Morgunblaðið - 12.03.2016, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2016
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Veggjakrot er vaxandi vandamál í
Reykjavík á ný, en stefnt er að
hreinsun með vorinu. „Þetta er al-
þjóðlegt vandamál og við glímum
við það eins og aðrar höfuðborg-
ir,“ segir Guðmundur Vignir Ósk-
arsson, verkefnastjóri á umhverf-
is- og skipulags-
sviði Reykja-
víkur.
Guðmundur
bendir á að hjá
sumum sé þetta
einbeittur brota-
vilji en í flestum
tilfellum sé um
vanhugsað fikt
að ræða hjá
kroturum. Þeir
séu að reyna sig
við krotið á veggjum og finna sig í
því að merkja sig með þeim hætti.
Krotið sé hins vegar í óþökk yf-
irvalda og borgara og krafa íbúa
sé að því sé haldið í lágmarki.
Árangursríkt átak
Guðmundur rifjar upp að farið
hafi verið í markvisst og mikið
átak í borginni 2008. Vinnubrögð
hafi verið samræmd og komið á
samstarfi innan borgarinnar og
við lögreglu og fleiri. „Þegar við
hófum átakið voru 42.000 fermetr-
ar krotaðir frá sjónlínu götu og
þegar við mældum aftur 2012 var
krot frá sjónlínu götu komið niður
í 16.000 fermetra,“ segir hann.
„Það var því greinilega verulegur
árangur af þessu átaki.“
Í fyrrnefndum mælingum kom
fram að um 35% krotsins voru í
miðborginni. Guðmundur segir að
þótt dregið hafi verulega úr fjár-
veitingum til verkefnisins hafi svo-
kallað miðborgarverkefni verið í
gangi í samvinnu við íbúa og aðra
sem reka og eiga húsnæði á svæð-
inu. Reykjavíkurborg hreinsi
reglulega krot af eigin eignum og
styðji aðra til sjálfsbjargar, meðal
annars með faglegum stuðningi.
Eftir veturinn hafi hins vegar
safnast upp krot, því veðrið geri
það erfiðara en ella að eiga við að
ná því niður. „Auk þess virðist
hafa orðið aftur aukning á kroti
samfara samdrætti í fjárveiting-
um,“ segir hann.
Gera verður greinarmun á
veggjakroti og vegglist. Guðmund-
ur leggur áherslu á að krotinu
fylgi leiðindaásýnd en skilningur
væri á verkum vegglistarmanna,
samanber samstarf um Hljóma-
lindarreitinn og fjölda veggmynda
á húsgöflum sem prýði miðborg-
ina. Glíman við krotið sé stöðug og
ekki sjái fyrir endann á henni, „en
yfirleitt er ekki krotað á vegg-
myndir.“
Að sögn Guðmundar er verið að
stilla saman strengi og undirbúa
átak í hreinsun á kroti að loknum
vetri. „Það er stórt verkefni fram-
undan,“ segir hann.
Morgunblaðið/Stefán E.
Veggjakrot Myndirnar eru frá kroti á eignum við Hverfisgötu.
Veggjakrot vaxandi
vandi í Reykjavík
Dregið hefur verið úr fjárveitingum til hreinsunarátaks
Guðmundur Vignir
Óskarsson
Umhverfisvæn áhersla !
lífrænt trjákurl í kattaklósett
...........................................
náttúruleg lyktar- og bak-
teríueyðing (stóri rauði
miðinn)
klumpast vel og er 100%
niðurbrjótanlegt (rauði miðinn
í miðjunni)
mhverfisvæn áhersla!
LÍFRÆNT TRJÁKURL í kattaklósett
Náttúruleg
lyktar- og
bakteríueyð
ing
Klumpast ve
l og er 100%
niðurbrjótan
legt, má los
a í salerni
Mjög hagkv
æmt
botnlag má
vera 4-6 vik
ur í kattakló
settinu
– fyrir dýrin þín Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is