Víkurfréttir - 01.12.1994, Blaðsíða 18
18
1. DESEMBER 1994
VÍKUIIFRÉTTIR
Listsýning
Áka Granz
Lista- og menningarnefnd Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna
stendur fyrir sýningu á verkum Aka Granz f nýjum sal Grunnskóla
Njarðvíkur dagana 3.-11. des.
Ákvörðun um halda þessa sýningu var tekin af Bæjarstjórn
Njarðvíkur síðla vetrar 1994 en hugmyndin að henni kviknaði á 50
ára afmæli Njarðvíkurbæjar. Bæjaryfirvöld nýs sameinaðs sveitar-
félags staðfestu þessa ákvörðun eftir sameiningu og eru nú að
framfylgja henni.
URl
FRAMBJÓÐENDUR
MEÐ OPINN FUND
Frambjóðendur í prófkjöri Framsóknar-
flokksins í Reykjaneskjördæmi sem fer
fram 10. desember 1994 verða á opn-
um fundi í Framsóknarhúsinu í Kefla-
vík, þriðjudaginn 6. desember 1994 kl.
20:30.
Fundurinn er öllum opinn!
Framsóknarfélögin í
Keflavík, Njarðvík og Höfnum.
STARFSFÓLKí
VEITINGADEILD ÓSKAST
Flugleiðir óska eftir að ráða starfsfólk í
veitingadeild félagsins í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar á Kefiavíkurflugvelli
frá og með 1. janúar n.k.
Félagið leitar eftir áhugasömu og þjón-
ustusinnuðu starfsfólki. Starfsreynsla við
þjónustustörf er æskileg.
Hér er um vaktavinnu að ræða.
Kjör verða samkvæmt kjarasamningi
Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur og Flugleiða.
Nánari upplýsingar um störfin veitir
deildarstjóri veitingadeildar
í síma (92)-50247.
Skriflegar umsóknir óskast sendar
skrifstofu félagsins á Keflavíkurflugvelli
fyrir 7. desember n.k.
H
Ágætu Suðurnesjabúar!
Kosningaskrifstofa mín að Hafnargötu
28 (uppi hjá Hljómval) hefur verið opn-
uð. Mér þætti vænt um að sjá sem
flesta líta þar við á föstudaginn 2. des-
ember kl. 17 til skrafs og ráðagerðar.
Nú styttist í prófkjör.
Gjörðu svo vel að líta við.
Hjálmar Árnason.
Varnarliðið:
Slökkvilið Varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli óskar að ráða
mann til afleysinga
Umsækjendur séu á aldrinum 20-28 ára
og hafi iðnmenntun sem nýtist í starfi
slökkviliðsmanna eða sambærilega
menntun og reynslu. Meirapróf bifreiða-
stjóra skilyrði. Umsóknum fylgi sveinsbréf
eða staðfesting á annarri menntun eða
reynslu.
Umsækjendur skulu vera heilsuhraustir,
reglusamir og standist próf í ensku þar
sem mjög góðrar enskukunnáttu er kraf-
ist.
Umsóknir berist til Ráðningardeildar Varn-
armálaskrifstofu, Brekkustíg 39, Njarðvík,
sími 92-11973, eigi síðar en 5. desem-
ber n.k.
Starfslýsing liggur þar frammi til aflestrar
fyrir umsækjendur og er þeim bent á að
lesa hana áður en sótt er um.
Umsóknareyðublöð fást einnig á sama
stað.
♦ Áki með pensilintt í hendinni
á vinnustofu sinni í Njarðvtk.
mynd: Oddgeir Karlsson.
s
Aki er vel kunnur listmál-
ari hér á svæðinu. Hann
er reyndar fæddur í
Vestmannaeyjum og lærði þar
málaraiðn hjá Engilberti Gísla-
syni. Áki lauk sveinsprófi 1943
og meistararéttindi fékk hann
1946. Hann hefur búið og starf-
að í Njarðvíkunum síðustu
fimmtíu árin.
í Faxa sem kom út fyrir
nokkrum árum segir Áki í við-
tali: „Síst af öllu óraði mig fyrir
því að ég ætti eftir að búa hér í
Njarðvíkunum, þegar ég kom
hingað fyrst á reiðhjóli árið
1944, til að heilsa upp á kunn-
ingja minn og svo til að skoða
mig um á Suðurnesjum. Þá voru
aðeins fá hús í Ytri-Njarðvík“.
Hin ýmsu verk eftir Áka
prýða marga staði á Suðurnesj-
um. Hann hefur t.d. skreytt
ýmsar byggingar, m.a. Hvals-
neskirkju, Félagsheimilið Stapa
og Grunnskóla Njarðvíkur. Áki
hefur líka málað stórar myndir
á húsnæði gamalgróinna fyrir-
tækja í bænum, s.s. SBK og
Aðalstöðina. Samhliða aðal-
starfi hefur Áki fengist við fjöl-
breytta listsköpun. Hann hefur
t.d. hannað fjölda merkja fyrir
félög og stofnanir, m.a. merki
og fána Kvenfélagsins Njarðvík
og bæjarmerki Njarðvíkur og
Hafna. Hann hefur unnið úr
margs konar efnum og notar
margvísleg form í verkum sín-
um. Áki hefur gert nokkrar lág-
myndir og styttur. Þeirra stærst
og þekktust er líklega styttan af
Ólafi Thors, sem stendur á milli
Hringbrautar og Brekkubrautar
í Keflavík. Þá hafa ekki ófræg-
ari menn en Nixon fyrrverandi
Bandarfkjaforseti fengið mynd
eftir Áka.
Áki hefur tekið þátt í
nokkrum samsýningum bæði
hér heima og erlendis. I fyrr-
greindu Faxaviðtali svarar Áki
blaðamanni á skemmtilegan
hátt þegar hann var spurður um
verk sín sem hann hafði gert:
„Ég er aldrei ánægður með mín
verk. Mér finnst alltaf að ég
hefði getað gert betur“. Svo
mörg voru þau orð.
Sýning meistarans úr Njarð-
vík verður opin alla virka daga
frá kl. 16-20 en frá kl. 14-20
um helgar.