Morgunblaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666 Loftkæling og varmadælur Kæli- og frystiklefar í öllum stærðum Kæli- og frystibúnaður í allar gerðir sendi- og flutningabíla Iðnaðareiningar í miklu úrvali Á þessum markaði má finna dæmi um hluti sem eru af- skaplega vel gerðir. Að mörgu leyti hafa íslensk fyrirtæki unnið frábært starf, sér- staklega gagnvart dreifingaraðilum, söluaðilum og verslanakeðjum, en það sem hefur gleymst í þessari jöfnu er að tala beint til neytenda.“ Þetta segir Viðar Garðarsson markaðsráðgjafi og bætir við að það hái markaðsstarfi með íslenskar sjávarafurðir að fyrirtækin í grein- inni hafa ekki samræmt vinnu sína til að byggja upp öflugt uppruna- vörumerki fyrir íslenska fram- leiðslu. „Þegar ég labba inn í stórmarkað í Þýskalandi, t.d. Aldi, þá eru ekki miklar líkur á að ég finni þorsk sem er sérmerktur Íslandi, og það þrátt fyrir að stór hluti af þeim þorski sem er í boði sé íslenskur. Erlendir aðilar hafa keypt vöruna af íslenskum selj- endum, unnið hana áfram og vöru- merkt og allar líkur á að pakkningin sé einfaldlega merkt stórmark- aðinum; er orðinn „Aldi-fiskur“ frek- ar en „gæðafiskur frá Íslandi“.“ Milliliðurinn með valdið Bendir Viðar á að útflytjendur standi betur að vígi gagnvart erlend- um milliliðum ef neytendur þekkja íslenskar sjávarafurðir úti í búð og sækjast eftir vörunni. „Eins og mál- um er háttað í dag getur millilið- urinn í raun og veru sett hvaða fisk sem er í staðinn fyrir fisk frá Ís- landi, án þess að neytandinn verði þess var. Þetta er það sem kallað er staðkvæmdarvara í markaðs- fræðunum, og er vond staða fyrir fiskútflytjendur að vera í þegar þarf að takast á um verðið á fiskinum.“ Vegna smæðarinnar væri ill- mögulegt fyrir íslensk útgerðarfyr- irtæki að byggja upp öflugt al- þjóðlegt vörumerki í kringum sína eigin framleiðslu, en öllu gerlegra fyrir greinina í heild sinni að þróa og markaðssetja upprunavörumerki fyrir íslenskan fisk, að sögn Viðars. „Neytandinn veltir fyrir sér ýmsum eiginleikum vörunnar þegar hann er að ákvarða kaup. Hann virðir fyrir sér pakkingar, rifjar upp það kynn- ingarefni sem hann hefur séð og tek- ur mark á því orðspori sem af vör- unni fer o.s.frv. Eftir að heim er komið og neytandinn hefur smakkað sjálfur bætast við í valsettið fyrir næsta skipti eiginleikar eins og bragð, áferð og lykt. Þessu til við- bótar koma svo þeir eiginleikar sem neytandinn tengir við vöruna og má koma til skila í gegnum uppruna- vörumerkið: að fiskurinn sé úr villt- um stofni, komi úr hreinu og köldu hafi, hafi verið veiddur á sjálfbæran hátt og verkaður með aðferðum sem skila mestu gæðum.“ Segir Viðar að sterkt uppruna- „30 milljarðar á floti þarna úti“ Með því að byggja upp sterkt upprunavöru- merki mætti reikna með að fá mun hærra verð fyrir íslenskt sjávarfang á erlendum mörkuðum Morgunblaðið/Eggert Ávinningur Viðar segir markaðsstarf sjávarútvegsins í Noregi sýna að með réttum vinnubrögðum og nægilegu fjármagni megi auka mjög útflutningsvirði sjávarafurða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.