Morgunblaðið - 11.03.2016, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 11.03.2016, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is K Ä R C H E R S Ö L U M E N N HáþrýstidælurGufudælur Öflugir vinnuþjarkar Háþrýstistöðvar og dælur HDC Classic Háþrýstistöð fyrir 1-3 notendur ■ Vatnsflæði: 700-2000 l/klst ■ Þrýstingur: 80 eða 160 bör ■ Hámarks hitastig: 85 / 60°c HDC Standard Háþrýstistöð fyrir 1-8 notendur ■ Vatnsflæði: 700-8000 l/klst ■ Þrýstingur: 80 eða 160 bör ■ Hámarks hitastig: 85 / 60°c HD 9/18-4 ST Háþrýstistöð fyrir 1 notanda ■ Vatnsflæði: 460-900 l/klst ■ Þrýstingur: 40-180 bör ■ Hámarks hitastig: 70°c Þ að er margt sem laðar ferða- menn til Íslands: óspillt náttúran, fossar og gos- hverir, fjörlegt næturlíf, sætir hestar og … flökunarvélar? Greina má merki þess að sjávar- útvegurinn sé farinn að spila stærra hlutverk í upplifun erlendra ferðamanna af landinu. Eyrún Huld Árnadóttir er viðburðastjóri hjá Ís- lenska sjávarklasanum en þar er tekið á móti fjölda erlenda gesta ár hvert sem vilja kynna sér starfsem- ina í Húsi sjávarklasans og á hafn- arsvæðinu. Eyrún kemur auga á áhugaverða möguleika við að tengja saman þessar tvær helstu útflutn- ingsgreinar landsins, fiskveiðarnar og túrismann, og um leið skapa tækifæri í alls kyns afleiddri þjón- ustu. Skoða og smakka „Það kom til vegna eftirspurn- arinnar að við hófum að taka móti gestum í Húsi sjávarklasans og byrjaði með áhuga fólks og fyr- irtækja hér á landi sem og erlendis frá. Má þar nefna ráðamenn fyr- irtækja, nemendur, embættismenn og fleiri aðila sem vildu kynna sér það sem fram fer í húsinu. Ferð- irnar sníðum við að hverjum hóp, en alla jafna fela heimsóknirnar í sér kynningu á Sjávarklasanum, Húsi sjávarklasans og nýsköpun ís- lensk sjávarútvegs. Sumir vilja al- menna kynningu á íslenskum sjáv- arútvegi og er ekkert mál að verða við því. Gengið er með gesti um húsið þar sem hin ýmsu fyrirtæki sem hér starfa eru kynnt, og litið inn hjá þeim fyrirtækjum sem gest- irnir eru áhugasamastir um. Við bjóðum upp á smakk á lýsi, súkku- laði með sjávarsalti, harðfiski og kollagenbombu, og erum með fulla körfu af sjávartengdum vörum frá frumkvöðlum og nýsköpunarfyr- irtækjum á Íslandi sem við kynnum og sýnum gestunum.“ Yfir sig heilluð af vinnsluaðferðunum Ferðirnar hafa stundum teygt sig út fyrir húsið, s.s. niður að bryggju þar sem fylgjast má með sjómönn- um landa afla dagsins, og jafnvel út fyrir borgarmörkin þar sem full- komnar fiskvinnslur eru skoðaðar í þaula. „Ferðirnar um Hús sjáv- arklasans taka alla jafna um hálf- tíma til klukkutíma en hafa farið allt upp í þriggja daga ferðir. Á dögunum fórum við til dæmis með hóp í heimsókn til Vísis í Grindavík, og komum einnig við í höf- uðstöðvum Marel.“ Að sögn Eyrúnar væri áhugavert að ganga enn lengra og byggja upp sjávartengda ferðaþjónustu, t.d. með reglulegum leiðsöguferðum um hafnarsvæðið, máski með viðkomu í Sjóminjasafninu og Hvalasafninu. „Um milljón gestir heimsækja land- ið árlega og ekki allir þeirra vilja endilega skoða fossa eða kirkjur. Þarna má finna fólk sem fylgist heillað með þegar því er sagt frá og sýnt hvernig íslensk sjávarútvegs- fyrirtæki fullnýta aflann og veiða fiskinn á umhverfisvænan og sjálf- bæran hátt. Þeim finnst ótrúlegt að sjá þær vörur sem við gerum úr sjávarfangi, s.s. snyrtivörur, fæðu- bótarefni og lækningavörur. Fólk vill sjá hvaðan fiskurinn sem við borðum kemur og hvernig vinnslu- aðferðirnar tryggja gæðin með vandaðri kælingu og fullkominni snyrtingu.“ Hjá Húsi sjávarklasann er tekið hóflegt gjald fyrir ferðirnar og sér Eyrún fyrir sér að þjónusta við ferðamenn gæti orðið ein af stoð- unum í starfi sumra sjávarútvegs- fyrirtækja, eða í það minnsta haft jákvæð áhrif á nærsamfélagið. Nefnir hún ferðaþjónustu á vín- ræktarsvæðum sem dæmi, þar sem það að taka á móti forvitnum gest- um gefur framleiðendum bæði tækifæri til að koma sínu vöru- merki á framfæri en líka að varla snýr nokkur gestur heim úr slíkri ferð án þess að kaupa nokkrar vín- flöskur til að taka með sér. „Þegar fólk er búið að sjá hvernig varan verður til er það þeim mun áhuga- samara um að kaupa hana, hvort sem um er að ræða þorskbita sem steiktur er og borðaður á staðnum eða eitthvað sem má taka með sér og sýna vinum og vandamönnum þegar heim er komið,“ segir hún. „Hér hjá okkur höfum við selt lítinn gjafapoka, sem við nefnum Gull og gersemar hafsins. Hann hefur vakið mikla lukku, en í honum má meðal annars finna Pensím, sjávarsalt, Omnom súkkulaði og kollagenduft.“ Fær fólk til að staldra við Segir Eyrún að í smærri bæj- arfélögum ætti að athuga með hvaða hætti mætti tengja sjávar- útveginn ferðaþjónustunni, og reyna um leið að sjá hvað styður hvað. „Kynnisferð um fiskvinnslu og hafnarsvæði gæti verið það sem þarf til að fá fleiri til að staldra við, og dýpkar upplifun gesta af bæn- um. Fisherman á Suðureyri er frá- bært dæmi um slíkt. Lengri viðdvöl getur svo þýtt að hótel, veitinga- staðir og önnur fyrirtæki á svæðinu fá til sín fleiri ferðamenn.“ ai@mbl.is Sumir vilja ekki skoða fossa eða kirkjur Sjávarútvegurinn er farinn að spila hlutverk í ferðaþjónustunni. Innlendum sem erlend- um gestum þykir gaman að sjá hvernig greinin starfar og eru áhuga- samir um vöruna. Morgunblaðið/Golli Fjölbreytni Ferðamen á Skólavörðuholti. Sjávarútvegurinn er eitthvað sem óhætt er að sýna erlendu gestunum og getur stutt við greinina á marga vegu. Morgunblaðið/Styrmir Kári Markaður „Þarna má finna fólk sem fylgist heillað með þegar því er sagt frá og sýnt hvernig íslensk sjávarútvegsfyrirtæki fullnýta aflann og veiða fiskinn á um- hverfisvænan og sjálfbæran hátt,,“ segir Eyrún Huld Árnadóttir hjá Íslenska sjávarklasanum um möguleikana í sjávarútvegstengdri ferðaþjónustu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.