Morgunblaðið - 12.03.2016, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 12.03.2016, Blaðsíða 29
FRÉTTIR 29Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2016 Borgarstjóri London, Boris John- son, sagði á fundi í gær að Bretland ætti að semja um fríverslunarsamn- ing við Evrópusambandið á hlið- stæðum nótum og Kanada hefur gert eftir að Bretland segði skilið við sambandið. Það myndi fela það með- al annars í sér að sögn Johnsons að Bretar þyrftu ekkert að greiða fjár- framlög í sjóði Evrópusambandsins og yrðu ekki bundnir af reglu sam- bandsins um frjálst flæði fólks. Þess í stað yrði einungis samið um við- skipti og tolla. Borgarstjórinn hvatti Breta í ræðu sinni á fundinum til þess að „greiða atkvæði með frelsinu“ í þjóð- aratkvæðinu um veru Bretlands í Evrópusambandinu sem fram fer 23. júní. Sagði hann að stuðningsmenn þess að Bretar yrðu áfram í sam- bandinu teldu þjóðina skorta hug- rekki til þess að brjótast út úr hlekkjum þess. Sagðist hann sann- færður um að ef Bretar væru utan Evrópusambandsins myndu þeir hafna inngöngu í það. Hentar ekki hagsmunum Breta Chuka Umunna, þingmaður breska Verkamannaflokksins, gagn- rýndi ræðu Johnsons í breskum fjöl- miðlum í gær og sagði að fríversl- unarsamningur eins og Kanada hefði gert við Evrópusambandið myndi ekki henta breskum hags- munum. Vísaði hann meðal annars til þess að samningurinn tæki ekki á þjónustuviðskiptum sem væru Bret- um mjög mikilvæg. hjortur@mbl.is AFP Bretland Boris Johnson, borgarstjóri London, vill úr Evrópusambandinu. Vill kanadíska fríverslun við ESB  Borgarstjóri London hvetur Breta til að „greiða atkvæði með frelsinu“ Karlmaður í hjólastól rændi banka í miðborg Zagreb, höfuð- borgar Króatíu, fyrir helgi. Skömmu áður höfðu vegfar- endur hjálpað honum að kom- ast inn í húsnæði útbús austurríska bankans Erste Bank. Maðurinn, sem er 35 ára gamall, tilkynnti starfsfólki bankans að hann væri með sprengju, sam- kvæmt frétt AFP, og fékk í kjölfar- ið afhenta fjármuni sem námu tæp- lega einni milljón króna. Hann yfirgaf síðan bankann og fór að næstu leigubílastöð. Leigubílstjór- inn, sem vissi ekki um ránið, hjálp- aði manninum inn í bílinn, setti hjólastólinn í farangursrýmið og ók honum síðan til bæjarins Bjelova í norðurhluta landsins þar sem mað- urinn var tekinn höndum. KRÓATÍA Maður í hjólastól rændi banka Öldungadeild þings Kaliforníu- ríkis í Bandaríkj- unum samþykkti fyrir helgi lög um tóbaksvarnir þar sem hámarksald- urinn til þess að versla sígarettur og aðrar tóbaks- vörur var hækkaður úr 18 árum í 21 ár. Lögin fela einnig í sér að raf- rettur verða skilgreindar sem tóbak og notkun þeirra bönnuð á veitinga- húsum og á öðrum opinberum stöð- um þar sem þegar er óheimilt að reykja venjulegar sígarettur. Lögin fara í framhaldinu til rík- isstjóra Kaliforníu, Jerry Brown, til undirritunar. Áður hafði Havaí-ríki hækkað hámarksaldurinn í 21 ár. BANDARÍKIN Þurfa að vera 21 árs til að kaupa tóbak Sérstök umræða mun fara fram í finnska þinginu á næstu vikum um það hvort Finnar ættu að láta evr- una lönd og leið í kjölfar þess að safnað var meira en 50 þúsund undirskriftum því til stuðnings að slík umræða færi fram. Samkvæmt finnskum lögum ber þinginu að taka mál til umræðu ef þeim fjölda undirskrifta er náð. Fram kemur á fréttavefnum Eu- observer að þó ólíklegt sé að þings- umræðan verði til þess að Finnar segi skilið við evrusvæðið sé undir- skriftasöfnunin til marks um mikla óánægju á meðal Finna með ástand efnahagsmála í Finnlandi. FINNLAND Rætt um evruna á finnska þinginu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.