Morgunblaðið - 12.03.2016, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.03.2016, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2016 Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð. Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana. Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is Hafðu samband í dag og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun. www.mbl.is/laushverfi Vantar þig aukapening? BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Nýjasta útfærsla af Hrafnabjarga- virkjun í Skjálfandafljóti, Hrafna- bjargavirkjun C, hefur ekki helm- ings afl á við upphafleg virkjanaáform en hlífir Aldeyj- arfossi sem er hluti af einstakri náttúrusmíð. Sú útfærsla hefur heldur ekki áhrif á fossa og veiði í Suðurá og Svartá í Bárðardal. Forsvarsmenn Hrafnabjarga- virkjunar hf. og Landsvirkjunar kynntu stöðu verkefnisins á fundi í Þingeyjarsveit fyrr í vikunni og fiskifræðingar Veiðimálastofnunar kynntu niðurstöðu rannsóknar sem gerð var í Skjálfandafljóti á síðasta ári. Mismunandi útfærslur Lengi hefur verið unnið að at- hugun á möguleikum á virkjun í efsta hluta Skjálfandafljóts. Fyrir allmörgum árum stofnuðu Orku- veita Reykjavíkur, Norðurorka á Akureyri, Orkuveita Húsavíkur og Þingeyjarsveit félagið Hrafna- bjargavirkjun til að vinna að mál- inu. Orkuveita Reykjavíkur seldi heimamönnum hlut sinn vegna áherslubreytinga í fyrirtækinu og Hrafnabjargavirkjun hf. og Lands- virkjun tóku síðar upp samstarf um rannsóknir. Upphaflega var gert ráð fyrir að nýta fallhæðina niður fyrir Aldeyj- arfoss og veita Suðurá í uppistöðu- lón. Uppsett afl slíkrar virkjunar yrði tæplega 90 megavött. Mikil andstaða var við þessa hug- mynd í Bárðardal og Þingeyjarsveit vegna þess að vatn yrði að mestu leyti tekið af Aldeyjarfossi, Ingv- ararfossi og Hrafnabjargafossi í Skjálfandafljóti og Ullarfossi í Svartá. Auk þess var óttast um áhrif á veiði í Svartá. Næsta útfærsla var Hrafna- bjargavirkjun B. Hún nýtir fallið niður að Aldeyjarfossi og hlífir foss- inum. Áhrifin eru að öðru leyti þau sömu. Aflið er mun minna en í A- útfærslunni, eða 50 MW. Lón í gömlu lónstæði Sú útfærsla sem nú er mest unn- ið með er Hrafnabjargavirkjun C. Þar er veitu Suðurár í lónið sleppt og þar með verða engin áhrif á Ull- arfoss eða veiði í Svartá. Þessi kost- ur gefur um 36,5 MW afl, töluvert innan við helming þess afls sem upphaflegi kosturinn gefur. Franz Árnason, framkvæmdastjóri Hrafnabjargavirkjunar hf., segir að eigi að síður sé þetta talinn hag- kvæmur virkjanakostur, svipaður og aðrir kostir sem til umfjöllunar eru. Eftir stendur að nauðsynlegt er talið að hafa nokkuð stórt uppi- stöðulón, jafnstórt og í hinum kost- unum. Við það fer nokkur gróður undir vatn en þó aðallega eyðiland. Franz telur unnt að græða upp önnur svæði í staðinn með áburð- argjöf. Aðeins er nýtt fallið niður að Aldeyjarfossi. Það þýðir að vatn sem annars fer í fljótið er leitt með aðrennslisgöngum úr lóni, framhjá Hrafnabjargafossi og Ingvararfossi og í stöðvarhús. Þaðan er útrennsl- ið leitt í frárennslisgöngum og skurði í Skjálfandafljót, ofan við Al- deyjarfoss. Lítið rennsli verður því á Hrafnabjargafossi og Ingvarar- fossi. Eitthvert sumarrennsli verð- ur þó um fossana og eftir að lónið fyllist síðsumars eða á haustin fer vatnið sem er umfram þarfir virkj- unarinnar um ána. Franz bendir á að mannvirkin verði að mestu leyti neðanjarðar, það er að segja göngin frá lóni í stöðvarhús og stöðvarhúsið sjálft. Lónið muni lítið sjást frá Sprengi- sandsleið sem liggur ofan í Bárðar- dal. Jarðfræðingar telja að dalurinn sem lónið á að vera í sé gamalt lón- stæði. Bárðardalshraun hafi stíflað fljótið við Hrafnabjörg og myndað lón með svipuðu yfirborði og fyrir- hugað lón Hrafnabjargavirkjunar. Þess vegna er búist við því að botn væntanlegs lónstæðis sé tiltölulega þéttur. Þarf meiri raforku Hrafnabjargavirkjun er flokkuð í biðflokk í núgildandi rammaáætlun. Allir þrír kostirnir voru tilkynntir til verkefnastjórnar um þriðja áfanga rammaáætlunar sem nú starfar. Ekki er langt í að fyrstu niðurstöður hennar liggi fyrir. Franz telur víst að ef þessi kostur verður flokkaður í bið- eða nýting- arflokk muni undirbúningur halda áfram, rannsóknir, frumhönnun á virkjun og frekari útreikningar á hagkvæmni og síðan umhverfismat. Vandamál eru með flutning orku til Norðurlands vegna takmarkana byggðalínunnar og þar vantar raf- orku. Útlit er fyrir að jarðgufan verði ráðandi vegna Þeistareykja- virkjunar og áforma um fleiri jarð- varmavirkjanir. „Vatnsaflsvirkjun á þessum stað myndi bæta öryggi og treysta kerfið á þessu landshorni,“ segir Franz. Ef virkjun af þessari stærð rís efst í Bárðardal er hægt að tengja hana við landskerfið með loftlínu eða jarðstreng. Ef stærri áform yrðu að veruleika, eins og Fljóts- hnjúksvirkjun, ofar í fljótinu, þyrfti að gera aðrar ráðstafanir. Þess má geta að Landsnet vinnur að athug- un á því að flytja raforku með loft- línu og jarðstreng um Sprengisand. Hún myndi koma niður í Bárðardal. Franz tekur fram að virkjana- áformin séu ótengd þeim hug- myndum. Aldeyjarfossi verði hlíft  Minni og afmarkaðri umhverfisáhrif af nýjustu útgáfu af Hrafnabjargavirkjun í Skjálfandafljóti  Vatnið fer af Hrafnabjargafossi og Ingvararfossi  Þörf á vatnsaflsvirkjun á Norðurlandi Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Náttúrusmíði Aldeyjarfoss er náttúruperla. Jökuláin fellur um fallegar stuðlabergsmyndanir sem setja sterkan svip á umhverfið. Fossinum verður hlíft. Arnór Benónýsson Franz Árnason Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar heimilaði ekki Hrafnabjargavirkj- un í aðalskipulagi sem samþykkt var fyrir fáeinum árum. „Við höf- um verið skýr með það að við erum á móti útfærslum A og B. Við höf- um jafnframt sagt að við séum reiðubúin til að skoða með opnum huga Hrafnabjargavirkjun C. Til þess að hún gæti orðið að veru- leika þyrfti breytingu á aðalskipu- lagi,“ segir Arnór Benónýsson, oddviti sveitarstjórnar Þingeyj- arsveitar. Arnór segir að skiptar skoðanir hafi verið í sveitarfélaginu og í Bárðardal um virkjanaáformin. Hann bætir við: „Við metum þær breytingar sem hafa verið gerðar á hönnun og hugmyndum þar sem tillit hefur verið tekið til skoðana heimamanna. Þegar rammaáætlun kemur munu menn meta málin ís- kalt. Við þurfum sífellt að vera í samræðu um nýtingu og vernd.“ Fiskifræðingar sem rannsökuðu Skjálfandafljót á síðasta ári telja að ekkert bendi til að virkjun ofan Aldeyjarfoss muni hafa neikvæð áhrif á veiði í fljótinu. Raunar má lesa út úr skýrslu þeirra að skil- yrði til stangveiði muni frekar batna. Vísa má til Blöndu í því efni. Rannsóknirnar sýndu að bú- svæði laxfiska eru mun stærri á ólaxgenga hluta Skjálfandafljóts en reiknað var með. Fagnar Arnór því og segir mikilvægt að ráðast í fleiri slíkar rannsóknir. Sérfræð- ingarnir telja að ef vilji sé til að auka laxgengd í fljótinu sé mögu- legt að lagfæra gönguleiðir framhjá fossunum. Verður skoðað með opnum huga Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Hverfur Lítið vatn verður í Hrafnabjargafossi ef virkjað verður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.