Morgunblaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ
Hamraborg 1 • Kópavogur • Sími 560 0000 • www.safir.is • safir@safir.is
Hafsjór af þekkingu
Sérhæfum okkur í sölu:
Grunnur að góðum viðskiptum
• Fyrirtækja
• Aflaheimilda
• Skipa og báta
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Í
kjölfar þess að ungur Dalvík-
ingur, Kristján Guðmundsson að
nafni, lenti í slæmu vinnuslysi
þegar hann vann við löndun árið
2011 ákváðu forsvarsmenn sjáv-
arútvegsfyrirtækisins Samherja,
með Kristján Vilhelmsson fram-
kvæmdastjóra útgerðarsviðs í
broddi fylkingar, að fyrirbyggja að
annað eins vinnuslys kæmi aftur fyr-
ir. Ekki á þeirra vakt.
Setti Samherji saman hóp sem
hafði það markmið að útbúa örygg-
islausn fyrir löndunarstarfsmenn.
Að borðinu voru meðal annars
fengnir aðilar frá vélsmiðjunni
Hamri og löndunarþjónustunni Val-
eska á Dalvík. Skilaði hópurinn af
sér tillögu að nýrri nothæfri örygg-
islausn við löndun: Kristjánsbúrinu,
sem var afhjúpað við hátíðlega at-
höfn á Fiskideginum mikla á Dalvík
árið 2013.
Mörgum þótti fyrsta útgáfa Krist-
jánsbúrsins óhentug fyrir þær sakir
að búrið var fyrirferðarmikið og
þungt. Kranar sem notaðir eru við
löndun réðu sumir hverjir ekki við
þyngd búrsins og nota þurfti lyftara
um borð til þess að brúka það. Búrið
hafði vart litið dagsins ljós þegar
vinna við að betrumbæta það hófst. Í
dag er nýjasta útgáfa þess um 200
kílóum léttari og hægt er að keyra
inn í það með handtjakki.
Öryggi var ástæðan en
hliðarafurðin var aukin afköst
Sævaldur Jens Gunarsson, sölustjóri
Sæplasts sem annast sölu- og mark-
aðssetningu Kristjánsbúrsins, segir
að kerin sem notuð eru við löndun,
og þá sérstaklega á þeim tíma þegar
hugmyndavinna Kristjánsbúrsins
fór fram, geti verið í alls konar
ástandi. Þegar Kristjánsbúrið kom
fram á sjónarsviðið hafi Sam-
herjamönnum og löndunar-
þjónustunni Valeska strax orðið ljóst
að ekki þyrfti lengur að treysta á að
hornin á kerunum sem hífa átti í
lönduninni væru í lagi en ekki slitin.
„Útgangspunkturinn var öryggis-
mál, að það þyrfti ekki að treysta á
að hornin á kerunum væru í lagi,“
segir Sævaldur en með Kristjáns-
búrinu, sem lokast sjálfkrafa við híf-
ingu og opnast sjálfkrafa þegar það
lendir, er engin hætta á hruni ker-
astæðu við löndun.
Þegar Valeska hóf notkun búrsins
kom á daginn að notkun þess jók af-
köstin við löndun.
„Þeir voru miklu fljótari að landa
en þeir höfðu verið áður. Það var
aukaverkun sem kom í ljós við þetta
allt saman,“ segir Sævaldur en með
notkun Kristjánsbúrsins varð starfs-
maður sem áður var í því að húkka
krókum í og úr kerum við hífingar
óþarfur.
„Þeir gátu gengið í að færa stæð-
urnar inn í búrið og þurftu ekki að
skoða höldin á neðsta kerinu. Áður
fyrr var þetta spurning um hvort
neðsta kerið væri í nægilega góðu
ástandi til að hífa og olli það töfum í
lönduninni. Það vandamál er úr sög-
unni eftir að búrið kom,“ segir hann.
Þegar búrið var kynnt á sínum
tíma tilkynntu Samherji og Valeska,
verktaki Samherja við löndun, að
Kristjánsbúrið yrði notað við löndun
framvegis. Að sögn Sævaldar er það
raunin.
„Samherji er búinn að nota þetta í
þennan tíma. Þeir landa orðið ekki
úr skipi án þess að hafa búrið með.
Ef Valeskumenn sinna löndun ann-
ars staðar en á Dalvík taka þeir búr-
ið með sér þangað á kerru,“ segir
Sævaldur en eitt Kristjánsbúr er
notað í hverri löndun.
Afhenda búr hægri vinstri
Spurður hversu mörg fyrirtæki nýti
Kristjánsbúrið nú um stundir segir
Sævaldur að mikill áhugi sé á
búrinu. Fiskmarkaður Vestfjarða á
Bolungarvík fékk afhent búr í síð-
ustu viku, annað fór á Fáskrúðsfjörð
í gær og næsta búr er á leið til Vest-
manneyja innan nokkurra vikna. Þá
hefur eitt búr farið til Noregs.
„Núna eru útgerðir og löndunar-
þjónustur að taka við sér og taka
næsta skref í þessu. Það er þannig
með alla svona hluti að það þarf að
prófa þetta fyrst. Þetta er dýrt
verkfæri og menn kaupa það ekki að
gamni sínu,“ segir Sævaldur en eitt
búr kostar um þrjár milljónir króna.
Hann hefur það eftir forsvars-
mönnum löndunarþjónustunnar Va-
lesku að kaupin á búrinu borgi sig
upp á tiltölulega fáum löndunum,
enda spari þeir sér mann og séu
fljótari að landa nú en áður.
Sjónvarpsþáttur um vinnuslysið
vakti menn til umhugsunar
Samúel Samúelsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðs Vest-
fjarða, sem fékk Kristjánsbúr af-
hent í síðustu viku, segir það þegar
hafa verið notað við löndun og virk-
að gríðarlega vel. „Við keyptum það
fyrst og fremst sem öryggisbúr.
Slysin gera ekki boð á undan sér,“
segir Samúel en það vakti hann og
aðra starfsmenn til umhugsunar
þegar fjallað var um vinnuslys
Kristjáns í sjónvarpsþættinum
Neyðarlínunni sem sýndur var á
Stöð 2 sl. haust. „Eftir að við sáum
þáttinn á sínum tíma fórum við
strax í að skoða þetta,“ segir Sam-
úel.
Spurður hvort stefnan sé sett á að
herja á erlenda aðila í sjávarútvegi
og kynna fyrir þeim Kristjánsbúrið
kveður Sævaldur stöðuna þannig að
kerum sé ekki landað í jafnmiklu
magni erlendis og hér heima. Slík
sóknarfæri séu þó fyrir hendi t.d. í
Noregi og Færeyjum.
„Þessi búr eiga alls staðar við þar
sem menn eru að hífa ker í miklu
magni. Þetta er þungt búr sem gerir
kröfu á lestarnar að hægt sé að
koma þar fyrir lyftara eða hand-
tjakki. Búrið verður ekki notað í
allra minnstu bátunum, þetta er
lausn fyrir þá sem eru með mikið
magn, þurfa mikil afköst og láta ör-
yggi starfsmanna sig varða.“
ash@mbl.is
Kristjánsbúrið tekst á flug
Kristjánsbúrið varð
til í kjölfar alvarlegs
slyss en er í dag bylting-
arkenndur löndunarbún-
aður. Útgerðir og lönd-
unarþjónustur eru að
taka við sér, segir sölu-
stjóri Sæplasts.
Fengsæll Sævaldur Jens, sölustjóri Sæplasts, fiskar bæði við markaðssetningu
Kristjánsbúrsins og ekki síður á stöng, eins og glöggt má sjá.
mbl.is