Morgunblaðið - 11.03.2016, Side 20
Helstu eiginleikar:
• Breytileg tíðni sem býður upp á úrvinnslu á
bæði nær- og fjærmynd á breiðbandsviði
og fullkomnari mynd í kostun eða við
togveiðar.
• Hægt að læsa tækið á torfuna og láta það
elta og fylgja henni sjálfvirkt eftir.
• Innbyggður sjávarhitamælir.
• Leitartíðnisviðið getur verið frá 130 kHz til
210 kHz.
• Botnbúnaðurinn er einstaklega einfaldur í
uppsetningu og frágang í skip.
Helstu eiginleikar:
• Hágæða dýptarmælir sem vinnur á
breiðbandstíðnisviði.
Tíðnisvið: TDM-052, 38-75 kHz, 130-210
kHz ef þar til gert botnstykki er valið.
Sendiorka: 3 kw.
• 4 mismunandi tíðnir á mismunandi rásum.
• Einfaldur í allri notkun og notendavænt
umhverfi.
• Greining á botn og fisk við botninn er ein-
stök og er eins og best verður á kosið.
Djúpsjávarmælir sem ber af Yfirburðartæki á makrílveiðar
Elcon ehf • Sími 552 9510 • elcon@simnet.is
Fyrir skip og báta
KDS-6000BB
Hágæða sónar
til Makrílveiða
Hágæða
dýptarmælir
CVS-FX2 / FX2BB
KODEN TIL SJÓS ER SKIPSTJÓRANS LJÓS
20 MORGUNBLAÐIÐ
- með morgunkaffinu
Á
undanförnum árum hafa
komið fram á sjónarsviðið,
hvert á fætur öðru, fyr-
irtæki sem framleiða verð-
mætar vörur úr sjávarfangi sem áð-
ur var lítils eða einskis virði. Hörður
G. Kristinsson er rannsóknastjóri
hjá Matís og segir hann að árangur
fyrirtækjanna
sem í dag vekja
verðskuldaða at-
hygli byggist á
rannsóknum sem
spönnuðu mörg
ár, og jafnvel allt
að tvo áratugi.
„Síðustu tíu árin
hefur nýting á
aukaafurðum
sjávarfangs tek-
ist á flug, og bara
á allra síðustu árum höfum við séð
fjöldann allan af vörum koma á
markað.“
Fyrirtækin eru hvert öðru efni-
legra. „Við höfum t.d. Ensímtækni
sem gerir vörur úr ensímum sem
fengin eru úr þorskmögum. Það sem
byrjaði sem rannsóknir uppi í Há-
skóla Íslands er núna orðið að stönd-
ugu fyrirtæki með mjög flotta vöru-
línu og sem er m.a. seld inn á
lækningavörumarkaðinn,“ segir
Hörður. „Svo eru fyrirtæki á borð
við Genís og Prímex sem vinna efni
úr rækjuskel, bæði inn á fæðubót-
arefnamarkaðinn og lækninga-
vörumarkaðinn.“
Hörður nefnir líka Iceprotein á
Sauðárkróki sem framleiðir peptíð
með niðurbroti fiskpróteina. „Þau
voru að setja nýja línu fæðubót-
arefna á markað en peptíðin eru
unnin úr afskurði sem fellur til við
þorskvinnslu,“ segir Hörður. „Ekki
má gleyma Kerecis sem gerir stoð-
efni unnin úr þorski, og Marinox
sem framleiðir andoxunarefni úr
þangi; auðlind sem hefur verið sára-
lítið nýtt hér á landi. Una Skinare og
Taramar framleiða húðvörur sem
nýta lífvirk efni úr þangi og síðan er
vitaskuld Codland sem stefnir að
vinnslu kollagens úr fiskroði.“
Gull í stað mjöls
Er mjög forvitnilegt að skoða hversu
verðmæta vöru má gera úr nær
verðlausu hráefni sem áður fór í
bræðslu eða var notað í dýrafóður.
„Útkoman er vara sem er jafnvel
hundraðfalt verðmætari. Verður þó
að hafa í huga að áður en framleiðsla
gat hafist þurfti að leggja út fyrir
miklum rannsóknar- og þróun-
arkostnaði, ganga frá öllum ferlum,
gæta að gæðum og öryggi, og koma
vörunni á markað. Mikilvægt er að
hafa góða rannsóknasjóði til að
styðja við þá uppbyggingu.“
Virðist framtíðin björt og mögu-
leikarnir spennandi. „Það er mikil
samvinna í greininni og að auki njóta
lífefna- og líftæknifyrirtækin góðs af
því að hafa greiðan aðgang að fyrsta
flokks hráefni. Þú býrð ekki til
heimsklassa peptíð eða kollagen
nema hafa heimsklassa hráefni til að
vinna úr.“
Matís hefur komið við sögu í flest-
um, ef ekki öllum þeim verkefnum
sem talin voru upp hér að ofan. Segir
Hörður að hlutverk Matís hafi eink-
um verið að veita aðstöðu fyrir, og
aðstoð við, rannsóknir á fyrstu stig-
um, liðssinna við uppskölun ferla og
einnig að hjálpa við styrkumsóknir.
„Með þessum fyrirtækjum sækjum
við um fjármagn úr ýmsum sjóðum,
bæði innlendum sjóðum eins og
AVS-sjóðnum og Tækniþróun-
arsjóði og stórum erlendum sjóðum
og þau fá aðgang bæði að sérhæfð-
um rannsóknatækjum og starfsfólki
okkar.“
Svo virðist sem ævintýrið sé rétt
að byrja og segir Hörður að mörg
áhugaverð verkefni séu í pípunum
þar sem nýstárlegri nálgun er beitt
til að vinna verðmæti úr vannýttu
sjávarfangi. Hann getur ekki farið
nánar ofan í saumana enda bundinn
trúnaði, en segir unnið að þróun á
„hellingi“ af vörum, úr fiski, lindýr-
um, þörungum og sjávarörverum.
Þarf meiri kraft í markaðsmálin
Aðspurður hvar helst mætti gera
betur nefnir Hörður alþjóðlegu
markaðssetninguna. Vísindalega
þekkingin sé til staðar en við-
skiptaþróun og markaðssetning
nýju fyrirtækjanna er mjög sérhæfð
og þurfi helst að fá þar erlenda sér-
fræðinga að borðinu. „Þá væri gagn-
legt að geta gert ítarlegri markaðs-
rannsóknir áður en farið er út í
rannsóknir af fullum krafti: að rann-
saka ekki bara rannsóknanna vegna
heldur reyna að sjá fyrir hvert
markaðurinn stefnir og hverju neyt-
endur eru að kalla eftir, bæði í dag
og eftir fimm eða tíu ár.“
Segir Hörður að það myndi líka
vera gagnlegt að hafa eins konar
kjarnaskrifstofu sem aðstoðaði við
að koma íslenskum uppfinningum á
framfæri erlendis. „Í öðrum löndum
má finna það sem kallað er „techno-
logy transfer office“ sem hjálpar fyr-
irtækjum og frumkvöðlum að koma
sínum vörum og lausnum á mark-
að,s.s. með ráðgjöf við gerð nýtinga-
samninga.“
ai@mbl.is
Geta gert úr hráefninu vöru
sem er hundraðfalt verðmætari
Á skömmum tíma hafa
orðið til allmörg lífefna-
og líftæknifyrirtæki sem
búa til mikil verðmæti úr
hráefni sem fellur til við
fiskvinnslu.
Morgunblaðið/Eggert
Gullnáma Fiskverkakonur á Akranesi að störfum. Vísindamenn hafa fundið leiðir til að búa til dýrmæta vöru úr ýmsu sem fellur til í sjávarútveginum.
Hörður G.
Kristinsson