Morgunblaðið - 12.03.2016, Page 16

Morgunblaðið - 12.03.2016, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2016 Freyr Bjarnason freyr@mbl.is Már Guðmundsson seðlabanka- stjóri segir að það hafi verið mikil vonbrigði að fjárfestingafélagið Ursus, sem er í eigu Heiðars Guð- jónssonar, hafi verið til skoðunar hjá gjaldeyriseftirliti Seðlabanka Íslands á sama tíma og það ætlaði að kaupa stóran hluta í trygginga- félaginu Sjóvá árið 2010. Á þessum tíma átti Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ) 73,3% hlutafjár í Sjóvá. Aðalmeðferð í máli Heiðars gegn Seðlabanka Íslands og ESÍ þar sem hann krefst um tveggja millj- arða í skaðabætur auk vaxta, hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær- morgun. Már var á meðal þeirra sem voru kvaddir fyrir dóm. Upplýstu um tilkynninguna Spurður hvort hann hefði haldið að menn væru komnir langt með að landa samningi sagði Már: „Ég ekki bara hélt það heldur vonaði það. Það voru mikil vonbrigði að þetta skyldi koma upp.“ „Við upplýstum aðilana um þetta, að við höfðum fengið þessa tilkynningu. Þess vegna gætum við ekki farið áfram með málið í bili fyrr en við gætum fengið botn í þetta.“ Úr varð að gjaldeyriseftirlitið kærði Ursus vegna brota á gjald- eyrishöftum og í framhaldinu varð ekkert af viðskiptunum með Sjóvá. Stóðu ekki við samkomulagið Heiðar Guðjónsson byggir máls- höfðun sína á því að samkomulag hafi tekist 10. júlí 2010 milli hans og ESÍ um að Ursus myndi kaupa tiltekinn fjölda hluta í félaginu Sjóvá. Þegar öllum fyrirvörum í samkomulagi aðila hafi verið full- nægt og þeir náð samkomulagi um nánari útfærslu viðskiptanna, í lok september 2010, hafi ESÍ og Seðla- banki Íslands sammælst um að standa ekki við samkomulagið. Seðlabanki Íslands heldur því hins vegar fram að endanlegt sam- komulag hafi ekki náðst á milli að- ila, þ.e. að enginn bindandi samn- ingur hafi verið gerður, þegar ákveðið var að gera hlé á viðskipt- unum vegna rannsóknar gjaldeyr- iseftirlitsins á Ursusi. Dæmdi mig úr leik Heiðar bar einnig vitni í gær og sagði það aldrei hafa hvarflað að sér að hann væri hugsanlega að brjóta reglur um gjaldeyrismál og taldi umkvartanir Seðlabanka Ís- lands vegna málsins vera ofar sín- um skilningi. „Ég taldi að þetta væri fullkomlega eðlilegt og í sam- ræmi við lög. Ég skildi ekkert að menn væru að hnýta í þetta,“ sagði Heiðar og bætti við að Seðlabank- inn hefði talið að ef klára ætti við- skiptin þyrfti að ýta honum út úr kaupendahópnum. Hinn 26. nóvember 2010 ákvað Seðlabankinn að vísa málinu til lög- reglu. Sérstakur saksóknari ákvað 27. febrúar 2012 að rannsókn máls- ins skyldi hætt. Spurður út í áhrifin sem málið hafði á þátttöku hans í atvinnulíf- inu sagði Heiðar: „Ég hafði unnið við fjárfestingar í 17 ár og gat ekki unnið við það. Bankar krefjast þess að maður upplýsi ef maður er til rannsóknar einhvers staðar. Þetta fráleita dæmi dæmdi mig úr leik um langt skeið.“ Stórfelld vanræksla „Auðvitað var þetta stórfelld vanræksla. Það er ótrúlegt að sér- fræðistjórnvald leggi til grundvall- ar rangar lögskýringar í málinu sem er sent til lögreglu. Það má heita þannig að þetta sé ásetnings- brot. Rangur skilningur stjórn- valds á lögum hlýtur að vera meiri- háttar og stórfelld vanræksla,“ sagði Reimar Pétursson, lögmaður Ursus, í héraðsdómi í gær en atriði sem lögmenn SÍ hafi borið fyrir sig, sem eigi að koma í veg fyrir bóta- skyldu, standist ekki. Már bar um mikil von- brigði í héraðsdómi  Heiðar segir málið hafa dæmt sig úr leik um langt skeið Morgunblaðið/Eggert Dómur Aðalmeðferð í máli Heiðars Guðjónssonar gegn Seðlabanka Íslands og ESÍ hófst í héraðsdómi í gær. Már Guðmundsson og Heiðar báru vitni. Stjórn Orkubús Vestfjarða ohf. hef- ur ákveðið að ráða Elías Jónatans- son, bæjarstjóra í Bolungarvík, í starf orkubússtjóra frá 1. júlí næst- komandi. „Það eru spennandi tímar framundan í raforkumálum á Vestfjörðum og mér fannst þetta starf því mjög áhugavert,“ segir Elías og að hann líti á fyrirtækið sem mikilvægan lið í því að efla Vestfirði og laða að fyrirtæki sem geti nýtt raforku í auknum mæli. Starf orkubússtjóra var auglýst laust til umsóknar í febrúar og bár- ust alls 25 umsóknir um starfið. Kristján Haraldsson hefur gegnt starfi orkubússtjóra fram til þessa. Kominn tími á eitthvað nýtt Elías Jónatansson lauk prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1983 og M.Sc. prófi í iðnaðar- verkfræði frá Oregon State Univers- ity árið 1986. Elías hefur um dagana meðal annars sinnt stjórnunarstörf- um í ýmsum framleiðslufyrirtækjum svo sem í sjávarútvegi. Frá árinu 2008 hefur hann verið bæjarstjóri í Bolungarvík. Ennfrem- ur hefur hann setið í stjórnum lífeyr- issjóðs og fyrirtækja. „Það var kominn tími á að breyta til og fara í eitthvað nýtt – takast á við nýjar áskoranir,“ segir Elías, en starf orkubússtjóra verði töluvert ólíkt bæjarstjórastarfinu. „Sem bæj- arstjóri er maður að halda mörgum boltum á lofti í einu með mjög ólíkum viðfangsefnum. Í nýju starfi mun ég hins vegar einbeita mér að færri og stærri verkefnum.“ Ekki er enn ljóst hver tekur við af Elíasi sem bæjarstjóri Bolungarvík- ur þegar hann lætur af störfum í byrjun júlí. „Það er í höndum bæjar- fulltrúa að ákveða og ég kem ekki til með að verða leiðandi í þeirri vinnu,“ segir hann. Starfsemi Orkubúsins snýr að virkjun vatnsafls og jarðhita og dreifingu og sölu raforku. Fyrirtæk- ið rekur orkuver og raforkustöðvar. Starfsmenn eru um 70 og þjónusta þeir dreifikerfi fyrir Vestfirðina og sölukerfi fyrir landið allt. Höfuð- stöðvarnar eru á Ísafirði og útibú á Hólmavík og Patreksfirði. Nýr orkubússtjóri á Vestfjörðum  Elías Jónatansson hættir sem bæjarstjóri Elías Jónatansson Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Í megintillögum starfshóps sem unn- ið hefur að mótun framtíðarstefnu í fæðingarorlofsmálum og skilað var í gær, er lagt er til að sameiginlegt or- lof beggja for- eldra verði lengt úr níu mánuðum í eitt ár. Þó þannig að hvort foreldri um sig fái fimm mánaða orlof en tveimur mánuð- um geta foreldrar skipt eftir henti- semi. Annað for- eldrið á því að há- marki rétt á sjö mánaða fæðingarorlofi og greiðslum úr fæðingarorlofssjóði. Þá er lagt til að foreldrar fái fyrstu 300 þúsund kr. af viðmiðunartekjum sínum óskertar og 80% af viðmiðunartekjum sínum umfram 300 þúsund kr. en þó verða greiðslurnar að hámarki 600 þúsund kr. Gert er ráð fyrir að kostnaður Fæðingarorlofssjóðs verði 10,7 millj- arðar króna árið 2017 vegna þessara breytinga og um 12,2 milljarðar kr. á ári eftir það. Miðað við óbreytt fyr- irkomulag er áætlað að útgjöld sjóðsins verði 8,8 milljarðar kr. á þessu ári. Lenging í áföngum til 2021 Áætlað er að lenging fæðingaror- lofsins komi til framkvæmda í áföng- um frá 1. janúar 2019 til 1. janúar 2021. Áætlað er að kostnaðarauki Fæðingarorlofssjóðs vegna lenging- ar fæðingarorlofsins geti numið á bilinu 4,45 – 5,15 milljarða króna. Hámarksgreiðslur úr Fæðingar- orlofssjóði hafa frá 1. janúar 2014 verið 370.000 kr. þannig að foreldrar sem hafa allt að 462.500 kr. í heild- arlaun á mánuði að meðaltali á við- miðunartímabili geta átt rétt á að fá 80% af þeirri fjárhæð greidd frá Fæðingarorlofssjóði meðan á fæð- ingarorlofi þeirra stendur eins og sakir standa. Farin verði millileið Eygló Harðardóttir, húsnæðis- og félagsmálaráðherra telur tillögurnar góðan leiðarvísi til framtíðar. „Það er gott að fá það á hreint hver næstu skref verða. Það er ljóst að lögð er til hækkun á hámarksþakinu. Ekki er minna mikilvægt að gera þær breyt- ingar að tekjur undir 300 þúsundum skerðist ekki,“ segir Eygló. Að sögn hennar verður nú farið yfir tillögurn- ar og vinna hafin að frumvarpsgerð. „Kanna þarf hvernig þetta fellur inn í fjárlagarammann. En svo er einnig unnið að breytingum á almanna- tryggingarkerfinu auk þess sem við í velferðarráðuneytinu sætum kröfu um stóraukin framlög í heilbrigðis- kerfið. Til að mæta þessu öllu þarf að fara einhverja millileið,“ segir Eygló. Spurð hvort líkur séu á því að frumvarpið verði lagt fyrir á núver- andi þingi þá telur hún slíkt ólíklegt. SA á móti lengingu Ekki var samstaða um allar tillög- urnar í nefndinni. Þannig leggjast Samtök atvinnulífsins gegn því að fæðingarorlofið verði lengt, vegna aukins kostnaðar og lengri fjarveru foreldra frá störfum. Þá leggja sam- tökin áherslu á að fyrirkomilag fjár- mögnunar verði að liggja fyrir. Frekari hækkun tryggingargjalda komi ekki til álita af hálfu SA. Í starfshópnum áttu sæti fulltrúar frá SA, ASÍ, BHM, BSRB, fjármála- og efnahagsráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og Sam- band íslenskra sveitafélaga. Fyrstu 300 þúsundin verði óskert  Sameiginlegt fæðingarorlof verði ár Eygló Harðardóttir Síðumúla 11 - Sími 568-6899 - Opið virka daga: 8 til 18; Laugardaga 10 til 14 - www.vfs.is 21.990 Verð Hjólatjakkur 3T Stöðugur hjólatjakkur sem lyftir 52cm, lægsta staða 14,5cm. Burðarþol 3 tonn. TJ T83001 Þvottakar 20 Gallon Þvottakar sem hentar vel fyrir þrif á varahlutum og verkfærum. TJ TRG4001-20 Til í fleiri stærðum Sandblásturskassi Flottur sandblásturskassi sem hentar vel á verkstæðið. Vinnupláss: 60x84x63cm. TJ TRG4222 Til í fleiri stærðum 22.990 Verð 69.900 Verð Kapaltromla 25m Lengd 25m, leiðir 3G1,5 H05VV-F BR 1099150027 6.990 Verð Digital rennimál 150mm, 0,02mm skekkja TO YT7201 4.990 Verð Vélagálgi 1 Tonn Hámarkshæð 2000mm, lægstahæð 25mm. Burður 1 Tonn TJ T31002 Til í fleiri stærðum 49.900 Verð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.