Morgunblaðið - 11.03.2016, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ
Nákvæmur bitaskurður Hámarks nýting Endalausir möguleikar
Tel: (+354) 430 0600 | sales@valka.is | www.valka.is
FRAMÚRSKARANDI
lausnir fyrir fiskframleiðendur
Röntgenstýrð beina- og bitaskurðarvél
N
ú í vikunni útskrifaðist 18.
árgangur nemenda við
Sjávarútvegsskóla Há-
skóla Sameinuðu þjóð-
anna, sem starfræktur er á Ís-
landi. Að þessu sinni luku námi
alls tuttugu sérfræðingar frá fjór-
tán löndum eftir sex mánaða þjálf-
unarnám. Alls 11 þessara nema
komu frá sjö Afríkulöndum, þrír
frá jafn mörgum eyríkjum Kar-
íbahafs og sex frá fjórum löndum í
Asíu. Af tuttugu nemendum voru
konurnar fimm, það er fjórðungur.
Í Sjávarútvegsskóla Sameinuðu
þjóðanna er boðið upp á nám á
ýmsum sérsviðum og var kennt á
þremur þeirra í ár, það er fiski-
fræði, gæðastjórnun í vinnslu og
meðhöndlun afla og veiðistjórnun
og markaðsmál. Rannsóknarverk-
efni eru af ýmsum toga. Þau
tengjast öll verkefnum sem sér-
fræðingar sinna í heimalöndum
sínum. Mörg nýtast einnig beint
við stefnumótun sjávarútvegs þar.
Hraður vöxtur og
starfsemin eflist
Starfsemi Sjávarútvegsskóla Há-
skóla Sameinuðu þjóðanna á Ís-
landi hefur vaxið hratt síðustu ár
og starfsemin eflst. Styttri nám-
skeið hafa verið þróuð í samstarfi
við sérfræðinga í ýmsum löndum
og fyrrverandi nemenda skólans.
Þá hefur verið stutt við ráð-
stefnuhald á sviði sjávarútvegs.
Því til viðbótar býður skólinn
fyrrverandi nemendum sínum
styrki til framhaldsnáms hér á
landi í greinum tengdum sjávar-
útvegi.
Frá upphafi hafa nú 325 sér-
fræðingar frá yfir 50 löndum lokið
sex mánaða þjálfunarnámi við
skólann. Þá hafa 1.100 manns,
sem sömuleiðis koma víða frá í
veröldinni, tekið þátt í styttri
námskeiðum í samstarfslöndunum.
Jafnframt því að styrkja sér-
fræðikunnáttu, meðal annars í
sjávarútvegsstofnunum, þá leggur
skólinn ríkari áherslu á að afla og
þróa þekkingu sem nýtist við
stefnumótun ýmiskonar.
Góð samvinna og ávinningur
Sjávarútvegsskóli Háskóla Sam-
einuðu þjóðanna er fjármagnaður
af utanríkisráðuneytinu sem hluti
af fjölþættri þróunaraðstoð Ís-
lendinga. Skólinn er rekinn af
Hafrannsóknastofnun, í nánu sam-
starfi við til að mynda Matís, Há-
skóla Íslands, Háskólann á Ak-
ureyri og Háskólann á Hólum. Að
auki kemur fjöldi annarra stofn-
ana og fyrirtækja að starfseminni.
Í frétt frá Hafrannsóknastofnun
segir að velgengni í starfsemi
skólans í áranna rás sé ekki síst
að þakka góðri samvinnu við
fjölda stofnana á Íslandi og fyr-
irtækja í sjávarútvegi. Hefur sú
samvinna í seinni tíð jafnframt
opnað fyrirtækjum og stofnunum
hér á landi tækifæri til vaxtar og
viðgangs í fjarlægum löndum. Stór
hluti þjálfunarnámsins felst ein-
mitt í heimsóknum til fjölda fyr-
irtækja, stofnana og samtaka í
sjávarútvegi. Í því er sagðu felast
ávinningur fyrir alla, sem hluta
eiga að máli.
sbs@mbl.is
Starfsemi Sjávarútvegs-
skóla Sameinuðu þjóð-
anna á Íslandi er í sókn.
20 nemendur útskrif-
uðust á dögunum. Nám-
ið er hluti af þróun-
araðstoð Íslendinga.
Gleði Nemendur Sjávarúvegsskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, hér staaddir í heimsókn í Síldarminjasafninu á Siglufirði.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fiskurinn flakaður Við færibandið í vinnsluhúsi Odda hf. vestur á Patreksfirði
Jafnframt því að styrkja
sérfræðikunnáttu, meðal
annars í sjávarútvegs-
stofnunum, þá leggur skól-
inn ríkari áherslu á að afla
og þróa þekkingu sem nýt-
ist við stefnumótun.
Rannnsóknir nemenda nýtist í heimalöndunum