Morgunblaðið - 11.03.2016, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ
M
arel er í ekki aðeins í hópi
stærstu útflutningsfyr-
irtækja Íslands heldur er
það og í fararbroddi á
heimsvísu í þróun og framleiðslu á
háþróuðum búnaði og kerfum til
vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi.
Vöruframboð fyrirtækisins spannar
allt framleiðsluferlið, frá frum-
vinnslu hráefnis til pökkunar í
neytendaumbúðir. Menn finna allt
sem þeir þurfa á einum stað.
Marel býður upp á mikið úrval
háþróaðra tækja og hugbúnaðar,
þar á meðal vogir, flokkara, skurð-
arvélar, sagir, eftirlitsbúnað, beint-
ínsluvélar, frysta og pökkunar- og
merkingarvélar, svo eitthvað sé
nefnt. Þá býður fyrirtækið upp á
samþætt heildarkerfi sem henta á
öllum helstu sviðum matvæla-
vinnslu ásamt lausnum sem eru
sérsniðnar að þörfum við-
skiptavina.
Meðal þessa búnaðar eru lausnir
eins og FleXicut-flakavinnslukerfið,
SensorX-beinleitarvélar og Revo-
Portioner-skurðarvélin sem beitir
lágþrýstingi við skurð á fiskvörum.
Hafa þær allar hlotið góðar við-
tökur og markað framfaraspor í
vinnslu afurða.
500 beinleitarvélar
Með tæknibúnaði sínum hefur Mar-
el unnið landvinninga á und-
anförnum árum. Á sýningu í Atl-
anta í Bandaríkjunum í nýliðnum
janúarmánuði seldi fyrirtækið til að
mynda fimmhundruðustu SensorX-
beinleitarvélina. Kaupandi var
kjúklingaframleiðandi í Bandaríkj-
unum og var þetta tólfta SensorX-
vélin sem hann kaupir, og segist
hvergi hættur, þær eigi eftir að
verða fleiri. „Hún gjörbylti mat-
vælavinnslu þegar hún kom fyrst á
markað árið 2006 með mun ná-
kvæmari og áreiðanlegri nið-
urstöður en voru mögulegar með
handskoðun. Síðan þá hefur Sen-
sorX verið markaðsleiðtogi í beina-
leit og hjálpað matvælaframleið-
endum um allan heim að auka virði
vöru sinnar og draga úr kvörtunum
vegna beina,“ segir Stella Björg
Kristinsdóttir, markaðsstjóri hjá
Marel, um undratæki þetta.
Háþróuð tækni og hugbúnaður
sem SensorX byggist á býður upp á
mun nákvæmari beinaleit en önnur
sjálfvirk beinleitarkerfi. Eitt leiðir
af öðru, en velgengni SensorX í
kjúklingaiðnaði hefur leitt til nýrr-
ar vöruþróunar í öðrum iðnaði. Til
dæmis í kjötiðnaði þar sem vélin
finnur ekki aðeins bein og aðskota-
hluti heldur mælir einnig nákvæma
fituprósentu. Stella Björg segir
SensorX eina af allra vinsælustu
vörum Marels. Meðan haldið væri
áfram að þróa tæknina og nýjar
lausnir í beinaleit væri fyrirtækið
einnig að fara inn á nýja markaði
til dæmis í kjöti og nýta sömu
kjarnatækni til að finna bein og
greina fituprósentu.
Vatnsskurður eykur
gæði og nýtingu
Önnur nýleg lausn úr vöruþróun
Marels sem verið hefur að breiðast
út um jarðir, innan lands sem utan,
er FleXicut-vatnsskurðarvélin.
Hún er sögð auka gæði og nýtingu
í vinnsluferlinu sem muni skila
mikilvægri aukningu í verðmætum.
Vatnsskurðurinn hafi það umfram
hefðbundinn hnífsskurð að hann
bjóði upp á mun meiri sveigjanleika
og nákvæmni. Með tilkomu þess-
arar tækni muni ákvarðanataka um
beingarðsskurð og niðurhlutun
flaksins færast frá starfsfólki á
snyrtilínum yfir í FleXicut. Það
leiði til betri nýtingar og meðhöndl-
unar hráefnis.
Stella Björg segir FleXicut fyrsta
skrefið í nýrri kynslóð vinnslulína
fyrir hvítfisk. Með tilkomu lausn-
arinnar hafi mannfrekt ferli við
beingarðsskurð verið vélvætt, sem
umbylti vinnslunni. Hún sameini tvö
mikilvæg skref í vinnsluferlinu; að
finna beingarðinn með háþróaðri
röntgentækni og fjarlægja hann af
mikilli nákvæmni. Hún skeri bein-
garð úr ferskum þorsk-, ýsu- og
ufsaflökum, hluti þau niður í bita
eftir ákveðnum skurðarmynstrum
með mikilli nákvæmni með eða án
roðs. Frátaka beingarðs sé sjálfvirk
og hið sama er að segja um flokkun
á afurðum eftir skurðinn þar sem
hægt sé að skilja sporð, hnakka og
þunnildi hvað frá öðru og senda inn
á til dæmis frysti eða pökk-
unarflokkara. Færibönd flytja svo
afurðarhlutana á pökkunarstöðvar
með sem minnstu hnjaski á leiðinni
í lokapakkninguna.
Laxaflökunarvél vekur athygli
Fisk Seafood á Sauðárkróki var
fyrst fyrirtækja til að prufa frum-
gerð af FleXicut-skurðarvél fyrir
sjávarútvegssýninguna í Brussel
2014. Voru þær prófanir mikilvægar
fyrir þróun á vélinni fyrir Marel.
Vorið 2015 gekk Fisk Seafood svo
frá kaupum á FleXicut-vatnsskurð-
arvél ásamt sjálfvirkri afurðadreif-
ingu og nýjustu gerð ferskfiskflokk-
ara.
Því til viðbótar eru komnar upp
tvær vélar hjá Vísi í Grindavík, ein
hjá Jakobi Valgeiri á Bolungarvík
og loks ein hjá Norway Seafood í
Danmörku.
Bylting í fiskiðnaði
Alþjóðlega sjávarútvegssýningin í
Boston stendur nú yfir og segir
Stella Björg að bás Marels hafi ver-
ið vel sóttur. Þar hefur einna mesta
athygli vakið ný flökunarvél fyrir
lax. „Þótt við séum ekki með hana
hér á básnum erum við líka að
kynna FleXicut hér. Virðast menn
mjög spenntir fyrir henni, sér-
staklega fyrirtæki í Alaska þar sem
sjávarútvegur er umfangsmikill.
Vélin verður kynnt og sýnd í notkun
í starfsstöð Marels í Seattle á vest-
urströnd Bandaríkjanna í maí. Frá
og með því hefjum við sölu og sókn
með FleXicut inn á Norður-
Ameríkumarkað,“ segir Stella.
RevoPortioner er skurðar- og mót-
unarvél sem hefur notið mikillar
velgengni undanfarin ár í kjúklinga-
iðnaði. Þessi lausn hefur nýverið
ratað inn í fiskiðnað á Íslandi.
Fyrsta skrefið í þá átt steig HB
Grandi í samstarfi við Marel. „HB
Grandi bar fljótt kennsl á þau tæki-
færi sem felast í notkun RevoPor-
tioner í fiskiðnaði. Með RevoPortio-
ner getur HB Grandi aukið
verðmæti framleiðslu sinnar með
því að breyta afskurði í dýrmæta
gæðavöru,“ segir á heimasíðu Mar-
els. Með vélinni er hægt að útbúa
lokaafurð úr afskurði og marningi
sem er ávallt eins í laginu, jafnstór
og jafnþung, m.a. fiskfingur, fisk-
borgara, fisknagga og fiskbuff.
„Reynsla okkar af RevoPortioner er
mjög góð og hefur í för með sér
Í fararbroddi á heimsvísu
Marel er alþjóðlegt fyrirtæki og hjá því starfa yfir 4.600 manns um allan heim. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í
fleiri en 30 löndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila. Með stöðuga nýsköpun að leiðarljósi hefur Marel umbreyst úr
sprotafyrirtæki í heimsleiðtoga á sínu sviði. Framsæknar tækja- og hugbúnaðarlausnir frá Marel gera framleiðendum kleift að
hámarka nýtingu, afköst og arðsemi vinnslunnar.
Ljósmynd Marel/Birt með leyfi
Áhugasamir Gestir á bás Marels í Boston í vikunni sýndu nýju flökunarvélinni fyrir lax mikla athygli.
Hátækni Tæknilausnir frá Marel er mjög víða að finna í kjötvinnslu. Á ferð um þennan rekka eru kjúklingarnir m.a. vigtaðir.