Morgunblaðið - 12.03.2016, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2016
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta er stórt og krefjandi verkefni
og í leiðinni skemmtilegt. Ég hugsa
að það muni líða einhver tími þar til
farið verður aftur í eins stórt
verkefni,“ segir Ingibjörg Jónsdótt-
ir, einn aðstandenda söngleiksins
Súperstar sem sýndur verður á
Hvammstanga um páskana. Upp-
setning verksins er mikið átak fyrir
fámenn leikfélög í Miðfirði og marg-
ir vanir söngmenn eru að stíga sín
fyrstu dansspor á sviði.
Leikdeild Ungmennafélagsins
Grettis og Leikflokkurinn á
Hvammstanga standa saman að
verkefninu. Um 30 manna hópur
kemur að því, þar af 13 manna kór.
„Ég hef séð um minni leikrit á
Laugarbakka og hlustaði oft á Jesus
Christ Superstar þegar ég var yngri.
Ég vissi vel að við hefðum fólk til að
setja upp sýninguna. Ég bar hug-
myndina undir Sigvalda Ívar,
trommuleikara sýningarinnar. Hon-
um leist vel á og við ákváðum að láta
á þetta reyna. Það varð strax mikill
áhugi,“ segir Ingibjörg um aðdrag-
anda þess að ráðist er í þetta um-
fangsmikla og metnaðarfulla verk-
efni.
Fær fólk til að gera meira
Allir sem taka þátt eru heima-
menn. Leikfélögin voru svo heppin
að Sigurður Líndal frá Lækjamóti í
Víðidal er nýfluttur aftur í sitt
heimahérað eftir að hafa verið bú-
settur í London í tuttugu ár og leik-
stýrt þar fjölda leikrita. Sigurður er
nú framkvæmdastjóri Selaseturs Ís-
lands á Hvammstanga. Hann tók að
sér að leikstýra hópnum.
„Sigurður kemur inn með mikla
reynslu og setur þetta upp á flottan
hátt. Hann fær fólk til að gera miklu
meira en það reiknaði með þegar
það féllst á að taka þátt. Þau sem
ætluðu aðeins að syngja í kór eru á
fullu allan tímann í dansi og leik.
Kórinn er búinn að leggja mikla
vinnu í þetta. Mörg þeirra hafa ekki
gert það áður, að minnsta kosti ekki
á sama tíma og þau eru að syngja,“
segir Ingibjörg.
Mikið tónlistarlíf er í Húnaþingi
vestra. Þar starfar meðal annars
karlakórinn Lóuþrælar og taka
nokkrir félagar úr honum þátt í sýn-
ingunni og stjórnandi kórsins, Daní-
el Geir Sigurðsson er hljómsveitar-
stjóri.
Breytt í „alvöru“ leikhús
Leikhúshefð er minni en áður var
en Ingibjörg segir þó að leikdeild
Ungmennafélagsins Grettis hafi ver-
ið endurvakin fyrir tíu árum og hafi
sýnt leikrit á tveggja til þriggja ára
fresti í félagsheimilinu á Laugar-
bakka. Leikflokkurinn á Hvamms-
tanga hafi einnig sýnt leikrit á nokk-
urra ára fresti.
Ákveðið var að setja söngleikinn
upp í félagsheimilinu á Hvamms-
tanga. Því verður breytt í „alvöru“
leikhús með því að hækka áhorf-
endabekkina upp.
Frumsýnt verður á miðvikudag-
inn fyrir páska, 23. mars, og þrjár
sýningar til viðbótar verða um
páskana.
Kórinn leikur og dansar
Leikfélögin í Miðfirði sýna söngleikinn Súperstar á Hvammstanga um
páskana Heimafólk í öllum hlutverkum Félagsheimili breytt í leikhús
Ljósmynd/Feykir
Súperstar Æfingar standa nú sem hæst og leikmyndin að komast upp.
„Baráttunni er ekki lokið þótt trygg-
ingafélögin hafi lagt á flótta,“ segir í
yfirlýsingu Runólfs Ólafssonar, fram-
kvæmdastjóra FÍB, í gær í kjölfar
þeirrar ákvörðun-
ar Sjóvár og VÍS
að lækka arð-
greiðslutillögur
sínar. „VÍS og
Sjóvá hafa til-
kynnt að fyrri til-
lögur um græðg-
islegar arð-
greiðslur verði
dregnar til baka.
Það er sjálfsagt
réttlætismál, en skiptir hins vegar
litlu máli fyrir tryggingataka að öðru
óbreyttu. Félögin hafa ekki dregið til
baka áform um að hækka iðgjöld. Þau
hafa ekkert upplýst hver verður
framtíð tugmilljarða króna bótasjóða
sem viðskiptavinir þeirra hafa byggt
upp með ofteknum iðgjöldum,“ segir
Runólfur.
Stöðva verði áform tryggingafélag-
anna um að tæma bótasjóðina. „Þau
eru undir smásjá almennings og fjöl-
miðla og verða það vonandi áfram,“
segir Runólfur í yfirlýsingunni.
Hann segir að félagið muni ekki
láta sitt eftir liggja. Ekki sé síður mik-
ilvægt að Fjármálaeftirlitið (FME)
taki sig saman í andlitinu og standi
einu sinni með fólkinu í landinu frem-
ur en fjármálafyrirtækjunum. FME
sé í bestu aðstöðunni af öllum til að
hjálpa tryggingafélögunum að losna
við fjármunina sem ekki nýtast og
skila þeim til réttra eigenda.
„Bótasjóðina á auðvitað að nota til
að bæta tjón og á móti geta trygg-
ingafélögin lækkað iðgjöld,“ segir
Runólfur.
Morgunblaðið/Ómar
Bílar Framkvæmdastjóri FÍB vill að
tryggingafélögin lækki iðgjöld.
Stöðva áform um
að tæma bótasjóði
Segir baráttu ekki lokið vegna flótta
Runólfur
Ólafsson
Jesus Christ Superstar er 47
ára gömul rokkópera eftir And-
rew Lloyd Webber og Tim Rice.
Hún var fyrst sett á svið á
Broadway á árinu 1971 og hefur
síðan verið sýnd stöðugt alls
staðar um hinn vestræna heim.
Hér á landi var hún fyrst sett
upp hjá Leikfélagi Reykjavíkur
árið 1973 en oft síðan. Söngleik-
urinn er byggður á atburðum úr
síðustu vikunni í ævi Krists og
lýkur á krossfestingunni.
Vinsælasta
rokkóperan
45 ÁR Á SVIÐI
Líffæragjöfum hefur fjölgað um-
talsvert í Evrópu og mesta aukn-
ingin var á Íslandi. Þetta kemur
fram í frétt vefsíðu Sjúkratrygg-
inga Íslands. þar segir að á árinu
2015 voru gefin líffæri í 371 skipti í
Evrópu í tengslum við dauðsföll,
sem var met samkvæmt upplýsing-
um Sahlgrenska sjúkrahússins í
Svíþjóð, en þangað fara flestir sjúk-
lingar sem þurfa á líffæraígræðslu
að halda og eru sjúkratryggðir á Ís-
landi.
„Á árinu 2015 voru líffæragjaf-
arnir 12 á Íslandi. Þetta þýðir 36,4
líffæragjafa á milljón íbúa sem set-
ur Ísland á toppinn yfir líffæragjafa
í Evrópu. Án efa er þetta að þakka
mikilli vitundarvakningu sem orðið
hefur meðal almennings og starfs-
manna heilbrigðisþjónustunnar. Í
hvert skipti sem líffæri eru gefin er
mögulega hægt að bjarga nokkrum
mannslífum,“ segir í fréttinni.
Á yfirliti yfir fjölda líffæra frá ís-
lenskum gjöfum á undanförnum ár-
um kemur fram að þau voru 49 í
fyrra samanborið við 10 á árinu á
undan og 17 á árinu 2013. Í flestum
tilvikum eða 24 var gefið nýra, 11
lifur og fimm lungu og fimm hjörtu
voru gefin á nýliðnu ári.
13 fengu ígrætt líffæri
„Á árinu 2015 fengu 13 sjúkra-
tryggðir einstaklingar ígrætt líf-
færi en þeir sem höfðu verið lengst
á biðlista voru búnir að bíða frá
árinu 2010. Útgjöld Sjúkratrygg-
inga Íslands vegna líffæra-
ígræðslna á árinu 2015 voru ríflega
223 millj. kr. en ef ferða- og uppi-
haldskostnaður er tekinn með
námu útgjöldin um 272 millj. kr.
Þess má geta að nýrnaígræðslur
frá lifandi gjöfum á Íslandi eru
einnig í efstu sætum í Evrópu,“ seg-
ir í umfjöllun Sjúkratrygginga.
omfr@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Skurðaðgerð Í fyrra fengu 13 sjúkra-
tryggðir einstaklingar ígrætt líffæri.
Líffæri gefin í 49
skipti á nýliðnu ári
HVERNIG KEMST 330.000
MANNA ÞJÓÐ Á EM?
LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR
LEYNIVOPN.IS
ER ÞAÐ
VATNIÐ?
„
“