Morgunblaðið - 12.03.2016, Blaðsíða 46
46 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2016
Dagný Her-mannsdóttirrekur snyrti-
stofuna Punt á Ísafirði
ásamt vinkonu sinni,
Magdalenu Margréti
Sigurðardóttur. Þær
opnuðu stofuna fyrir
ári og hún fer vel af
stað.
„Bæjarbúar hafa
tekið mjög vel í þetta.
Við vinkonurnar flutt-
um báðar heim aftur
vestur eftir að hafa
verið í Reykjavík í
námi og ákváðum að
opna stofuna. Ég sjálf
klára sveinsprófið í
sumar hjá Magdalenu
sem er meistarinn
minn.“
Dagný tók einnig
eitt ár í Söngskólanum
í Reykjavík, en hún
syngur mikið og var í
Tónlistarskólanum á
Ísafirði. „Mér finnst
alltaf gaman að
skemmta fólki og hef
tekið að mér ýmis
verkefni, með hljómsveitum og trúbadorum. Það er mikið tónlist-
arlíf á Ísafirði, en ég væri til í að syngja enn meira en ég geri
núna.
Svo fer ég stundum á gönguskíði, en ég er gömul gönguskíða-
kempa. Keppti mikið í gamla daga og er að koma mér í gang aftur
með því að fara upp á Dal, eins og við köllum það, en Seljalands-
dalur er gönguskíðaparadísin okkar. Ég keppti oft á Andrésar
andar leikunum, náði aldrei að vinna en lenti oft í öðru sæti, það
var mottóið að komast á verðlaunapall.“
Dagný verður að vinna í dag. „Það er árshátíð á sjúkrahúsinu í
kvöld og ég ætla því að farða konurnar en svo ætla ég að halda
heljarinnar partí í kvöld. Þegar maður á afmæli á laugardegi þá
verður maður að halda partí.“
Eiginmaður Dagnýjar er Jónþór Eiríksson sjómaður og er með
eigin trillu, Veigu ÍS, sem hann gerir út frá Súðavík. Synir þeirra
eru Emil Leó 7 ára og Eiríkur Bjarkar 2 ára.
Fór heim vestur og
stofnaði fyrirtæki
Dagný Hermannsdóttir er þrítug í dag
Afmælisbarnið Dagný Hermannsdóttir.
S
igurður fæddist í Keflavík
12.3. 1946 og ólst þar upp.
Hann var auk þess mörg
sumur í sveit í Hvammi í
Dýrafirði hjá frændfólki
sínu.
Sigurður var í Barnaskóla Kefla-
víkur og Gagnfræðaskóla Keflavíkur,
stundaði nám við Samvinnuskólann
að Bifröst í tvö ár og var í 18 mánaða
starfsnámi á vegum skólans.
Sigurður var tvö ár bókari hjá
Kaupfélagi Skaftfellinga í Vík, starf-
aði síðan hjá Skipulagsdeild SÍS í
Reykjavík, stundaði bók- og starfs-
nám í Svíþjóð á vegum samvinnu-
hreyfingarinnar með áherslu á
skipulag og rekstur smásöluversl-
ana.
Sigurður var forstöðumaður versl-
unarráðgjafar SÍS 1972-75, sérfræð-
ingur í smásöluverslun hjá dönsku
þróunarstofnuninni Danida í Dar es
Salaam í Tansaníu 1975-77, í Nairóbí
í Kenía 1977-78 og í Eldoret og Nyeri
í Kenía 1980-83. Hann var kaup-
félagsstjóri Kaupfélags Ísfirðinga
1978-80, forstöðumaður markaðsráðs
samvinnufélaganna 1983-86, mark-
aðsstjóri verslunardeildar SÍS 1986-
89, markaðsstjóri Samkorts 1990-91
og markaðsfulltrúi Eurocard á Ís-
landi 1991-95.
Sigurður var framkvæmdastjóri
Sigurður Jónsson framkvæmdastjóri – 70 ára
Sumarrómantík Sigurður og Sigurlína láta fara vel um sig í sumarfríi á Borgundarhólmi.
Sérfræðingur á sviði
verslunar og þjónustu
Suður um höfin Skútuskipstjórinn Sigurður á glæsiskútu í suðrænni höfn.
Auður Svala Knudsen verður áttræð 13. mars. Hún
er fædd og uppalin í Reykjavík og gekk í Melaskóla í
Vesturbænum. Hún starfaði um tíma við þjónustu-
íbúðir á Dalbraut í Reykjavík, var í hestamennsku og
er vel að sér í ættfræði. Eiginmaður hennar var Jón
Friðrik Oddsson, d. 20.4. 1993, bifvélavirki frá Akra-
nesi og eignuðust þau saman fimm börn. Alls eru af-
komendur Svölu og Jóns nú 41.
Ástvinir og ættingjar óska Svölu hamingjuríks stór-
afmælisdags.
Árnað heilla
80 ára
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
KREM SEM LÍKIST
HÚÐINNI FULLKOMLEGA
Immortelle Precious Cream er
feitt og mjúkt rakakrem sem
sýnilega lagfærir djúpar hrukkur
og gerir húðinni kleift að
endurheimta sinn fyrri stinnleika.
Formúlan hefur þríþætta virkni
og inniheldur hátt hlutfall af
virkum sameindum sem hjálpa
við að slétta húðina og gefa
henni langvarandi vernd gegn
öldrunareinkennum.
Kringlan 4-12 | s. 577-7040
L’Occitane en Provence - Ísland