Morgunblaðið - 12.03.2016, Page 48

Morgunblaðið - 12.03.2016, Page 48
48 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2016 Syndsamlega góður eftirréttur ...með engri fyrirhöfn Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Stemningin í fjölskyldunni ýtir þér í áhugaverðar áttir. Gerðu hlutina í nýrri röð, farðu í fötin sem eru aftast í skápnum, sofðu hinum megin í rúminu. 20. apríl - 20. maí  Naut Nú þarftu að taka bæði áhættu og þora að láta til skarar skríða. Mundu að þú ert að taka mikilvægt skref inn í framtíð- ina. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Himintunglin varpa ljósi á undir- stöðurnar. En að þessu sinni væri gott að búa yfir dálítilli formlegri þekkingu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Einhver verður þér ósammála í dag og þú hefur tilhneigingu til að taka það óstinnt upp. Endaðu daginn með rólegu kvöldi heima við. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Leggðu þig fram um að sýna börnum þínum og maka þolinmæði í dag. Jákvætt hugarfar þitt er smitandi og aðrir njóta þess að vera í návist þinni vegna þess að þú lætur þeim líða vel. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Gættu þess að stökkva ekki upp á nef þér af minnsta tilefni. Hlutirnir eru í góðu lagi þótt þeir séu ekki alfullkomnir. 23. sept. - 22. okt.  Vog Áætlanir þínar ætla bersýnilega ekki að ganga eftir. Gerðu það upp við þig hvað þú vilt setja í forgang og biddu fólk um að sýna biðlund. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú átt enn langt í land með það verkefni sem þú beinir mestri orku þinni að. Leyfið ykkur að njóta þess. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Nú er komið að því eftir langa mæðu að menn sjá hve mjög þú hefur lagt þig fram um lausn ákveðins verkefnis. Gættu þín þó að falla ekki fyrir freistni sjálfselskunnar. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það má margt af samstarfi við aðra læra og sérstaklega þá list að sam- eina skoðanir svo takast megi að hrinda málum í framkvæmd. Getur verið að þú sért ástfangin/n? 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það getur verið snúið þegar persónuleg vandamál teygja anga sína inn á vinnustaðinn. Einhverra hluta vegna hef- ur þú ekki skýra mynd af aðstæðum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ótímabundnar áætlanir duga ekki til þess að halda ástvinum við efnið. En kapp er best með forsjá og hafirðu það í huga fer allt vel. Þannig var síðasta laugardags-gáta Guðmundar Arnfinns- sonar: Í fjárhúskrónni kusk hún er. Kóklast í berjalyngi. Grær á velli, er vora fer. Vel ég tel hún syngi. Harpa á Hjarðarfelli svarar: Garðaló á gólfi er. Gengur kónguló. Græna ló ég finna fer. Fagnar ló’ í mó. Árni Blöndal á þessa lausn: Get ég fyrst um garða ló. Gengur um lyngið kónguló. Ló á velli er lágur gróður. Lóusöngur finnst mér góður Guðrún Bjarnadóttir leysir gátuna þannig: Um gólfið ló í laumi smó. Ló er kló í berjamó. Vortún fyrst upp lóðsar ló. Ló með dírri kveður snjó. Helgi R. Einarsson, Mosfellsbæ, vonast til að hafa slysast á rétta lausn: Í fjárhúsi er og finnst í mó, fersk, þó lítil sé og mjó, kveður burtu kaldan snjó. Hvernig væri að giska á ló? Þannig skýrir Guðmundur Arn- finnsson gátuna: Í fjárhúskrónni liggur ló. Ló má sjá í berjamó. Ló fær grænku landið prýtt. Ló í holti syngur blítt. Og lætur limru fylgja: Við lagskonu sína kvað Lóla: „mér leiðist að fara í skóla, það er kergja í mér, og ég kvíðafull er, eins og kalkún, sem hugsar til jóla.“ Síðan kemur ein gátan enn eftir Guðmund: Sjómönnum hún veitti var. Vitur Snorri dvaldi þar. Ýmsum þarna eyðist féð. Opna trassinn gengur með. Sigmundur Benediktsson kallar veðurvísu dagsins „Úrfelli“: Regnið þvoði skít af skjá, skelfing boðar vega. Lægðir hnoðast hnjúkum á hrína voðalega. „Velþegin asahláka“ varð Páli Imsland yrkisefni: Þungir stórir dropar detta drullu sulla og vatni skvetta, út um grundir aga sletta. Asa- kallast -hláka þetta. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Ló vísar í margar áttir Í klípu „JÁ, ÞETTA ER MIKIÐ ÁFALL. ÉG VAR NÝBÚIN AÐ SLÁ VÍXIL FYRIR HANN.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „MAMMA! ÉG VAR AÐ KYNNAST ÞESSUM NÝJA GAUR. HANN ER EKKI MYNDARLEGUR EÐA NEITT SVOLEIÐIS, EN HANN ER ENDURSKOÐANDI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar þið gangið samtaka. ÉG KYNNI FYRIR YÐUR, „LA BOHÉME“ EFTIR GIACOMO PUCCINI Í HEILD SINNI ÓPERA FYRIR EINUM ER KATTAGAUL FYRIR ÖÐRUM MENN, VIÐ ÞURFUM AÐ HUGSA UM ÁLIT ALMENNINGS… …AÐ GLATA STUÐNINGI OKKAR EIGIN FÓLKS! …EF VIÐ VIRKUM OF HARÐNESKJULEGIR EIGUM VIÐ Á HÆTTU… TAKIÐ ÞESSA NÝJU SKILDI Í BARDAGANN OG MUNIÐ AÐ SEGJA ALLTAF: „EIGIÐ GOTT LÍF FYRIR HANDAN“! Það er fátt sem gleður húsmóð-urhjarta Víkverja meira en að ná að nýta matarafganga í matseld. Hjarta hans fyllist fögnuði í hvert sinn sem hann reiðir fram dýrind- ismáltíð úr aflóga mat sem hafði ver- ið á borðum nokkrum kvöldum áður í vikunni. Um daginn bjó hann til þessa líka fínu kartöfluklatta úr heilum bing af soðnum kartöflum. x x x Þannig er mál með vexti að Vík-verja er gjörsamlega fyrirmunað að elda hæfilegt magn af kartöflum eða hrísgrjónum með kvöldmatnum. Undantekningarlaust sýður hann yf- irleitt allt of mikið af þessu meðlæti. Því miður hefur það stundum þurft að rata ofan í ruslið óétið. x x x Þegar það gerist þá líður Víkverjaskelfilega illa. Hjartað tekur kipp og honum finnst hann hafa brugðist heiminum. Hann hugsar undantekningarlaust til hungruðu barnanna í Afríku og upp í hugann kemur mynd af þeim þar sem þau standa saman í einum hóp og stara tómeyg en ásakandi á Víkverja með þaninn maga og flugur allt í kring, með tóma matardalla á lofti. x x x Hjarta Víkverja kremst alltaf jafnmikið þegar hann dregur þessa mynd fram í hugskoti sínu. „Fyr- irgefið“ er það eina sem kemur upp í huga Víkverja þá stundina og hann hellir úr dallinum ofan í kolsvart ruslið. x x x Það er því ekki að undra þegar Vík-verja tekst að matreiða prýði- legan mat úr afgöngum að hann nán- ast hoppar hæð sína í eldhúsinu. Hann kætist eins og lítið barn á jól- um yfir dugnaðinum. x x x Víkverji ætti þó samt að reyna aðláta af því að fylla pottinn alltaf af kartöflum hugsunarlaust í hvert skipti sem hann sýður þær. Heldur leggja aðeins meira á sig og reikna út svona um það bil hvað hver borðar margar kartöflur með matnum. víkverji@mbl.is Víkverji Ég vil þakka þér, Drottinn, af öllu hjarta, kunngjöra öll máttarverk þín. (Sálmarnir 9.2)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.