Víkurfréttir - 01.12.1994, Qupperneq 9
Kveikt á þremur jólatrjám á laugardag
- langir laugadagar í verslunum
Kveikt verður á jólatrjám við hátíðlega athöfn í Keflavík, Njarðvík og Höfnum nk. laugardag 3.
deseniber. Sama jóladagskrá verður á öllum stöðum en ávörp flytja Drífa Sigfúsdóttir, forseti
bæjarstjórnar við athöfnina í Höfnum og Ólafur Sindri Ólafsson, nemi úr Höfnum tendrar Ijósin.
I Njarðvík flytur Anna M. Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi ávarp en ljósin tendrar Sigurður
Guðmundsson, nemi úr Njarðvík. I Kellavík flytja Öyvind Stokke, sendiráðsritari Noregs á Islandi og
Jónína Sanders ávörp. Jólaljósin tendrar Katrín Marsi Aradóttir, nemi í Keflavík.
A hátíðardagskrá á öllum stöðum munu Lúðrasveit Tónlistarskóla Njarðvíkur leika aðventu og
jólalög og sönghópur Keflavíkurkirkju syngja jólalög. Nemendur Myllubakkaskóla ganga í kringum
jólatréð ásamt jólasveininum. Holtaskólanemendur bjóða heitt kakó og nemendur úr Grunnskóla
Njarðvíkur bjóða upp á piparkökur. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir.
A laugardag verða verslanir opnar lengur eða til kl. 16 og bjóða margar þeirra upp á einhver jólatil-
boð í tilefni langs laugardags.
• Útbúum útiseríur eftir máli
# Krossar á leiði
# Jólaseríur frá kr. 390.-
af jólaskrauti
ulur, toppar
og fleira
*RE^BÓK
Hafnargötu 36- sími 13066