Morgunblaðið - 12.03.2016, Síða 22

Morgunblaðið - 12.03.2016, Síða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2016 SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Selfosskirkja og starfið hér er ákveðinn miðdepill í bæjarlífinu á Sel- fossi. Kirkjusókn – hvort sem það eru messur eða aðrir þættir í starfi okkar – er góð. Fólk lætur það í ljós á svo margan hátt að kirkjan skiptir það máli. Og hver veit nema staðsetning kirkjunnar hafi hér sitt að segja. Guðshúsið sem stendur á bökkum Ölfusár blasir við öllum sem hér fara um og fyrir vikið er það áberandi hluti af bæjarmyndinni,“ segir séra Guðbjörg Arnardóttir, sóknarprestur á Selfossi. Þessa dagana er haldið upp á 60 ára afmæli Selfosskirkju, sem hafist var handa um að byggja árið 1952 og hún svo vígð á pálmasunnudag 1956, það er 25. mars. Arkitekt kirkjunnar var Bjarni Pálsson byggingafulltrúi, en hann teiknaði fjölda bygginga á Selfossi á þessum árum og er í mörgu tilliti húsameistari bæjarins. Guð- mundur Sveinsson var aðalsmiður. Sígilt messuform „Það er mikilvægt að kirkjan komi alltaf til móts við fólk í aðstæðum sín- um eins og við gerum hér á Selfossi. Hér fylgjum við að jafnaði hinu sí- gilda messuformi sem sr. Sigurður Pálsson átti svo ríkan þátt í að móta. Fjóra morgna í viku hér sunginn tíða- söngur. Svo er allt hitt barna- og æskulýðsstarfið, tónlistarstarfið og annað fjölbreytt safnaðarstarf. Í kirkjunni iðar allt af lífi frá morgni til kvölds og það er gaman að vera þátt- takandi í þessu starfi,“ segir sr. Guð- björg Arnardóttir sem er fædd og uppalin á Selfossi. Hún tók við emb- ætti sóknarprests á síðasta ári. Prest- ur við hennar hlið er séra Ninna Sif Svavarsdóttir. Veigamikið hlutverk „Hlutverk kirkjunnar í þessu sam- félagi er veigamikið,“ segir Björn Ingi Gíslason, formaður sóknar- nefndar Selfosskirkju. „Öll þátttaka í almennu starfi kirkjunnar og góð messusókn svarar því. Þá er öflugt kórastarf barna, unglinga og kirkju- kórs liður í mannrækt sem styrkir mannlífið. Það er íbúum þessa sam- félags og ekki síður kirkjunni mik- ilvægt að starfið eflist með gagn- kvæmu trausti. Við höfum á að skipa góðu starfsfólki og sem leggur sig fram. Á tímamótum sem þessum gefst tækifæri til að halda á lofti nafni þess fólks sem mikið hefur starfað í kirkjunni. Og það gerum við með því að sýna myndir og muni sem tengjast kirkjunni við ýmsar þær athafnir sem nú eru framundan.“ Kirkjan er miðdepill í bæjarmynd  Hátíðardagskrá næstu vikuna í tilefni af 60 ára afmæli Selfosskirkju  Mikil messusókn og góð þátttaka  Starfið eflist með gagnkvæmu trausti  Iðandi líf í kirkjunni frá morgni og fram á kvöld Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson Kirkjan Björn Ingi Gíslason, formaður sóknarnefndar og sóknarpresturinn sr. Guðbjörg Arnardóttir. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ölfusá Allt vex, grænkar og dafnar og kirkjan er þekkt kennileiti. Um síðastliðin áramót voru lands- menn 332.529 og hafði fjölgað um 3.429 frá í ársbyrjun 2015. Þetta jafngildir fjölgun um 1%. Konum og körlum fjölgaði nokkuð jafnt, en karlarnir voru þó 2.011 fleiri. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hag- stofu Íslands. Vestfirðingar halda á brott Mikil fólksfjölgun var á höfuð- borgarsvæðinu, eða um 2.333 manns milli ára. Það er 1,1% fjölgun á einu ári. Hlutfallslega var fjölgunin mest á Suðurnesjum, 2,2%, eða 483 frá síðasta ári. Fólki fjölgaði einnig á Suðurlandi, um 445 manns eða 1,8%. Vestlendingum fjölgaði um um 200, eða 1,2%. Fólki fækkaði á þremur landsvæð- um. Alls 1,2% Vestfirðinga héldu á brott eða 87 manns, á Austurlandi fækkaði um 44 (0,3%) og á Norður- landi vestra um tvo (0,1%). Þéttbýlisfólki fjölgar Nú í byrjun ársins voru 74 sveitar- félög á landinu. Sveitarfélögin eru misstór bæði að landsvæði og íbúa- tölu. Í sex sveitarfélögum eru íbú- arnir 100 eða færri, en undir 1.000 í 41 sveitarfélagi. Í aðeins níu sveit- arfélögum bjuggu fleiri en 5.000 manns. Á alls 61 þéttbýlisstað úti á landi voru 200 íbúar eða færri. Auk þeirra voru 35 smærri staðir með 50-199 íbúar. Í þéttbýli bjuggu 311.850 manns þann 1. janúar síðastliðinn eða 93,6% þjóðarinnar. Þéttbýlis- fólki fjölgaði um 3.335 milli ára. Í dreifbýli og smærri byggðakjörnum bjuggu 20.679 manns. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Grenivík Dæmigerður lítill bær þar sem sjávarútvegur og þjónusta við sveitirnar í kring er undirstaðan. 93,6% þjóðarinnar búa í þéttbýlinu  Landsmönnum fjölgar um 1% milli ára  35 staðir með innan við 200 íbúa Þau tímamót að Selfosskirkja sé 60 ára eru stór og margt er því gert til hátíðarbrigða. Á morgun, sunnudag, er fjölskylduguðsþjón- usta í Selfosskirkju kl. 11.00, en slíkar messur eru haldnar í kirkjunni einu sinni í mánuði. Annað kvöld er svo kvöldmessa með léttu yfirbragði. Í næstu viku verður fjölbreytt dagskrá á hverjum degi í tilefni afmælisins. Má þar meðal annars nefna sögugöngu um kirkjuna og kirkjugarðinn á mánudag og á miðvikudagskvöld verður haldin samkoma tileinkuð sr. Sigurði Páls- syni og konu hans Stefaníu Gissurardóttur. Sr. Sigurður, sem þjónaði lengi við Hraun- gerði í Flóa og síðar á Selfossi, var áhrifa- maður innan kirkjunnar og átti ríkan þátt í mótun þeirra helgisiða sem lengi hafa ríkt og ráðið í kirkjunni. Á málþinginu tala þeir Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor í guðfræði við HÍ, sem er frá Selfossi, og Óli Þ. Guð- bjartsson, fyrrverandi skólastjóri og ráð- herra. Þá syngur Gissur Páll Gissurarson, sem er afabarn prestshjónanna, sonur Giss- urar Sigurðssonar, fréttamanns á Bylgjunni. Einnig verður á næstu dögum með ýmsu móti haldið upp á afmæli kvenfélagsins 50 ára og kórs kirkjunnar 70 ára. Afmælisdag- skránni lýkur á sunnudag um næstu helgi, með hátíðarmessu þar sem biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, prédikar. Hátíðarmessa og söguganga FJÖLBREYTT DAGSKRÁ MEÐ ATBURÐUM Á HVERJUM DEGI Í TILEFNI AFMÆLISINS Morgunblaðið/RAX Feðgar Gissur Páll söngvari og Gissur Sigurðsson fréttamaður hafa sín sterku tengsl við Selfosskirkju. fenix 3 sameinar glæsilega hönnun og fjölnota GPS snjallúr Íþrótta- og útivistarfólk þarf ekki lengur að velja á milli – fenix 3 er bæði fullkomið íþróttaúr, útivistarúr, snjallúr og úr sem þú notar daglega í vinnu og leik. Þú getur einnig sérsniðið úrið að þínum þörfum með mismunandi upplýsingagluggum, forritum eða úraskífu með Connect IQ appinu frá Garmin. Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is toppaðu gærdaginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.