í ferðamálum eins og nú er. Ég er sífellt að huga að einhverjum nýjungum, bæði hvað snertir bragð- og næringar- þátt matarins. Þetta er starf sem gefur lífinu lit og tilgang og ekki spillir að vera í samstarfi við fólkið sitt á þennan hátt.“ gudrunsg@gmail.com MORGUNBLAÐIÐ 27 1 dós kjúklingabaunir safi úr einni sítrónu 1 gott hvítlauksrif 1 tsk broddkúmen 1⁄8 tsk cayennepipar 1 tsk paprikuduft 1 tsk sjávarsalt jómfrúarólífuolía Safanum er hellt af kjúk- lingabaununum og þær skol- aðar. Þær eru svo settar í matvinnsluvél ásamt öllu hinu hráefninu, nema ólífu- olíunni. Maukað vel saman og ólífu- olíunni bætt við á meðan í mjórri bunu þar til áferðin hefur náð góðum þéttleika. Það er aldrei of mikið af góðri ólífuolíu í hummus en hann má þó ekki verða of þunnur. Smakkið til með kryddinu. Það gæti þurft að bæta ögn við af broddkúmeni, salti eða cayenne eftir smekk. Maukið er svo sett á disk og dreift úr með skeið. Gott er að strá svolitlu chilidufti yfir og toppa með ólífuolíu. Hummus 200 g íslenskt smjört 4 egg 2 dl hrásykur 1 dl glutenfrítt hveiti 1 tsk. vínsteinsduft Aðferð: Bræðið saman súkkulaði og smjör. Kælið í 20 mínútur. Egg þeytt og hrá- sykri bætt við þar til létt og ljóst. Bætið við hveiti og vínsteinslyftidufti. Smyrjið hringlaga form og setjið deigið í. Bakið við 180 °C í 40 mínútur. Heilsusamlegri súkkulaðikaka www.matis.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 5 -2 0 7 6 Hugsaðu inn í boxið ... Flest nýsköpun felst í að koma auga á nýja möguleika í því sem fyrir er. Finna not fyrir það sem áður var hent. Sjá tengingar sem aðrir sjá ekki. Okkar hlutverk er að auðvelda þeim sem þetta geta að pakka hugmyndunum sínum inn og koma þeim í framkvæmd, okkur öllum til hagsbóta. Matís er öflugt þekkingarfyrirtæki sem sinnir fjölbreyttu rannsóknar-, þjónustu- og nýsköpunarstarfi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.